Fréttablaðið - 13.03.2014, Blaðsíða 66
KYNNING − AUGLÝSINGHeiti blaðs FIMMTUDAGUR 13. MARS 201434
ÍSLENSK HÖNNUN OG
HÚSGAGNASMÍÐI
Frá sjötta og fram á áttunda áratug síðustu aldar voru íslensk húsgögn ein
veglegasta gjöfin til fermingarbarna. Á þeim tíma var innflutningur á
húsgögnum í lágmarki og flestöll húsgögn hönnuð og smíðuð af íslenskum
hönnuðum og handverksmönnum. Hér gefur að líta vinsælustu
fermingarhúsgögnin sem nú eru aftur eftirsótt til eignar.
Krakkar geta verið vandfýsnir og tregir til að smakka á
framandi veislumat. Því er sjálfsögð tillitssemi að útbúa
fáeina sérrétti fyrir gestkomandi börn í fermingar-
veislum. Skinkuhorn hitta alltaf í mark ásamt því að
vera seðjandi, holl og bragðgóð. Hér er einföld og
ljúffeng uppskrift sem kætir maga kátra krakka.
Skinkuhorn
100 g smjör
900 g hveiti
60 g sykur
½ tsk. salt
½ l mjólk
1 pk. þurrger
1 egg til að pensla hornin með (líka hægt að nota
mjólk)
Fylling:
2 pakkar skinkumyrja (einnig má setja ost og skinku
og jafnvel einhvern annan smurost)
Bræðið smjörlíki og setjið mjólkina saman við. Bland-
ið geri og sykri saman við og pískið létt. Látið standa í
10 mínútur. Þá er hveiti bætt við og allt hnoðað saman.
Deigið er látið lyfta sér undir rökum klút. Því er síðan skipt
í nokkra minni búta. Hver bútur er flattur út í hring og
skorinn í geira. Setjið fyllingu í hvern geira og rúllið inn frá
breiðari endanum. Penslið hornin með eggi og látið lyftast
í korter. Bakið við 225°C í 8-10 mínútur eða þar til skinku-
hornin eru orðin gullinbrún.
Skinkuhorn fyrir smæstu gestina
Enginn vill
skilja börnin
útundan í ferm-
ingarveislunni.
Skinkuhorn
eru ljúffeng,
saðsöm og
vinsæl meðal
barna.
Eftirtalin Apótek og heilsubudin.is selja Proactiv® Solution
AKUREYRARAPÓTEK, Kaupangi - LYFJAVER, Suðurlandsbraut 22
BORGARAPÓTEK, Borgartúni 28 - GARÐSAPÓTEK, Sogavegi 108
URÐARAPÓTEK, Grafarholti - ÁRBÆJARAPÓTEK, Hraunbæ 115
APÓTEK GARÐABÆJAR, Litlatúni 3 - REYKJAVÍKURAPÓTEK,
Seljavegi 2, APÓTEK HAFNARFJARÐAR, Tjarnarvöllum 11
Heildsölubirgðir, Konkord ehf. S. 568 9999, heilsubudin@heilsubudin.is
Í Proactiv® Solution eru efni sem hreinsa húð þína
og eyða bólum. Með daglegri notkun koma efnin í
veg fyrir að nýjar bólur myndist. Við lofum því!
Firði Hafnarfirði Sími 555 6655 - 662 5552 • kokulist@kokulist.is
/Kokulist
www.gullkunst.is
4.900 kr 6.600 kr
5.500 - 6.500 kr 5.200kr
Silfurskartgripir með zirkonsteinum
4.500 kr 4.500kr
Dæmigerð
kommóða sem
trésmiðjur víða um land
smíðuðu fyrir fermingarbörn
landins. Efst var útdraganleg
borðplata sem þjónaði sem
skrifborð að ofan en snyrti-
borð þegar spegill blasti
við á uppreistri borð-
plötunni.
Fermingarskatthol
fengust í ýmsum útfærslum
og voru draumur fermingar-
stúlkna í unglinga-
herbergið.
Heillandi og hlýlegur
Sindrastóll með gæru-áklæði
eftir Ásgeir Einarsson.
Húsgagnasmiðurinn
Óskar Lárus Ágústsson
hannaði fermingarskrifborð
um miðbik sjötta áratugarins.
Á hlið borðsins er bókahilla
sem gjarnan var notuð til að
geyma töskur.
Gullfallegur ruggustóll
Sveins Kjarvals úr ljósum viði
með kálfskinni á sessunni.