Fréttablaðið - 13.03.2014, Blaðsíða 24
13. mars 2014 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 24
Alþjóðageirinn
var umfjöllunar-
efni nýafstaðins
Viðskiptaþings.
Eitt af aðalum-
fjöllunarefnum
þingsins var
„1.000 milljarða
áskorunin“ svo-
kallaða. Til að
standa undir
sjálfbærum
langtímahag-
vexti án auk-
innar erlendrar
skuldsetningar þurfum við að auka
útflutning um þá upphæð á næstu
20 árum. Ef mæta á þeirri áskor-
un án þess að ganga á takmarkað-
ar náttúruauðlindir gegnir vöxtur
alþjóðageirans lykilhlutverki.
Gjaldeyrishöftin og áhrif
þeirra á vaxtarmöguleika voru
mikið rædd á þinginu en skaðsemi
þeirra kemur hvað skýrast fram
í alþjóðageiranum. Nú eru rúm
fimm ár liðin frá setningu haft-
anna og engin opinber áætlun um
afnám þeirra liggur fyrir. Það er
enginn vafi á að viðfangsefnið er
flókið og að vanda þarf til verks í
þeirri vinnu. En ekki síður mikil-
vægt er að átta sig á þeim fórnar-
kostnaði sem fólginn er í frekari
töfum á afnámi hafta og áhrifum á
framtíðarlífskjör í landinu.
Fórnarkostnaðurinn 80 ma. kr.?
Kostnaði vegna gjaldeyrishafta
má skipta í beinan kostnað vegna
umsýslu annars vegar og óbein-
an kostnað vegna efnahagslegra
áhrifa hins vegar. Beini kostnað-
urinn – í formi eftirlits, útboða,
undanþágubeiðna, ráðgjafar og
annarrar umsýslu vegna haftanna
– er umtalsverður. Hann má sín þó
lítils í samanburði við þann óbeina
kostnað sem hlýst af höftunum
í formi minni nýliðunar og hæg-
ari vaxtar fyrirtækja í alþjóða-
geiranum.
Það er erfitt að mæla töpuð
tækifæri, en þróun síðustu ára
gefur engu að síður vísbendingar
um þann skaða sem höft á fjár-
magnsflutningum hafa valdið
innan alþjóðageirans.
Þegar flæði fjármagns var
frjálst jókst útflutningur geirans
hratt, eða um 8% á ári yfir 15 ára
tímabil. Bæði fyrir og eftir þann
tíma, þegar fjármagnshöft voru til
staðar, varð aftur á móti stöðnun
og jafnvel samdráttur í útflutningi
geirans.
Miða mætti við sögulegan vöxt
alþjóðageirans utan hafta sem efri
mörk í mati á neikvæðum áhrifum
fjármagnshafta. Neðri mörk væru
að neikvæð áhrif haftanna á þenn-
an vöxt væru engin. Ef notast er
við varfærið mat og gert ráð fyrir
að kostnaðurinn liggi þar mitt á
milli fæst að útflutningstekjur árs-
ins 2013 væru um 80 ma. kr. hærri
án hafta heldur en raunin varð.
Sá mismunur jafngildir um einni
milljón króna í gjaldeyristekjur á
hverja íslenska fjölskyldu.
Aldrei verður hægt að meta
nákvæmlega hvað höftin kosta
okkur í formi tapaðra tækifæra.
Þessari áætlun er því hvorki ætlað
að vera nákvæm né tæmandi,
heldur einungis að gefa hugmynd
um hver raunverulegur fórnar-
kostnaður haftanna gæti verið. Sé
hann í líkingu við þær tölur sem
hér eru nefndar er ljóst að skaðinn
er þegar orðinn mikill fyrir lífs-
kjör í landinu.
Afnám með heildstæðum hætti
Á undanförnum vikum hefur
umræða um afnám hafta aukist
til muna. Það er jákvæð þróun
enda er mikil hætta fólgin í því
að áhættufælni og vanafesti færi
afnám hafta aftar á forgangslista
stjórnvalda. Enn fremur er upplýst
umræða grundvöllur þess að sátt
ríki um þann tímabundna efna-
hagslega óstöðugleika sem getur
fylgt afnámi. Þar sem höftin hafa
takmörkuð áhrif á daglegt líf ein-
staklinga er mikilvægt að gagnsæi
ríki um þann skaða sem þau valda
fyrir framtíðarlífskjör í landinu.
Umræðan hefur í of miklum
mæli verið bundin við úrlausn
gjaldeyrisþáttar slitameðferðar
föllnu bankanna. Þrátt fyrir að
farsæl lausn í því máli sé lykil-
hluti af úrlausn vandans verður
hann ekki leystur nema lögð
sé fram heildstæð og varanleg
útfærsla til afnáms hafta. Í því
felst að fyrirtækjum í alþjóðleg-
um rekstri verði gert kleift að
fjárfesta og byggja upp starfsemi
sína á erlendri grundu við fyrsta
tækifæri. Aðeins þannig verða
forsendur fyrir áðurnefndri 1.000
milljarða aukningu í útflutningi á
næstu tuttugu árum.
Hvað kosta höftin?
Fæðing barns er krafta-
verk. Foreldrarnir fagna,
afinn og amman fagna,
fjölskyldan fagnar. Allir í
fjölskyldunni trúa því að
með stuðningi samfélags-
ins verði henni gert kleift
að koma barninu til manns.
Barnið fái tækifæri til að
vaxa og dafna, njóta hæfi-
leika sinna, hamingju og
tækifæra til að taka virk-
an þátt í samfélaginu.
Sem betur fer eiga flest
börn hamingjuríka æsku og taka
jöfnum, nokkuð átakalausum
skrefum út þroska sinn allt til full-
orðinsára. Foreldrarnir reyna að
styðja börnin sín eftir bestu getu,
liggja ekki á lofi þegar vel gengur
og leita óhræddir eftir stuðningi
hjá vinum og vandamönnum þegar
á móti blæs.
Því miður eru ekki öll börn
jafnheppin. Sum börn fæðast fötl-
uð eða greinast með ýmiss konar
skerðingar í upphafi ævinnar.
Fæstar þessar skerðingar eru
lengur feimnismál í íslensku sam-
félagi. Hækkandi menntunarstig
hefur skilað sér í auknum skiln-
ingi og betri þjónustu við einstak-
linga með ólíkar fatlanir og aðrar
skerðingar.
Því er þó ekki þannig farið með
allar gerðir skerðinga. Sem dæmi
má nefna geðröskun og geðfötlun
meðal barna og ungmenna. For-
eldrar barna og ungmenna með
geðraskanir tala sjaldnast hátt
um veikindi barna sinna jafnvel
þó veikindin hvíli þungt
á þeim og fjölskyldum
þeirra. „Stelpan/strák-
urinn minn er alveg að
fara með mig í þessari
maníu sinni eða þung-
lyndi sínu,“ heyrist
sjaldan á kaffistofunni
þó vandinn leynist víða
inni á heimilum.
Þjónustu ábótavant
Með sama hætti og
skilningsskortur er
ríkjandi er þjónustu við hóp barna
með geðraskanir ábótavant. Eins
og fram hefur komið í fjölmiðlum
hefur biðlisti eftir þjónustu við
börn undir 18 ára aldri á Barna-
og unglingageðdeild Landspítalans
(BUGL) sjaldan verið lengri. Ekki
tekur betra við þegar ungmenni
hafa náð 18 ára aldri því ekkert
úrræði er sérstaklega ætlað fólki
með geðraskanir á aldrinum 18 til
25 ára í íslensku samfélagi.
Hópur ungs fólks með geðrask-
anir og vímuefnavanda fer vaxandi.
Hans bíða aðeins almennar sjúkra-
meðferðarstofnanir eins og Vogur.
Því miður bendir ýmislegt til þess
að slíkar stofnanir búi ekki yfir
nægilegri fagþekkingu til að taka
við geðsjúkum og alls ekki ung-
mennum. Jafnvel eru dæmi um að
ungu fólki sé vísað úr meðferð við
fíkniefnavanda á grundvelli dæmi-
gerðrar hegðunar af völdum geð-
röskunar. Ef foreldrar ungmenn-
anna eru ekki tilbúnir að taka við
þeim bíður þeirra aðeins – gatan.
Við þurfum að skoða hug
okkar og svara lykilspurningu.
Ber samfélagið ekki ábyrgð á að
koma „öllum“ börnum til manns?
Íslenskt velferðarsamfélag verð-
ur að horfast í augu við gleymdu
börnin sín. Okkur ber skylda til
að tryggja þeim og aðstandendum
þeirra nægilegan stuðning til að
þau nái að lifa hamingjuríku lífi
og taka virkan þátt í samfélaginu.
Auka verður fræðslu um geð-
sjúkdóma til að vinna gegn for-
dómum, bæta þjónustu við yngri
börn og síðast en ekki síst setja
á stofn uppbyggilegt, félags-
legt úrræði fyrir ungmenni á
aldrinum 18 til 25 ára með tví-
þættan geðrænan og vímuefna-
neysluvanda.
Oft hefur verið þörf en nú er
nauðsyn að bregðast hratt við til
að koma í veg fyrir mikla óham-
ingju og framtíðar-, samfélags-
legan vanda.
Gleymdu börnin
Grætur þú á golfvell-
inum? Eru augun eins
og eldhnettir eftir sund-
sprett? Ef svo er, kann
að vera að þú sért með
þurr augu eða hvarma-
bólgu. Þessir sjúkdómar
eru oft vanmeðhöndlaðir
og kveður stundum svo
rammt að því að einstak-
lingar hafa þolað einkenni
sjúkdómanna alla ævi án
þess að segja nokkrum
manni frá.
Margt bendir til þess að tíðni
þeirra hafi stóraukist á undanförn-
um áratugum. Kemur þar margt
til. Bústaðir manna og vinnustaðir
eru þurrari en áður, tölvur og ýmis
önnur tæki hita loftið og þurrka.
Flugferðalögum hefur fjölgað og
eru gervitár staðalbúnaður margra
sem vinna við flug. Klór í sundlaug-
um eykur oft á einkenni fólks með
þurr augu og hvarmabólgu og ekki
er ósennilegt að eldfjöllin íslensku
og hveraloftið geti einnig haft áhrif.
Fólki með þurr augu og hvarma-
bólgu líður nefnilega betur víðast
hvar annars staðar en á Íslandi.
Mörg lyf valda augnþurrki, þar á
meðal verkjalyf, lyf við magabólg-
um, þunglyndi og ofnæmi. Ýmsir
sjúkdómar geta minnkað tárafram-
leiðslu í tárakirtlum svo sem hinir
ýmsu gigtarsjúkdómar. Talið er
að fimmtungur fólks í vestrænum
þjóðfélögum sé með einkenni þurra
augna og upp undir 40% einstak-
linga eru með einhver ummerki
hvarmabólgu. Margir þjást af þeim
báðum og einkenni sjúkdómanna
eru margvísleg. Einkenni
þurra augna eru meðal
annars erfiðleikar við að
opna augun á morgnana,
táraflóð í roki og aðskota-
hlutartilfinning í augum.
Einkenni hvarmabólgu eru
aðallega sviði, stírumyndun
í augum og ljósfælni.
Báðum sjúkdómunum
fylgir síðan roði í augum.
Ljóst er að bæta má
þekkingu landsmanna
á sjúkdómunum verulega með
virkri uppfræðslu. Jafnframt er
hægt að bæta meðferð með mark-
vissari uppvinnslu á þurrum
augum og hvarmabólgu. Erlendis
hefur víða verið komið upp svo-
kallaðri „ þurraugnaþjónustu“,
eða „þurraugnaklíník“ (dry eye
clinic), sem beinist að því að
meðhöndla þessa sjúkdóma á
sérhæfðari og markvissari hátt.
Margt bendir til þess að ekki sé
vanþörf á slíku hér á landi og
höfum við í Augljósi nú komið upp
slíkri aðstöðu.
Farið er í gegnum hvert og eitt
tilfelli með útfyllingu á tæmandi
spurningalistum. Uppvinnsla af
hornhimnusérfræðingi fylgir í
kjölfarið og síðan er útbúin mark-
viss meðferðaráætlun í kjölfarið,
sem byggir að verulegu leyti
á fræðslu þar sem sjúklingur
gegnir lykilhlutverki í meðferð
sjúkdómanna – segja má að hann
sé besti læknirinn. Oft er um að
ræða meðferð sem endist sjúk-
lingi lífið út og því er skipulögð
eftirfylgni innifalin í áætluninni.
Er þörf á þurr-
augnaþjónustu?
www.netto.is
| Mjódd · Salavegur · Hverafold · Akureyri · Höfn ·
Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss · Grandi | Kræsingar & kostakjör
20% afsláttur
af Friskies hundamat
og Pussi kattamat
frá Purina
Tilboðið gildir 13. -16. mars 2014
FJÁRMÁL
Björn Brynjúlfur
Björnsson
hagfræðingur
Viðskiptaráðs
Íslands
0%
2000
100
150
200
300
350
250
50
0
9492
9384
96 98 0402 10 1206 08
+8%
-2%
1990
289
263
na. kr (verðlag 2013)
ÚTFLUTNINGSTEKJUR ALÞJÓÐAGEIRANS
Heimildir: Hagsttofa Íslands; útreikningar Viðskiptaráðs Íslands
HEILBRIGÐISMÁL
Jóhannes Kári
Kristinsson
augnlæknir
➜ Umræðan hefur í of
miklum mæli verið bundin
við úrlausn gjaldeyrisþáttar
slitameðferðar föllnu bank-
anna. Þrátt fyrir að farsæl
lausn í því máli sé lykilhluti
af úrlausn vandans verður
hann ekki leystur nema lögð
sé fram heildstæð og varan-
leg útfærsla til afnáms hafta.
Í því felst að fyrirtækjum í al-
þjóðlegum rekstri verið gert
kleift að fjárfesta og byggja
upp starfsemi sína á erlendri
grundu við fyrsta tækifæri.
HEILBRIGÐISMÁL
Anna Gunnhildur
Ólafsdóttir
framkvæmdastjóri
Geðhjálpar
➜ Auka verður fræðslu um
geðsjúkdóma til að vinna
gegn fordómum, bæta
þjónustu við yngri börn og
síðast en ekki síst setja á
stofn uppbyggilegt, félags-
legt úrræði fyrir ungmenni
á aldrinum 18 til 25 ára með
tvíþættan geðrænan og
vímuefnaneysluvanda.