Fréttablaðið - 05.04.2014, Blaðsíða 84
5. apríl 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 48
Brandarar
Teikningar og texti: Bragi Halldórsson
90
Róbert var farið að leiðast að vera einn uppi á fjöllum og saknaði vina
sinna. Svo var farið að hlýna og komið smá vor í loftið. „Nú held ég að
það sé kominn tími til að halda til byggða,“ sagði hann við sjálfan sig.
En það var ekki svo auðvelt. Núna þegar farið var að hlýna var leiðin
niður úr fjöllunum orðin öll eitt forarsvað og því ekki auðvelt að rata
í gegnum alla þessa drullu.
Getur þú hjálpað Róbert að rata niður úr fjöllunum í gegnum þetta
moldardrullu völundarhús og aftur til vina sinna?
Hvað eruð þið gamlar og í
hvaða skóla/skólum eruð þið?
Báðar: „Við erum 10 ára og
erum í Brekkuskóla.“
Þekktust þið áður en þið byrj-
uðuð að æfa leikritið Tuma
tímalausa? Saga Margrét: „Já,
við erum bekkjarsystur.“
Rebekka Hvönn: „Við erum
búnar að vera saman í skóla í
fimm ár og vorum líka saman í
leikskóla.“
Leikið þið Tuma alveg eins?
Saga Margrét: Nei, eiginlega
ekki, við segjum auðvitað það
sama en við leikum ekki eins.“
Rebekka Hvönn: „Samt næst-
um því– veit ekki alveg.“
Hvað kom til að þið tókuð þátt
í þessu leikriti? Rebekka Hvönn:
„Mig langaði bara að prófa eitt-
hvað nýtt, ég æfi dans og langaði
líka að leika.“
Saga Margrét: „Mig hefur alltaf
langað að leika svo ég fór í prufur
og fékk hlutverkið.“
Var mikið verk að læra allt sem
þið þurfið að segja á sviðinu?
Saga Margrét: „Kannski fyrst, en
það lagaðist smátt og smátt.“
Rebekka Hvönn: „Ég hélt það yrði
erfitt en það er ekki það mikið
mál.“
Syngið þið í leikritinu? Saga
Margrét: „Já, við syngjum þrjú
lög.“
Rebekka Hvönn: „Einsöng, mér
finnst það rosalega gaman.“
Er gaman að standa á sviði?
Saga Margrét: „Já það er æðis-
legt!“
Hafið þið leikið áður? Rebekka
Hvönn: „Já, í skólanum.“
Saga Margrét: „Bara í skólaleik-
ritum.“
Tefur leikritið fyrir skólalær-
dómnum? Rebekka Hvönn:
„Ekki mikið.“
Saga Margrét: Nei, eiginlega
ekki því það er ekki heimalær-
dómur í Brekkuskóla, en ég æfi
líka dans og íshokkí og hef ekki
farið mikið á æfingar.
Eruð þið farnar að spá í
hvað þið ætlið að verða?
Rebekka Hvönn: „Stærsti
draumur minn er að verða fræg
söngkona, ég elska að syngja.“
Saga Margrét: LEIKKONA!
- gun
Alltaf langað að leika
Saga Margrét Sigurðardóttir Blöndal og Rebekka Hvönn Valsdóttir skiptast á að leika
smalann Tuma sem fer á fætur við fyrsta hanagal, í leikritinu Tumi tímalausi sem
sýnt er í Hofi á Akureyri. Sýningin byggir á Vísnaplötum Gunnars Þórðarsonar.
Í GERVI TUMA Þær sitja yfir ánum til skiptis inni í Fagradal og láta hugann líða svo
langt um dal og fjöll. MYND/LEIKFÉLAGIÐ GRÍMAN
Þrír menn voru úti á báti. Það gerði
mikinn storm og báturinn strandaði.
Þegar lægði skolaði þeim upp á strönd-
ina. Þeir gengu um fjöruna og fundu
þar flösku. Þeir tóku hana upp, drógu
úr henni tappann og samstundis skaust
andi upp úr henni. Andinn sagði: „Þar
sem þið hafið frelsað mig úr flöskunni
gef ég hverjum ykkar eina ósk.“
Fyrsti maðurinn sagði:
„Ég sakna konunnar minnar og barna-
barnanna. Ég vildi að ég væri kominn
heim.“ Púff! Hann hvarf!
Næsti maður sagði:
„Þetta er æðislegt! Ég vildi að ég væri
kominn til Havaí og lægi í sólbaði á
ströndinni með gómsæta máltíð til að
gæða mér á.“
Púff. Hann var líka horfinn!
Sá þriðji leit í kringum sig og sagði:
„Veistu, mér finnst svo einmanalegt
hérna, ég sakna félaga minna óskap-
lega. Ég vildi að þeir væru komnir
aftur!“
SAGA MARGRÉT OG
REBEKKA HVÖNN
Þær syngja og leika
á sviðinu í Hofi milli
þess sem þær eru í
skólanum.