Fréttablaðið - 13.03.2014, Blaðsíða 64
KYNNING − AUGLÝSINGFermingar FIMMTUDAGUR 13. MARS 201432
Sannkölluð sprenging hefur orðið í fjölda borgaralegra ferminga í ár en þeim fjölgar úr
206 í 304 eða um 47,6 prósent. Mikið
vatn hefur runnið til sjávar frá fyrstu
borgaralegu fermingu Siðmenntar
árið 1998 þegar 16 börn fermdust hjá
lífsskoðunarfélaginu.
„Ég er ekki viss hvað veldur
þessari fjölgun í ár. Einhver athugaði
hvort árgangurinn væri óvenju stór
en það var ekki, en eflaust spilar
margt inn í,“ segir Jóhann Björnsson
heimspekingur, grunnskólakennari
og kennslustjóri Siðmenntar. „Það
er alltaf að verða sjálfsagðara hjá
unglingum að velja hvort þau ferm-
ist trúarlega, borgaralega eða bara
alls ekki. Krakkar skera sig þannig
ekki lengur úr þó þau velji eitthvað
annað,“ segir Jóhann en í vor
verður fermt borgaralega á vegum
Siðmenntar í 26. sinn. „Við höfum
einnig fengið mikla umfjöllun eftir
að Siðmennt var skráð lífsskoðunar-
félag og það gæti spilað inn í.“
En af hverju kjósa krakkar að
fermast borgaralega? „ Ástæðurnar
eru misjafnar. Í flestum tilvikum
koma krakkar frá heimilum sem
standa utan trúfélaga eða trúa ekki á
guð. Æ algengara er að börn sem til-
heyra fjölskyldum sem eru í trúfélög-
um komi til okkar þar sem þau vilja
taka þátt í því námskeiði sem við
bjóðum upp á en svo er alltaf einn
og einn sem sækir bæði fræðslu hjá
okkur og hjá kirkjunni. Það eru börn
sem hafa sérstakan áhuga á því að
pæla í trúarlegum málefnum og
lífsskoðunum,“ lýsir Jóhann.
Siðmennt heldur 12 vikna nám-
skeið fyrir þau börn sem fermast
borgaralega. „Við erum fyrst og
fremst að þjálfa krakkana í að
hugsa gagnrýnið og á siðferðilegum
nótum, að taka afstöðu í siðferði-
legum efnum og geta borið ábyrgð
á ákvörðunum sínum. Síðan
beitum við þessari hugsun áfram
við ýmis viðfangsefni. Þá bjóðum
við upp á ýmsa fræðslu inná milli,
til dæmis um skaðsemi vímuefna,
samskipti kynjanna, fordóma og
fjölmenningu.
Athafnir Siðmenntar hafa aldrei
verið fleiri en í ár en þær verða níu
samtals. Þær verða haldnar í vor í
Háskólabíói, Salnum í Kópavogi,
Hofi á Akureyri, í Hallormsstaða-
skógi, á Flúðum og í fyrsta sinn á
Höfn í Hornafirði.
Sprenging í fjölda borgaralegra
ferminga Siðmenntar árið 2014
Borgaralegar fermingar á vegum Siðmenntar verða um 47 prósent fleiri í ár en í fyrra. Um 304 ungmenni eru skráð í borgaralega fermingu í
vor en í fyrra fermdust 206 unglingar borgaralega. Ellefu námskeið hafa verið haldin í vetur og athafnir verða níu í vor, víða um land.
Borgaraleg ferming er hátíðleg en helst má líkja henni við útskrift úr skóla.
Jóhann
Björnsson
1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014
FJÖLDI FERMINGARBARNA HJÁ SIÐMENNT FRÁ 1989 TIL 2014
350
300
250
200
150
100
50
0
16 11
16 15
26 20
2
9
27
5
0
4
9
57 49
73 4
9
9
0 85
93
12
8
10
9
112
12
0
162
195
214
2
0
6
30
4
fjöldi barnar