Fréttablaðið - 15.04.2014, Page 18

Fréttablaðið - 15.04.2014, Page 18
15. apríl 2014 ÞRIÐJUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÁ DEGI TIL DAGS Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is Grundvöllur tilvistar og starfs verka- lýðshreyfingarinnar er auk hefðbund- innar kjarabaráttu að berjast fyrir sam- félagi jafnréttis og jafnra tækifæra. Yfirskrift 1. maí 2014 endurspeglar þessa sýn verkalýðshreyfingarinnar. En af hverju er þessari kröfu haldið á lofti núna? Misskipting hefur farið vaxandi í þjóð- félaginu á mörgum sviðum. Þessi þróun birtist með ýmsum hætti. Kostnaður almennings vegna lyfja og læknisþjónustu er kominn út fyrir öll þolmörk. Afleiðingin er ekki aðeins sú að þessi kostnaður hefur mjög neikvæð áhrif á fjárhag fólks heldur þurfa sífellt fleiri að neita sér um nauðsynleg lyf og læknisþjónustu. Tryggt og mannsæmandi húsnæði er ein af forsendum mannsæmandi lífs- skilyrða. Mikill og vaxandi fjöldi fjöl- skyldna og einstaklinga er á hrakhólum vegna húsnæðisskorts eða þarf að sætta sig við óásættanlegar aðstæður í hús- næðismálum af fjárhagslegum ástæðum. Þá er öllum almenningi og sérstaklega ungu fólki ómögulegt að kaupa húsnæði við núverandi aðstæður. Við þessu hefur ASÍ brugðist með því að kynna tillögur um nýtt húsnæðislánakerfi að danskri fyrirmynd og nú fyrir fáeinum dögum nákvæmlega útfærðar tillögur og kostn- aðarmat á nýju félagslegu húsnæðiskerfi fyrir tekjulægsta hópinn. Tækifæri ungs fólks til að sækja sér menntun við hæfi er mikilvæg forsenda virkrar þátttöku á vinnumarkaði og starfstækifæra í framtíðinni. Mennta- kerfið svarar í dag ekki kröfum um möguleika til náms sem svara þörfum einstaklinga og atvinnulífs. Þá eru sterkar vísbendingar um að hópur fólks hafi ekki lengur efni á að senda börn sín í skóla eftir að skyldunámi lýkur vegna kostnaðar. Atvinna við hæfi og þátttaka á vinnu- markaði eru sjálfsagðar kröfur og lyk- illinn að virkri þátttöku í samfélaginu. Virkni og almenn atvinnuþátttaka er jafnframt mikilvæg forsenda velferðar- samfélagsins. Þúsundir einstaklinga eru atvinnulausar. Þetta á ekki síst við um mikinn fjölda ungmenna sem aldrei hafa náð að festa sig í sessi á vinnumarkaði. Við viljum ekki þessa þróun. Við viljum ekki svona samfélag. Verkalýðs- hreyfingin vill byggja upp réttlátt þjóð- félag. Samfélag þar sem allir fá að njóta sín og tækifæri til að blómstra, óháð efnahag. Samfélag fyrir alla – 1. maí 2014 JAFNRÉTTI Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ Gleðigengið Benedikt Jóhannesson, einn af tals- mönnum meints klofningsframboðs frá Sjálfstæðisflokknum, ritar grein í gær þar sem hann svarar ráðherr- anum fyrrverandi Birni Bjarnasyni. Björn hafði skrifað pistilinn „Óánægðir sjálfstæðismenn standa ekki að óánægjuframboði“. Undir lok pistils síns skrifar Björn meðal annars að andrúmsloftið innan Sjálf- stæðisflokksins verði ánægjulegra ef óánægjuraddir ESB-aðildarsinna þagna þar. Benedikt segir Björn þarna hitta naglann á höfuðið, því það sé altalað í flokknum hve einkar glaðlegt andrúmsloft sé alltaf í kringum hann og félaga hans á lands- fundum sem annars staðar. Náttúrutröðkun Landeigendum á Geysi er óheimilt að rukka ferðamenn um 600 krónur fyrir aðgang að svæðinu samkvæmt dómsniðurstöðu frá því í gær. Tals- maður þeirra var skiljanlega ósáttur í gær og sagði litla náttúruvernd fólgna í því að traðka niður svona lítið svæði hömlulaust. Ugglaust eru margir sáttir við þá niðurstöðu að aðgangur að íslenskri náttúru sé ókeypis. Því er hins vegar ekki að neita að hirðuleysi ríkisins í þessum efnum undanfarna áratugi er vægast sagt ámælisvert og ótrúlegt að ástandið sé orðið eins og raun ber vitni á Geysi– sem og mörgum öðrum nátt- úruperlum, í eigu ríkisins eða ekki. Ókeypis náttúruspjöll Útspil ráðherra ferðamála, Ragn- heiðar Elínar Árnadóttur, er smávægi- legur plástur á sárið, en hún hyggst leggja til aukafjárveitingu til upp- byggingar ferðamannastaða í sumar. Óljóst er hvaða staðir fá fjárveitingu og einnig hversu háar fjárhæðir. Ragnheiði til varnar þá tekur hún við embætti í óviðunandi stöðu vegna sinnuleysis forvera hennar, fyrir mýmarga ferðamannastaði, þar sem unnin hefur verið sjálfboðavinna og margir borgað með sér við að passa að náttúran einfald- lega eyðileggist ekki til fram- búðar. En við getum allavega haldið áfram að níðast á náttúrunni eins og við viljum. Og það ókeypis. fanney@frettabladid.is ht.is SELFOSS • REYKJANESBÆR • AKRANES • AKUREYRI • HÚSAVÍK • EGILSSTAÐIR • REYKJAVÍK Nikon School námskeið fylgir! 24,2 Megapixla C-MOS myndflaga Nikon D3200KIT1855VR Stafræn SLR myndavél með 24,2 milljón punkta upplausn, 24,2 mm CMOS flögu á DX-sniði, EXPEED 3, ISO 100-6400 (fer í 12800), 3” LCD skjá, Active D-Lighting, D-Movie FHD hreyfimynd, umhverfis- og brellustillingum, hraðri raðmyndatöku, tvöföldu rykhreinsikerfi, HDMI C út ofl. VR LINSA MEÐ HRISTIVÖRN STAFRÆN SLR MYNDAVÉL TILBOÐ FULLT VERÐ 109.995 99.995 NIKON FERMINGARTILBOÐ Þráðlaust farsímatengi að verðmæti 11.990 fylgir! Nú með nýrri og léttari linsu! Í umræðum um samgönguáætlun á Alþingi í síðustu viku endurtók Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra það sem hún hefur áður sagt, að hún vilji kanna hvernig einkaaðilar geti komið að fjármögnun stórra samgöngufram- kvæmda. Í gær var svo sagt frá því að ráðherrann hefði skipað stýrihóp til að skoða málið. Í tilkynningu ráðuneytisins er bent á það sem blasir við öllum; að um leið og minna fé hefur verið veitt til stofnframkvæmda í vegakerfinu undanfarin ár, fer þörfin sífellt vaxandi. Stýrihópnum er ætlað að „kanna rækilega hvaða fram- kvæmdir unnt væri að ráðast í með samvinnu ríkis og einkaað- ila, allt frá undirbúningi og hönnun og að rekstri og þjónustu við slík mannvirki“. Í umræðunum á þingi var Hanna Birna spurð hvaða verkefni hún sæi fyrir sér að kæmu til greina í einkaframkvæmd af þessu tagi og nefndi þá sérstaklega Sundabraut, sem lengi hefur verið á teikniborðinu. Hún sagðist hafa verið í sambandi við borgaryfir- völd í Reykjavík, sem hefðu mikinn áhuga á samstarfi um slíka framkvæmd. Hugmyndum um aukna þátttöku einkaaðila í byggingu og rekstri nýrra samgöngumannvirkja hefur oft verið mætt með tortryggni. Í umræðunum á þingi bar hins vegar ekki á öðru en að nokkuð víðtæk sátt væri um þessar hugmyndir. Í máli Hönnu Birnu kom fram að til þess að slíkar framkvæmdir gengju upp yrðu vegfarendur að eiga val um aðra, gjaldfrjálsa leið. Það ætti við um Sundabraut (þar sem fólk getur haldið áfram að nota Vesturlandsveginn) en síður aðrar aðkomuleiðir inn í höfuð- borgina eins og Suðurlandsveg og Reykjanesbraut. Jafnframt yrði gjaldtakan fyrir að nota veginn að vera hófleg og sanngjörn. Innanríkisráðherra nefndi að margar sveitarstjórnir hefðu haft samband við ráðuneytið og sýnt því áhuga að brýnar samgöngu- framkvæmdir í viðkomandi sveitarfélögum yrðu fjármagnaðar með sambærilegum hætti. Fyrir fram verður að teljast ólíklegt að margar framkvæmdir úti um land, þar sem umferð er mun minni en í nágrenni höfuðborgarinnar, myndu reynast nógu hagkvæmar til að standa undir sér með gjaldtöku. Vaðlaheiðargöngin eru gott dæmi; það er ólíklegt að þau standi undir sér og skattgreiðendur bera í raun ábyrgð á framkvæmd- inni þótt hún sé kölluð einkaframkvæmd. Þar voru gerð mistök sem stýrihópur innanríkisráðherra kemur vonandi í veg fyrir að endurtaki sig. Miklu nærtækara er að horfa til Hvalfjarðarganganna. Enginn kvartar lengur yfir að þurfa að borga í þau vegna þess hvað hag- ræðið fyrir vegfarendur er augljóst og umferðin er nógu mikil til að fjárfestingin borgi sig upp. Göngin hefðu líkast enn ekki verið boruð ef þessi háttur hefði ekki verið hafður á fjármögnuninni. Reykvíkingar verða þess vegna að horfast í augu við að eina leiðin til að fá Sundabraut eins og ástandið er nú í fjármálum ríkisins er að hún verði lögð í einkaframkvæmd og borgað fyrir afnot af henni. Það er raunhæf og fær leið. Hvernig fáum við stórar, hagkvæmar vegabætur? Rukkað á nýrri Sundabraut

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.