Fréttablaðið - 15.04.2014, Page 21
ÞRIÐJUDAGUR 15. apríl 2014 | SKOÐUN | 21
segja þjóðir sem freistast
til þess í þágu „einföldun-
ar“ á skattkerfinu eða til að
stoppa í fjárlagagötin með
því að hækka virðisauka-
skatt á bækur sjá flestar að
sér, eins og sést til dæmis á
því að í júní 2012, tveimur
mánuðum eftir að virðis-
aukaskattur á bækur hafði
verið hækkaður upp í 7%,
ákváðu frönsk stjórnvöld
að lækka hann aftur niður í 5,5%,
fyrst og fremst í þágu bókaútgáfu
og bóksölu í landinu.
Í Suður-Ameríku er enginn virð-
isaukaskattur lagður á bækur í
þrettán löndum. Virðisaukaskattur
í ESB-löndunum 27 er að meðaltali
7,83% en í Suður-Ameríku er hann
enn lægri, eða 1,94% að meðaltali.
Í Norður-Ameríku er enginn vask-
ur á bókum í Kanada. Aðeins fjög-
ur lönd sem könnunin náði til, Búlg-
aría, Síle, Danmörk og Gvatemala,
hafa ekki lægri virðisaukaskatt á
bækur en aðrar vörur.
Núll-prósenta-leiðin er best
Ég skora hér með á ríkisstjórn
Íslands að hrófla ekki við virðis-
aukaskatti á bækur og tónlist á
Íslandi – og helst af öllu að fella
hann alfarið niður. Niðurfelling
er vitaskuld besta leiðin, leið Bret-
lands, Írlands, Noregs og Úkraínu,
mun betri leið en undanþága. Núll
prósenta virðisaukaskattur er ein-
dreginn stuðningur við alla bóka-
útgáfu; frá höfundi til útgefanda
til bóksala til bókasafna, og loks til
lesenda. Núll prósenta virðisauka-
skattur hvetur fólk til að kaupa
bækur og er þar með skilvirkasta
leiðin til að styðja við bókmenn-
ingu, málsamfélagið, lestur og læsi.
Hvers konar árás á skapandi
greinar skaðar virðiskeðju þeirra
og leiðir til taps fyrir þjóðina í heild,
hvort sem litið er til efnislegra eða
óefnislegra verðmæta. Núverandi
ríkisstjórn Bókaþjóðarinnar skráir
sig kirfilega á sakaskrá sögunnar ef
hún ræðast á bókaútgáfu á Íslandi
með aukinni skattheimtu. Bjarni,
sumar hugmyndir eru miklu hættu-
legri en aðrar.
➜ Ég skora hér með á ríkis-
stjórn Íslands að hrófl a ekki
við virðisaukaskatti á bækur
og tónlist á Íslandi …
Bjarni Benediktsson fjár-
málaráðherra lýsti því yfir
í viðtali í Fréttablaðinu
nýlega að hann stefndi að
því að leggja fram laga-
frumvarp í haust um breyt-
ingu á virðisaukaskatt-
skerfinu. Fyrir réttum sjö
árum lækkaði virðisauka-
skattur á menningarefni
á borð við geisladiska og
bækur niður í 7%. Almennt
er virðisaukaskatturinn hins vegar
25,5%.
Skelfilegar afleiðingar
Mér vitanlega hefur fjármálaráð-
herra ekki nefnt hvaða skattpró-
sentu hann hefur í huga en fylgi
hann tillögum AGS frá 2011 um að
virðisaukaskattur á vörur og þjón-
ustu verði 20% yfir línuna myndi
virðisaukaskattur á bækur og tón-
list hækka um þrettán prósentu-
stig, sem jafngildir 286% hækkun á
skattlagningu! Varan sjálf hækkar
um 12,15%, bók sem lesandi borgar
nú 5.350 krónur fyrir þyrfti hann að
punga út 6.000 krónur fyrir ef virð-
isaukaskatturinn færi upp í 20%.
Í skýrslunni Kortlagning á hag-
rænum áhrifum skapandi greina
kemur fram að samanlögð velta í
bókaútgáfu og smásölu á bókum í
sérverslunum nam 11,8 milljörðum
árið 2009. Á núvirði eru þetta 14,7
milljarðar króna. Ef við reynum að
vera bjartsýn og segja að bóksala
myndi „aðeins“ dragast saman um
tíu prósent – sem er nánast ósk-
hyggja því að vísast yrði hrap bók-
sölu miklu meira eins og til eru
dæmi um erlendis frá – þá myndi
veltan í greininni minnka um tæpan
1,5 milljarða króna. Ársverkin voru
samtals rúmlega 1.125 og ef við
miðum við að bein fylgni sé á milli
sölu og ársverka þýddi það að 112
ársverk myndu tapast – eða með
öðrum orðum, 112 manns myndu
missa vinnuna í greininni. Þetta er
bjartsýna spáin!
Meirihluti hlúir að bókaútgáfu
Í þarseinasta mánuði birti Inter-
national Publishers Association
fjórðu skýrslu sína um hvernig
virðisaukaskattheimtu á bækur er
háttað í heiminum. Alls náði rann-
sóknin til 51 lands og leiddi þetta í
ljós: Meirihluti landanna, eða rúm
92%, hlúa að bókum og bókaútgáfu
með því að gæta þess að virðis-
aukaskattur á prentaðar bækur sé
lægri en á aðrar vörur. Meira að
Hættulegar hugmyndir
FJÁRMÁL
Sindri Freysson
rithöfundur
Sjá má lengri útgáfu greinar-
innar á Vísi.
visir.is
AF NETINU
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
2
0
5
7
Kynntu þér páskaopnun allra Vínbúða á vinbudin.is
eða á farsímavef okkar m.vinbudin.is.
súkkulaði
páskaungi hátíð
páskalambið
pálmar fjölskylda passía
gulur
samvera kerti útivist
súkkulaðiegg sálmur tágakarfa
veisla páskalilja
hreiður páskahret messa
servíettur krókus
skraut páskasól
ungi páskahelgi
eggjaleit kanína málsháttur
vorblóm egg dúkur frí
gleðilega páska
gulur túlípani kaffiboð
föndur tryggðablóm
sunnudagur konfekt
OPNUNARTÍMI UM PÁSKANA
VÍNBÚÐIRNAR Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU OG AKUREYRI
Miðvikudagur 16. apríl OPIÐ 11-19
Dalvegur, Skeifan og Skútuvogur OPIÐ 10-20
Skírdagur LOKAÐ
Föstudagurinn langi LOKAÐ
Laugardagur 19. apríl OPIÐ 11-18
Páskadagur LOKAÐ
Annar í páskum LOKAÐ
10-20
SKEIFAN | DALVEGUR
SKÚTUVOGUR
OPIÐ Í DAG
OG Á MORGUN
„Við eigum þetta land“?
Jæja, er það svo?
[…] Bandaríkjamenn,
sem telja sig í fram-
varðasveit einka-
eignar og frelsis til
orðs og æðis, tóku
upp þá stefnu fyrir
140 árum að helstu
náttúruverðmæti landsins væru
í þjóðareign en ekki einkaeign.
Og þannig hefur það verið
síðan með atbeina 27 Banda-
ríkjaforseta.
Hér á landi ríkir argasta
forneskja í þessum málum
sem hefur verið þjóðarskömm
í áratugi. Sjálfbær þróun,
varúðarreglan og jafnrétti kyn-
slóðanna eru fótum troðin.
Nú er mál að linni og þótt fyrr
hafi verið.
http://omarragnarsson.blog.is
Ómar Ragnarsson
Save the Children á Íslandi