Fréttablaðið - 13.03.2014, Page 56
KYNNING − AUGLÝSINGFermingar FIMMTUDAGUR 13. MARS 201424
Mig langaði til að stíga frá þessu hefð-bundna bleika og bláa þema sem oft er ríkjandi í fermingarskreyting-
um en blanda frekar saman, nýta gamalt og
skreyta borðið með hlutum sem tengjast ferm-
ingarbarninu,“ útskýrir Soffía Dögg Garðars-
dóttir blómaskreytir en hún heldur úti síðunni
Skreytum hús.
Til að gera veisluborðið persónulegt sting-
ur Soffía upp á að safna saman ólíkum kerta-
stjökum frá ættingjum og vinum og hvítu leir-
taui. Til að fá hækkun á borðið segir Soffía
sniðugt að raða upp bókum eða nota fallega
kassa.
„Í þessu tilfelli notaði ég tveggja hæða disk.
Á borðið notaði ég síðan dúk með vintage
script-munstri og pappírskúlur sem ég fékk í
Púkó og Smart. Undir glerkúpla setti ég gamla
barnaskó og upprúlluð bókarblöð og hengdi
talnaband með krossi yfir. Maríustyttan er
trúartákn og fallegt að nota á fermingarborð.“
Á síðunni www.skreytumhus.is má forvitn-
ast nánar um skreytingar Soffíu Daggar. Gaman er að skreyta borðið með hlutum sem tengjast fermingarbarninu, svo sem gömlum barnaskóm. Upprúlluð bókarblöð undir glerkúpli eru fallegt skraut.
Gamaldags sjarmi og samtíningur
Skreytingar á fermingarborðum má gera persónulegar og sjarmerandi með því að nýta það sem til er. Gamlir munir sem tengjast
fermingarbarninu setja fallegan svip á borðið og þá má fá leirtau og kertastjaka að láni hjá stórfjölskyldunni. Soffía Dögg
Garðarsdóttir blómaskreytir og annálaður fagurkeri skreytti borð fyrir blaðið en hún heldur úti síðunni Skreytum hús.
Dúkinn fékk
Soffía í Púkó
og Smart og
lituðu pappírs-
kúlurnar einnig.
Maríustyttuna er
fallegt að nota á
fermingarborð.
Soffía Dögg
Garðarsdóttir
blómaskreytir
segir persónu-
legt að skreyta
borðið með
gömlum hlutum
og samtíningi.
*Eitt framlag fyrir hvert fermingarbarn
Við bjóðum
góða þjónustu
Fermingargjöf
fyrir framtíðarfólk
Með honum geta foreldrar, ömmur, afar, frændur
og frænkur tryggt fermingarbarninu veglegan
sjóð sem losnar við 18 ára aldur, um það bil
þegar næstu stóru áfangar í lífinu blasa við.
Hægt er að stofna og leggja inn á
Framtíðarreikning í útibúum Íslandsbanka.
Framtíðarreikningur Íslandsbanka
er góð fermingargjöf
Þeir sem leggja fermingarpeningana
sína, 30.000 kr. eða meira, inn á
Framtíðarreikning Íslandsbanka geta
fengið 5.000 kr. í mótframlag inn á
Framtíðarreikninginn sinn.*
Leggðu fermingarpeningana inn
á Framtíðarreikning