Fréttablaðið - 13.03.2014, Blaðsíða 96
13. mars 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 48
visir.is
Frekari umfjöllun
um Meistaradeildina
Meistaradeildin
BARCELONA - MAN. CITY 2-1
1-0 Lionel Messi (67.), 1-1 Vincent Kompany
(89.), 2-1 Dani Alves (90.+1) . Pablo Zabaleta
fékk sitt annað gula spjald á 78. mínútu.
Barcelona í átta liða úrslit sjöunda árið í röð.
Barcelona vann samanlagt 4-1
PSG - BAYER LEVERKUSEN 2-1
0-1 Sidney Sam (6.), 1-1 Marquinhos (13.), 2-1
Ezequiel Lavezzi (53.).
PSG vann samanlagt 6-1
MIKILVÆGT MARK Lionel Messi og
Cesc Fabregas fagna fyrsta marki Barca
á Nývangi í gær. MYND/AFP
SPORT
HANDBOLTI „Ég er ekki búinn að
skrifa undir neitt en vonandi geng
ég frá mínum málum á næstunni.
Viðræðurnar eru langt komnar. Ég
get staðfest það,“ segir landsliðs-
maðurinn Vignir Svavarsson en frá
því var greint í dönskum fjölmiðlum
í gær að hann væri á leið til Midt-
jylland.
Það lið er búið að rúlla dönsku B-
deildinni upp í vetur og spilar því í
deild þeirra bestu næsta vetur. Liðið
stóð sig einnig vel í bikarkeppninni
og fór þar alla leið í undanúrslit en
tapaði fyrir liði Arons Kristjánsson-
ar, Kolding.
Samningur Vignis við þýska
félagið Minden er að renna út. Árin
tvö þar hafa ekki gengið sem skyldi
hjá línumanninum sterka. Hann
hefur verið talsvert meiddur og lítið
fengið að spila þess á milli.
„Þetta hefur verið undarlegur
tími hjá Minden með öll meiðslin og
spiltímann. Þetta hefur ekki alveg
verið eins og ég ætlaði mér en við
fjölskyldan höfum engu að síður
haft það gott hérna,“ segir Vignir
en hann ræddi ekkert við félagið um
neitt framhald á sínum samningi þar.
Vignir hóf atvinnumannsferil
sinn hjá Skjern í Danmörku þar
sem hann gerði það gott. Hann er
því alls ekki mótfallinn því að fara
þangað aftur.
„Ég átti þrjú frábær ár í Skjern
og leið rosalega vel þar. Ef við
förum til Danmerkur þá er það
svo sannarlega ekkert til að
kvarta yfir. Við værum alveg til
í það.“
Vigni líst vel á það sem hann
hefur heyrt frá forráðamönnum
félagsins.
„Þeir eru ekkert með of háleit
markmið en þau eru raunhæf. Þeir
hafa sett upp gott plan um hvernig
þeir vilja byggja þetta upp. Mér
leist vel á það sem þeir hafa fram
að færa og þetta er spennandi
kostur. Vonandi klárast þetta sem
fyrst því ég þarf að fara að ganga
frá mínum málum hér í Þýska-
landi ef ég er að flytja úr landinu.“
henry@frettabladid.is
Vignir fer líklega til Danmerkur
Viðræður landsliðsmannsins við danska félagið Midtjylland eru langt komnar.
NÆSTA SKREF Vignir lék í þrjú ár með
Skjern í Danmörku á sínum tíma.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
KÖRFUBOLTI Það er óvissa með framhaldið hjá þjálfaranum litríka Teiti
Örlygssyni.
Hann er að klára sitt síðasta tímabil hjá Stjörnunni og hefur upp á síðkastið
verið sterklega orðaður við uppeldisfélag sitt, Njarðvík, en það
er í leit að nýjum þjálfara þar sem Einar Árni Jóhannsson er
að hætta með liðið.
„Ég veit ekki hvað ég geri. Ég get alveg viðurkennt að
mig er farið að langa í smá frí en ég þori samt
ekki að lofa neinu á þessum tímapunkti,“ segir
Teitur, en hann hefur heyrt frá Njarðvíkingum.
„Ég vil ekki lýsa því yfir að ég ætli að taka
mér frí ef það gengur síðan ekki eftir. Þá
hljóma ég eins og alþingismennirnir okkar. Ég
mun bara skoða þessi mál í rólegheitum
eftir tímabilið.“ - hbg
Framtíðin óráðin hjá Teiti Örlygssyni
Sun.16. mars kl.13:30
MAN. UTD.-LIVERPOOL
Sun.16. mars kl.16:00
TOTTENHAM-ARSENAL
Í opinni dagskrá á dominoshelgin.is
FÓTBOLTI Tógómaðurinn Farid Zato
mun eftir allt sem á undan er gengið
síðustu daga leika með KR í Pepsi-
deildinni í sumar en Íslandsmeistar-
arnir í samvinnu við Þórsara sendu
frá sér sameiginlega yfirlýsingu í gær
sem í stóð:
„Félögin hafa átt í viðræðum
undanfarna daga um lausn málsins
og er niðurstaða þeirra að leikmaður-
inn semji við KR og verði leikmaður
þess á komandi sumri. Viðræðurnar
fóru fram í fullri vinsemd félaganna.“
Málið hófst þegar inn á borð til
KSÍ komu samningar undirritaðir af
Farid frá bæði Þór og KR með beiðni
um félagaskipti. Harðbannað er sam-
kvæmt lögum KSÍ og FIFA að undir-
rita samninga við tvö lið eða fleiri en
í grein 8,2 í regluverki KSÍ segir:
„Leikmann, sem gerir samninga
við fleiri en eitt félag sem ná yfir
sama tímabil, má setja í keppnisbann
af framkvæmdastjóra KSÍ þar til
málið hefur verið leyst.“
Málið virðist nú leyst, svo
framarlega sem Farid hefur sjálfur
samþykkt að fara í KR en félögin geta
augljóslega ekki tekið þá ákvörðun
fyrir hann. - tom
Þór og KR fundu lausn á Farid-málinu
FURÐULEGT Mál Farids er sérstakt en
lausn er fundin. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Pavel Ermolinski hefur
sett nýtt met í úrvalsdeild karla
með því að ná sjö þrennum í
Dominos-deild karla í vetur en um
leið var hann einnig fyrstur til að
ná þrennu í þremur leikjum í röð og
sá sem nær þrennum með fæstra
daga millibili. Hver þrenna kappans
tryggir honum ennfremur enn betri
stöðu í efsta sæti listans yfir flestar
þrennur í sögu úrvalsdeildar karla
en þær eru núna orðnar fimmtán.
Það sem vekur þó mikla athygli
er gríðarlegur munur á framlagi
Pavels Ermolinskij eftir því hvort
hann spilar í sínu uppáhalds númeri,
fimmtán, eða treyju númer níu
þegar hann gaf Martin Hermanns-
yni eftir treyju númer fimmtán og
fékk hans treyju í staðinn.
Báðir vilja þeir Pavel og Martin
spila í treyju fimmtán eins og
Fréttablaðið fjallaði um fyrr í
vetur og komust þeir að samkomu-
lagi um að skipta við hvern tap-
leik. Tapleikirnir hafa aðeins verið
tveir, í bikarnum á móti Njarðvík
í nóvember og í deildinni á móti
Grindavík í fyrsta leik ársins 2014.
Pavel skipti því úr fimmtán í níu í
nóvember og svo úr níu í fimmtán
í janúar.
Þegar tölfræði Pavels í deildinni
er skoðuð eftir því í hvaða treyju
hann spilar kemur í ljós gríðar-
legur munur á framlagi hans og í
raun hefur Pavel verið á rosalegri
siglingu eftir að hann komst aftur
í treyju fimmtán.
Pavel hefur verið með þrennu
í síðustu þremur leikjum sínum
og er með þrennu að meðaltali í
undan förnum fimm leikjum (14,6
stig – 11,2 fráköst – 11,2 stoð-
sendingar). KR hefur að sjálfsögð
unnið þá alla enda er Pavel illvið-
ráðanlegur á góðum degi. Það eru
aðeins átta leikir síðan hann komst
aftur í treyju fimmtán eftir skell
á móti Grindavík í DHL-höllinni.
Fyrsti leikurinn á móti ÍR var ekki
einn af þeim bestu í uppáhalds-
treyjunni í vetur en eftir súper-
leik í sigri á Snæfelli (28 stig, 12
fráköst og 12 stoðsendingar) hefur
Pavel næstum því alltaf verið á
þrennuvaktinni. Pavel var ekki
nálægt þrennu í einum af síðustu
sjö leikjum en þá gerði hann út um
leikinn með því að skora sigur-
körfuna á móti Stjörnunni.
Pavel er með þriggja þrennu for-
skot á Haukamanninn Emil Barja
og því þegar búinn að tryggja
sér „þrennutitilinn“ þegar tvær
umferðir eru eftir alveg eins og
KR-liðið er þegar búið að tryggja
sér deildarmeistaratitilinn. Næst
á dagskrá er að fara að grafa upp
þrennumetin í úrslitakeppninni
þar sem Pavel og KR-liðið er lík-
legt til afreka.
ooj@frettabladid.is
Allt annar Pavel í númer
Pavel Ermolinski hefur sett ófá þrennumetin á þessu tímabili en það er mikill munur á
frammistöðu leikstjórnanda deildarmeistara KR-liðsins eft ir því í hvaða númeri hann spilar.
ALLT Í ÖLLU Í KR-LIÐINU Pavel Ermolinski hefur spilað vel með KR í vetur og ekki
síst eftir að hann endurheimti treyju númer fimmtán í janúar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
TREYJUÁHRIFIN Á
PAVEL ERMOLINSKI
LEYNA SÉR EKKI
TVÖFALDAR ÞRENNUR +5
Í treyju númer fimmtán: 6 þrennur í 11 leikjum
Í treyju númer níu: 1 þrenna í 9 leikjum
STIG Í LEIK +2,3
Í númer fimmtán: 13,6
Í númer níu: 11,6
FRÁKÖST Í LEIK +1,9
Í númer fimmtán: 12,3
Í númer níu: 10,3
STOÐSENDINGAR Í LEIK +2,4
Í númer fimmtán: 8,7
Í númer níu: 6,3
FRAMLAG Í LEIK +6,3
Í númer fimmtán: 26,2
Í númer níu: 19,9
➜ Þrennumetin hans
Pavels í vetur
Flestar þrennur á einu tímabili 7
Þrennur í flestum leikjum í röð 3
Fæstir dagar á milli þrenna 4
Flestar þrennur í sögu úrvalsdeildar karla 15ÓL 2014 Erna Friðriksdóttir varð
í gær fyrst íslenskra kvenna
til þess að ljúka keppni í alpa-
greinum á Vetrarólympíuleikum
fatlaðra þegar hún hafnaði í 9.
sæti í svigkeppni sitjandi kvenna
í Sotsjí. Erna datt reyndar í
seinni ferðinni sinni en fór ekki
úr braut og komst í markið. - óój
Erna níunda
SÖGULEGT Erna Friðriksdóttir sést hér
eftir svigkeppnina í gær. MYND/ÍF/JÓN BJÖRN