Fréttablaðið - 13.03.2014, Blaðsíða 58
KYNNING − AUGLÝSINGFerming FIMMTUDAGUR 13. MARS 201426
Marsípanterta með jarðarberja- og
súkkulaðifyllingu,
Botnar (Uppskriftin passar í 30x20 cm form.
Til að fá ofnskúffustærð þarf að tvöfalda.)
9 egg
300 g sykur
300 g hveiti
2 tsk. lyftiduft
Þeytið egg og sykur saman þar til létt og
ljóst. Sigtið hveiti og lyftiduft saman við í
nokkrum skömmtum og hrærið rólega saman
við eggjablönduna. Smyrjið form í stærðinni
30x20 cm og hellið deiginu í þrjú slík form.
Bakið við 180°C í um það bil 15 mínútur.
Jarðarberjasúkkulaðirjómi
4 dl rjómi
4 blöð matarlím
320 g jarðarber í dós (ein stór dós)
150 g súkkulaðispænir
Leggið matarlímið í bleyti, bræðið það
yfir vatnsbaði og kælið aðeins. Sigtið jarð-
arberin frá vökvanum í dósinni en passið
að geyma vökvann. Skerið jarðarberin
smátt og blandið saman við þeyttan
rjómann ásamt súkkulaðispónum. Hrærið
matarlímið saman við rjómablönduna
þegar það hefur kólnað og látið stífna í
kæli.
Makkarónur og jarðar-
berjarjómi
250 g makkarónur (1 poki)
1 dl safi af jarðarberjunum
2,5 dl rjómi
2 msk. jello-jarðarberjaduft
Myljið makkarónurnar niður í mylsnu og
blandið jarðarberjasafanum saman við.
Þeytið saman rjóma og jello-duft í annarri
skál.
Annað
3 dl rjómi (til að þekja kökuna áður en
marsípanið fer yfir hana).
1 kg marsípan, dugar
bæði til að þekja kökuna og í
skrautið.
Setjið einn botn á kökudisk og vætið
hann aðeins með smá jarðarberjasafa,
smyrjið svo makkarónunum yfir botninn
og setjið jello-jarðarberjarjómann yfir það.
Setjið næsta botn ofan á. Vætið hann einnig
með smá jarðarberjasafa. Dreifið svo jarðar-
berjasúkkulaðirjóma yfir. Að lokum er þriðji
og síðasti botninn settur yfir. Vætið hann líka
með jarðarberjasafa. Þekið svo alla kökuna
með þeyttum rjóma. Fletjið út marsípan
og þekið kökuna með því. Gott er að nota
silíkonmottu undir. Skreytið að vild.
„Ég hef alltaf verið að gera eitt-
hvað í höndunum og þegar ég var
yngri fannst mér gaman að föndra
og mála. Bakstursáhuginn kvikn-
aði svo í kringum eins árs afmæli
sonar míns sem er að verða fimm
ára. Þá gerði ég mína fyrstu sykur-
massaköku og þá varð ekki aftur
snúið. Ég fór að setja inn myndir
af kökunum mínum á Facebook
og var í kjölfarið hvött til að gera
sérstaka síðu í kringum þær sem
ber einfaldlega nafnið Kökurnar
hennar Siggu. Í dag er þetta mitt
helsta áhugamál.
Sigríður segir kökuskreytingar
vaxa mörgum í augum. „Þetta er
þó minna mál en margur heldur.
Það eru til allskyns áhöld sem auð-
velda verkið og nota ég til dæmis
sérstök form til að gera laufblöð.
Rósirnar bý ég til úr mörgum
litlum marsípanhringjum sem
allir geta gert,“ segir Sigríður en
á síðunni hennar er að finna leið-
beiningar skref fyrir skref. Ann-
ars vegar undir: „Gerð marsípan-
rósa skref fyrir skref“ og svo undir
„Marsípankaka, jarðarberja- og
súkkulaðifylling“. „Það er svo gott
að sjá hvernig þetta lítur út lag fyrir
lag,“ segir Sigríður en hún er auk
þess dugleg að nota YouTube. „Þar
er hægt að læra heilan helling.“
Sigríður hefur keypt ýmis áhöld,
matarliti og skraut í versluninni
Allt í köku en annað fæst í hefð-
bundnum matvöruverslunum.
Hún er persónulega hrifnari af
marsípan- en sykurmassakökum.
„Það er hins vegar gott að vinna
með sykurmassann og því nota ég
hann oft í skraut.“
Hér gefur Sigríður uppskrift
að uppáhalds veislukökunni
sinni. Hún er hjúpuð og skreytt
með marsípani og sérstaklega
bragðgóð
Auðveldara en
margur heldur
Sigríður Ásta Klörudóttir er sannkallaður ástríðubakari og kann að gera
allskyns kúnstir með sykurmassa og marsípan. Hún segir minna mál en
margur heldur að útbúa fagurskreytta fermingarköku og gefur hér góð ráð.
Sigríður notar ýmis áhöld til að auðvelda
verkið. Hér má sjá form til að gera marsí-
panlaufblöð sem fæst í Allt í köku.
Mótið hefur fram og bakhlið. Marsí-
panið er sett á milli og mótinu
þrýst saman. Eins er hægt að
nota ýmiskonar stimpla sem
er hægt að stimpla á út-
flatt marsípan.
Rósirnar eru skreyttar með silfurdufti.
Nánari lýsingu á gerð kökunnar er að finna á Facebook-síðu Sigríðar sem ber heitið Kökurnar
hennar Siggu.
Sandra Lind
Þrastardóttir
20%
afsláttur
TILVALIN FERMINGARGJÖF
sólgleraugu
Sigríður rúllar marsípanlengjum upp úr glimmerdufti. Samskeyti kökunnar eru svo falin með skraut-
borða. Það má líka gera með marsípansnúru. MYND/STEFÁN