Fréttablaðið - 13.03.2014, Blaðsíða 59
KYNNING − AUGLÝSING Ferming13. MARS 2014 FIMMTUDAGUR 27
RÁÐ VIÐ SVIÐSSKREKK
Fermingarbarnið vill oft halda
stutta ræðu í veislunni og þakka
gestum fyrir komuna. Það getur
tekið á taugarnar. Galdurinn á bak
við það að tala fyrir framan fjölda
fólks, er að slaka á. Ef kvíðinn sækir
á má reyna eftirfarandi:
- Hummaðu lágt með sjálfum þér.
- Borðaðu banana, það bægir
flökurleika frá.
- Tyggðu tyggjó, það slakar á
kjálkavöðvum.
- Teygðu á handleggjum,
fótleggjum, baki og öxlum.
- Stuttur göngutúr hjálpar til við
að slaka á.
- Hlæðu hátt og innilega, það
slakar á spennu.
- Drekktu appelsínusafa, það
lækkar blóðþrýstinginn.
- Vertu vel undirbúinn og æfðu
það sem þú ætlar að segja.
- Æfðu þig fyrir framan spegil.
Sjá: wikihow.com
FYLLT EGG PASSA VEL
UM PÁSKA
Ef fermingarveislan er fljótlega
eftir hádegi og boðið er upp á
bröns eru svokölluð djöflaegg
fallegur og góður smáréttur
þótt nafnið bendi til annars.
Sérstaklega passar þessi réttur
á páskum. Þetta eru fyllt egg og
vissulega má útfæra fyllinguna
á margvíslegan hátt, til dæmis
bæta í hana rækjum eða öðru
slíku sem er í uppáhaldi hjá
fermingarbarninu. Mjög einfalt
er að gera þennan rétt.
Hlutföllin verða að vera í
samræmi við fjölda fólks en
reikna má með að hálft egg fari á
hvern mann.
Harðsoðin egg, kæld í vatni
Vorlaukur
Majónes
Sítrónusafi
Tabasco-sósa
Svartar ólífur
Eggin eru skorin langsum til
helminga. Eggjarauðan tekin úr
og hrærð saman við majónes,
sítrónusafa og nokkra dropa af
tabasco-sósu. Skerið vorlaukinn
mjög smátt og setjið út í ásamt
smátt skornum ólífum. Skreytið
með ferskri steinselju.
GÖMUL HEFÐ TEKUR BREYTINGUM
Messuvín hefur alla tíð verið hluti af fermingarathöfninni hérlendis.
Hefðina má rekja til fyrstu kvöldmáltíðar Jesú Krists þegar hann lét
brauð og vín ganga á milli postulana.
Notkun þess er því fyrst og fremst táknræn afhöfn enda notast mjög
margir prestar í dag við óáfengt vín eða þrúgusafa í stað áfengra drykkja.
Aðalatriðið er að viðhalda tengingunni við upprunann.
Messuvín var lengi framleitt hjá Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins.
Framleiðslu þess var þó hætt árið 2003 þegar ljóst var að það svaraði
ekki kostnaði að framleiða það lengur. Raunar var messuvín ekki brugg-
að með hefðbundnum hætti heldur sáu starfsmenn verslunarinnar um
að blanda það saman úr rauðvíni og sérríi eða álíka styrktu víni. Eftir að
framleiðslu vínsins var hætt sáu prestar sjálfir um að blanda messuvín,
úr til dæmis rauðvíni og sérríi eða notuðust við rautt púrtvín.
Flestum fermingarbörnum þótti gamla áfenga messuvínið vont á
bragðið en lengi vel supu þau úr kaleiknum. Undanfarna tvo áratugi
hefur orðið sú þróun að fermingarbörn dýfa brauðinu ofan í kaleikinn í
stað þess að drekka úr honum.
JAKKAFÖT Í
ÚRVALI
VERÐ
FRÁ 24990,-