Fréttablaðið - 13.03.2014, Page 58

Fréttablaðið - 13.03.2014, Page 58
KYNNING − AUGLÝSINGFerming FIMMTUDAGUR 13. MARS 201426 Marsípanterta með jarðarberja- og súkkulaðifyllingu, Botnar (Uppskriftin passar í 30x20 cm form. Til að fá ofnskúffustærð þarf að tvöfalda.) 9 egg 300 g sykur 300 g hveiti 2 tsk. lyftiduft Þeytið egg og sykur saman þar til létt og ljóst. Sigtið hveiti og lyftiduft saman við í nokkrum skömmtum og hrærið rólega saman við eggjablönduna. Smyrjið form í stærðinni 30x20 cm og hellið deiginu í þrjú slík form. Bakið við 180°C í um það bil 15 mínútur. Jarðarberjasúkkulaðirjómi 4 dl rjómi 4 blöð matarlím 320 g jarðarber í dós (ein stór dós) 150 g súkkulaðispænir Leggið matarlímið í bleyti, bræðið það yfir vatnsbaði og kælið aðeins. Sigtið jarð- arberin frá vökvanum í dósinni en passið að geyma vökvann. Skerið jarðarberin smátt og blandið saman við þeyttan rjómann ásamt súkkulaðispónum. Hrærið matarlímið saman við rjómablönduna þegar það hefur kólnað og látið stífna í kæli. Makkarónur og jarðar- berjarjómi 250 g makkarónur (1 poki) 1 dl safi af jarðarberjunum 2,5 dl rjómi 2 msk. jello-jarðarberjaduft Myljið makkarónurnar niður í mylsnu og blandið jarðarberjasafanum saman við. Þeytið saman rjóma og jello-duft í annarri skál. Annað 3 dl rjómi (til að þekja kökuna áður en marsípanið fer yfir hana). 1 kg marsípan, dugar bæði til að þekja kökuna og í skrautið. Setjið einn botn á kökudisk og vætið hann aðeins með smá jarðarberjasafa, smyrjið svo makkarónunum yfir botninn og setjið jello-jarðarberjarjómann yfir það. Setjið næsta botn ofan á. Vætið hann einnig með smá jarðarberjasafa. Dreifið svo jarðar- berjasúkkulaðirjóma yfir. Að lokum er þriðji og síðasti botninn settur yfir. Vætið hann líka með jarðarberjasafa. Þekið svo alla kökuna með þeyttum rjóma. Fletjið út marsípan og þekið kökuna með því. Gott er að nota silíkonmottu undir. Skreytið að vild. „Ég hef alltaf verið að gera eitt- hvað í höndunum og þegar ég var yngri fannst mér gaman að föndra og mála. Bakstursáhuginn kvikn- aði svo í kringum eins árs afmæli sonar míns sem er að verða fimm ára. Þá gerði ég mína fyrstu sykur- massaköku og þá varð ekki aftur snúið. Ég fór að setja inn myndir af kökunum mínum á Facebook og var í kjölfarið hvött til að gera sérstaka síðu í kringum þær sem ber einfaldlega nafnið Kökurnar hennar Siggu. Í dag er þetta mitt helsta áhugamál. Sigríður segir kökuskreytingar vaxa mörgum í augum. „Þetta er þó minna mál en margur heldur. Það eru til allskyns áhöld sem auð- velda verkið og nota ég til dæmis sérstök form til að gera laufblöð. Rósirnar bý ég til úr mörgum litlum marsípanhringjum sem allir geta gert,“ segir Sigríður en á síðunni hennar er að finna leið- beiningar skref fyrir skref. Ann- ars vegar undir: „Gerð marsípan- rósa skref fyrir skref“ og svo undir „Marsípankaka, jarðarberja- og súkkulaðifylling“. „Það er svo gott að sjá hvernig þetta lítur út lag fyrir lag,“ segir Sigríður en hún er auk þess dugleg að nota YouTube. „Þar er hægt að læra heilan helling.“ Sigríður hefur keypt ýmis áhöld, matarliti og skraut í versluninni Allt í köku en annað fæst í hefð- bundnum matvöruverslunum. Hún er persónulega hrifnari af marsípan- en sykurmassakökum. „Það er hins vegar gott að vinna með sykurmassann og því nota ég hann oft í skraut.“ Hér gefur Sigríður uppskrift að uppáhalds veislukökunni sinni. Hún er hjúpuð og skreytt með marsípani og sérstaklega bragðgóð Auðveldara en margur heldur Sigríður Ásta Klörudóttir er sannkallaður ástríðubakari og kann að gera allskyns kúnstir með sykurmassa og marsípan. Hún segir minna mál en margur heldur að útbúa fagurskreytta fermingarköku og gefur hér góð ráð. Sigríður notar ýmis áhöld til að auðvelda verkið. Hér má sjá form til að gera marsí- panlaufblöð sem fæst í Allt í köku. Mótið hefur fram og bakhlið. Marsí- panið er sett á milli og mótinu þrýst saman. Eins er hægt að nota ýmiskonar stimpla sem er hægt að stimpla á út- flatt marsípan. Rósirnar eru skreyttar með silfurdufti. Nánari lýsingu á gerð kökunnar er að finna á Facebook-síðu Sigríðar sem ber heitið Kökurnar hennar Siggu. Sandra Lind Þrastardóttir 20% afsláttur TILVALIN FERMINGARGJÖF sólgleraugu Sigríður rúllar marsípanlengjum upp úr glimmerdufti. Samskeyti kökunnar eru svo falin með skraut- borða. Það má líka gera með marsípansnúru. MYND/STEFÁN
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.