Fréttablaðið - 05.04.2014, Blaðsíða 40
FÓLK|HELGIN
Hvað er það sem þú gerir alltaf um
helgar? Ég reyni mitt besta til að
sofa út og slaka á. Þegar Liverpool
spilar í enskunni fylgist ég með
því; stundum horfi ég á leikina
eða bara fylgist með lýsingum
á netinu. Oft þarf ég að fara yfir
ritgerðir og önnur verkefni, en
ég reyni að halda því í lágmarki.
Svo hitti ég fjölskyldu og vini, fer í
partí eða út á lífið. Oft fer ég líka í
sumarbústað fjölskyldunnar.
Hvað ætlar þú að gera sérstakt um
þessa helgi? Ég vona að verkfallið
klárist svo að ég geti byrjað að
kenna eftir helgi. Ætli helgin fari
þá ekki í undirbúning fyrir næstu
viku. Það er ýmislegt sem þarf að
gera á þeim stutta tíma sem er
fram að prófum. Ef ekki hefur leyst
úr verkfallinu verður helgin jafn
skrítin og undanfarnar vikur. Svo
fer ég í fermingarveislu á sunnu-
daginn, en ætli gjöfin fari ekki eftir
stöðu mála í kjaradeilunni, svo að
fermingarbarnið hlýtur að vonast
eftir samningum!
Hvar finnst
þér best að vera
um helgar? Í sumar-
bústað sem foreldrar
mínir eiga í sameiningu
með Elsu móðursystur minni
og hennar manni. Bústaðurinn
er norður í Hrútafirði, í landi
Mela, og stendur við stórkostlegt
árgljúfur. Þar getur orðið kalt á
veturna en á sumrin myndast þar
algjör pottur í skjólinu sunnan við
húsið svo að freknukall eins og ég
verður stöðugt að bera á sig vörn.
Vakirðu lengur um helgar og þá
við hvað? Ég vaki yfirleitt lengi
um helgar. Stundum horfi ég á
sjónvarp með vinum eða spjalla,
stundum vaki ég við lestur eða er
á netinu. Svo fer ég líka stundum á
djammið. Og kemur fyrir að ég fari
yfir ritgerðir fram á nótt.
Ertu árrisull eða sefur út um helg-
ar? Ég sef út, nema nauðsynlegt sé
að vakna snemma.
Hver er draumamorgunverðurinn?
Spælt egg, steiktir sveppir og
franskt horn.
Hvernig er dæmigert laugardags-
kvöld í þínu lífi? Ég sit og spjalla
við vini og/eða horfi á sjónvarp. Í
kvöld hefst Alla leið í sjónvarpinu
og þá er ég auðvitað límdur við
skjáinn að dást að eigin fegurð og
visku.
Ertu með nammidag og hvert er
uppáhaldssælgætið þitt? Eins og
útlitið bendir til eru nammidag-
arnir heldur margir. Ég fæ árlega
Mars-tarnir sem endast í nokkra
daga, en besta sælgætið er líklega
Galaxy Caramel.
Hvað maularðu í sjónvarpssófan-
um? Mér finnst saltstangir voða
góðar og svo er það súkkulaði.
Heldurðu hvíldardaginn heilagan?
Ef í því felst að hvílast eins og
hægt er, þá er svarið já.
Annars geri ég oft eitt-
hvað sem flokkast
undir vinnu á sunnu-
dögum.
Ferðu til kirkju eða
hlustar á útvarpsmess-
una á sunnudögum? Það er
afar sjaldgæft.
Hvað verður með sunnudags-
kaffinu og með hverjum drekkur þú
það? Ég drekk ekki kaffi, en ætli
fermingarveislan verði ekki sunnu-
dagskaffið að sinni. Ég hlakka til
að hitta fermingarbarnið og fjöl-
skyldu hans, sem eru gamlir vinir.
Þá er alltaf mikið hlegið.
Til hvers eru helgarfrí, að þínu
mati? Til að kúpla sig frá amstri
hverdagsins og gera eitthvað allt
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn
Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
AÐDÁUN
„Í kvöld hefst Alla leið í sjón-
varpinu og þá er ég auðvitað
límdur við skjáinn að dást að
eigin fegurð og visku.“
POLLAPÖNK ÁFRAM
HELGIN Dönsku- og íslenskukennarinn Reynir Þór Eggertsson hefur verið í
verkfalli undanfarnar þrjár vikur. Hann býr yfir sérgáfu í Eurovision-söngva-
keppninni og mætir til leiks í Eurovision-þættinum Alla leið á RÚV í kvöld.
SIGURVISS Reynir Þór Eggertsson er viss um að Pollapönk komist upp úr forkeppni Eurovision og endi í einu af tíu efstu sætunum í
aðalkeppninni. MYND/GVA
HELGARSPJALLIÐ | REYNIR ÞÓR EGGERTSSON
annað en hina dagana. Ég vil gjarn-
an nota þau í slökun og ferðalög.
Hvað ertu búinn að gera af þér í
kennaraverkfallinu? Ég hef verið í
kynningarnefnd fyrir Félag fram-
haldsskólakennara. Við höfum
gefið út Verkfallspóstinn sem er
daglegt fréttabréf. Þar fyrir utan
sat ég aðalfund FF þar sem ég tók
sæti í nýrri stjórn. Svo tókum við
upp Alla leið í síðustu viku. Þannig
að ég hef ekki setið auðum hönd-
um, en síðasta vika hefur verið
erfið, svona andlega.
Hver vinnur Eurovision og hvernig
mun Pollapönki vegna þegar út er
komið? Margir spá Armeníu sigri,
en ég vona að það verði Svíþjóð
eða Ungverjaland – svona fyrir-
fram – og ætla að spá Ungverjum
sigri. Pollapönk á eftir að standa
sig með miklum sóma. Ég er viss
um að þeir komast upp úr for-
keppninni og þá ættu þeir að kom-
ast inn á topp 10. Þeir eru allavega
í miklu uppáhaldi hjá mér!
■ thordis@365.is
Nicovel®lyfjatyggigúmmí
VILTU HÆTTA
AÐ REYKJA?
Nicovel Fruit og Nicovel Mint lyfjatyggigúmmí, innihalda 2 mg af
nikótíni sem nikótín resinat. Nicovel er ætlað reykingamönnum 18 ára
og eldri. Ekki má nota Nicovel ef um er að ræða ofnæmi fyrir nikótíni
eða einhverju öðru innihaldsefni tyggigúmmísins eða ef þú reykir ekki.
Leitið ráða hjá lækni áður en Nicovel er notað ef: þú hefur nýlega fengið
hjartaáfall eða heilablóðfall, þú hefur fengið ofnæmisviðbrögð (ofsabjúgur)
eða útbrot með kláða (ofsakláði). Einnig ef þú ert með: brjóstverk,
hjartakvilla sem hefur áhrif á hraða eða takt hjartsláttar, ómeðhöndlaðan
háþrýsting, lifrarsjúkdóm, nýrnasjúkdóm, sykursýki, ofvirkan skjaldkirtil,
æxli í nýrnahettumerg (krómfíklaæxli), magasár eða bólgu í vélinda.
Einstaklingar undir 18 ára aldri ættu ekki að nota Nicovel nema því sé
ávísað af lækni. Viðeigandi skammtur fyrir fullorðna getur haft mikil
eituráhrif eða verið banvænn fyrir lítil börn. Þungaðar konur og konur
með barn á brjósti skulu eingöngu nota Nicovel í samráði við lækni.
Skammtar eru einstaklingsbundnir og valdir út frá nikótínþörf. Yfirleitt
er nóg að nota 8-12 tyggigúmmí á dag. Hámarksskammtur er 24 stykki
á dag. Nánari upplýsingar um notkun er að finna í fylgiseðli lyfsins.
Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið.
Markaðsleyfishafi: Orifarm Generics A/S. Umboð á Íslandi: Icepharma hf.
Lynghálsi 13, 110 Reykjavík.
NEY140201
til 6. apríl