Fréttablaðið - 15.04.2014, Page 4
15. apríl 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4
34 prósentum fleiri fyrirtæki eða félög
störfuðu við hugbúnaðargerð árið
2013 en árið 2008.
Árið 2013 voru þau 576 en fimm
árum áður voru þau 440 talsins.
UMHVERFISMÁL Samtök ferðaþjón-
ustunnar (SAF) hvetja verkefnis-
stjórn rammaáætlunar til að taka
ekkert þeirra svæða sem nú eru í
verndarflokki til endurskoðunar
í 3. áfanga rammaáætlunar. Það
að svæði hafi verið sett í verndar-
flokk á að tryggja að svæði verði
ekki nýtt til orkuframleiðslu enda
geti mörg þessara svæða boðið upp
á mikla náttúruupplifun og upp-
byggingu tengda ferðamennsku.
Þetta er á meðal niðurstaðna
aðalfundar SAF sem haldinn var
í síðustu viku og kemur fram
í ályktun. Aðalfundurinn mót-
mælir jafnframt harðlega öllum
til raunum orkufyrirtækja og
opinberra stofnana, þ.m.t. Orku-
stofnunar og umhverfis- og auð-
lindaráðuneytisins, til að fá verk-
efnisstjórnina til að taka upp
svæði í verndarflokk og meta á
nýjan leik. Samtökin telja að „með
framferði sínu hafa þessir aðilar
að engu áralangar tilraunir til að
eyða óvissu um afdrif fjölmargra
náttúruperla og sátt um vernd
þeirra gegn orkunýtingu“.
Grímur Sæmundsen, formaður
Samtaka ferðaþjónustunnar, segir
að kjarninn í ályktun SAF sé að
ferðaþjónustan er að vekja athygli
á mikilvægi almennrar náttúru-
verndar, bæði fyrir þjóðina en
ekki síður ferðaþjónustuna sem
atvinnugrein. Grímur segir mjög
halla á ferðaþjónustuna í opinberri
umræðu sem sé ekki í neinu sam-
hengi við mikilvægi hennar fyrir
þjóðina sem stærstu gjaldeyris-
skapandi atvinnugreinar landsins.
„Það að láta sér detta í hug að
hefja orkuvinnslu í Kerlingar-
fjöllum og á Torfajökuls svæðinu
í þessu samhengi kemur ekki
til greina að okkar mati,“ segir
Grímur og hnykkir á því að í til-
lögum um virkjanakosti sem
bárust verkefnisstjórninni sé verið
að fjalla um fjöregg ferðaþjón-
ustunnar þegar til framtíðar er
litið.
„Langflestir ferðamenn koma
til Íslands vegna náttúru lands-
ins, fyrst og síðast. Náttúran er
sú vara sem við erum að selja
umfram annað. Það er alltaf talað
um nýtingu í samhengi við orku
og iðnað, en nýting felst í fleiru
en þessu og það verður að horfa
á nýtingarmöguleika þjóðarinnar
á auð lindum sínum í samhengi
við þróun síðustu ára og fram-
tíðarhorfur ferðaþjón ustunnar.
Kannski hefur vöxtur ferðaþjón-
ustunnar verið svo hraður að
menn hafa ekki kveikt á þeim nýju
hagsmunum sem komnir eru til
sögunnar,“ segir Grímur.
svavar@frettabladid.is
Svæði í verndarflokki verði
látin vera af stjórnvöldum
Samtök ferðaþjónustunnar mótmæla tilraunum stjórnvalda og orkufyrirtækja til að fá svæði í verndarflokki
endurmetin í 3. áfanga rammaáætlunar. Verkefnisstjórn er hvött til að virða tillögur um endurmat að vettugi.
VIÐSKIPTI Elisabeth Aspaker, sjávar-
útvegsráðherra Noregs, vonast
til þess að ný tækni sem íslenska
hátæknifyrirtækið Valka hefur
þróað geti orðið veigamikill þáttur
í að gera þorskvinnslu í Noregi jafn
mikilvæga og vinnslu á laxi þar í
landi.
Þetta kom fram í heimsókn ráð-
herrans til Gryllefjord Seafood
og sagt hefur verið frá í norskum
fjölmiðlum. Fyrirtækið hefur fest
kaup á nýju vinnslukerfi fyrir hvít-
fisk frá Völku, sem var stofnað af
Helga Hjálmarssyni, sem er einnig
framkvæmdastjóri.
„Það er ánægjulegt hvað við-
brögðin hafa verið jákvæð og þetta
mun hjálpa okkur við markaðs starfið
í Noregi,“ segir Helgi, aðspurður.
„Við vorum að stofna dótturfélag í
Noregi og þetta mun hjálpa okkur
við að byggja það upp.“ Valka var
stofnuð árið 2003 og hlaut fyrirtækið
nýsköpunarverðlaun Íslands í fyrra.
Fiskvinnslukerfið tekur við
flökum eftir flökunarvélar og skilar
tilbúnum ferskum bitum í sölupakkn-
ingar eða inn á lausfrysti. Vélin er sú
fyrsta sinnar tegundar í heiminum
og hefur verið í þróun hjá fyrir-
tækinu frá 2009. Fyrsta vélin var
sett upp í fiskiðjuveri HB Granda í
Reykjavík.
Gunnar Hólm, framkvæmdastjóri
Gryllefjord, segir þessa nýju tækni
vera byltingu fyrir fiskvinnslu í
Noregi. „Við erum sérstaklega ánægð
með rekstraröryggið og svo er yfir-
vigtin innan við 0,5 prósent. Á hefð-
bundnum línum er hún gjarnan 3-5
prósent,“ segir Gunnar. - fb
Sjávarútvegsráðherra Noregs vonast til að íslensk tækni muni efla þorskvinnslu í landinu til muna:
Norðmenn binda vonir við íslenska tækni
RÁÐHERRA Í HEIMSÓKN Elisabet
Aspaker í heimsókn hjá Gryllefjord
Seafood. Matthías Jónasson, þjón-
ustustjóri Völku, sýnir henni nýja
búnaðinn. MYND/AÐSEND
ÁSTRALÍA Ástralskt leitarteymi
býr sig undir að leita malasísku
farþegaþotunnar með ómönn-
uðum kafbátum. Þotunnar hefur
verið leitað á sjó og úr lofti en
árangurslaust. Nú eru liðnir
tæpir 39 dagar síðan flugvélin
hvarf.
Kafbáturinn sem leitar-
teymið mun notast við skimar
eftir hafsbotninum og kort-
leggur út frá því mjög nákvæm-
lega í þrívídd. Skimunarferlið
gengur hægt fyrir sig, en kaf-
báturinn getur kannað rúm-
lega 40 ferkílómetra stórt haf-
svæði á hverjum sólarhring.
Ferlið verður því hægvirkt en
nákvæmt. - kóh
Leitin að malasísku þotunni:
Kafbátur leitar
flugvélarinnar
Maðurinn sem lést af slys-
förum við Hrafntinnu-
sker á sunnudag hét Svavar
Sæmundur
Tómasson.
Hann var 54
ára gamall.
Svavar
Sæmundur
lætur eftir
sig eigin-
konu, þrjú
uppkomin
börn og þrjú
barnabörn.
Fjölskylda Svavars vill
koma á framfæri þakklæti
til þeirra sem komu að
björgunar aðgerðum við
Hrafntinnusker.
Lést af slysförum
SVAVAR
SÆMUNDUR
TÓMASSON
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Elísabet Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
SKÚRIR EÐA ÉL um landið sunnan og vestanvert í dag og á morgun en úrkomulaust
að mestu norðaustan til. Á skírdag verður gott veður framan af en síðdegis gengur í
hvassa sunnanátt með talsverðri úrkomu syðra.
3°
14
m/s
4°
13
m/s
6°
10
m/s
7°
8
m/s
5-10 m/s.
Vaxandi
S-átt síð-
degis með
úrkomu.
Gildistími korta er um hádegi
16°
27°
10°
15°
18°
7°
12°
8°
8°
22°
13°
23°
23°
19°
13°
10°
10°
10°
6°
7
m/s
7°
9
m/s
9°
6
m/s
7°
7
m/s
6°
9
m/s
6°
10
m/s
0°
10
m/s
5°
5°
0°
-1°
6°
4°
3°
-3°
2°
-2°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
SKÍRDAGUR
Á MORGUN
ÍSLENSK
Fljótlegt
gott&
ÍSLENSK
FRAMLEIÐSLA
KJÖTSÚPA
FRÁBÆR VEIÐIFÉLAGI
■ Orkustofnun sendi þann 10. mars alls 91 virkjunarkost til umfjöllunar hjá
verkefnisstjórn 3. áfanga rammaáætlunar. Þar af eru 19 hugmyndir í núverandi
verndarflokki.
■ Eins og Fréttablaðið greindi frá 31. mars er verkefnisstjórninni hins vegar í
sjálfsvald sett hvort til endurmats virkjanakosta kemur. Úr þessu fékk verkefnis-
stjórnin skorið með sérstöku lögfræðiáliti umhverfis- og auðlindaráðuneytisins
frá 12. mars síðastliðnum. Í áliti ráðuneytisins um endurmat virkjanakosta er
tekinn af allur vafi um að lög nr. 48/2011 um verndar- og orkunýtingaráætlun
leggja þessa ákvörðun í hendur verkefnisstjórninni óháð því hvernig virkjana-
kosturinn [í verndar- og nýtingarflokki] kom inn á hennar borð að nýju.
Endurmat ákvörðun verkefnisstjórnar
Í KERLINGAR-
FJÖLLUM Orku-
stofnun biður um
að Kerlingarfjöll
verði metin að
nýju þrátt fyrir
að hafa fallið í
verndarflokk í 2.
áfanga ramma-
áætlunar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Kannski
hefur vöxtur
ferðaþjónust-
unnar verið
svo hraður að
menn hafa
ekki kveikt á
þeim nýju hagsmunum sem
komnir eru til sögunnar.
Grímur Sæmundsen, formaður SAFLEIÐRÉTTING
Í grein á laugardaginn um skoðana-
könnun varðandi nýtt framboð
hægriflokks var rangt farið með nafn
Evu H. Önnudóttur stjórnmálafræðings.
Einnig birtist mynd af rangri konu með
greininni. Beðist er velvirðingar á mis-
tökunum.