Fréttablaðið - 15.04.2014, Side 24
15. apríl 2014 ÞRIÐJUDAGUR| TÍMAMÓT | 24TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Þessi hugmynd fæddist reyndar hjá
Færeyingum á síðasta ári. Festivalið
þeirra í Götu í nóvember, sem þeir köll-
uðu Heima, er fyrirmyndin að þessu hjá
okkur hér í Hafnarfirði,“ segir Krist-
inn Sæmundsson, forsvarsmaður Menn-
ingar- og listafélags Hafnarfjarðar.
Félagið stendur fyrir tónlistarveislu að
kvöldi síðasta vetrardags, 23. apríl, en
þá mun félagið halda tónlistarhátíðina
Heima í Hafnarfirði. Hugmyndin bygg-
ist á því að tónlistarmenn úr ýmsum
áttum halda stutta tónleika í tólf heima-
húsum miðsvæðis í bænum og hátíðar-
gestirnir rölta á milli húsa og hlusta og
njóta. „Okkur langar til að leysa þann
heimilislega anda sem ríkir hér suður
frá úr læðingi,“ segir Kristinn.
Ekki er nóg með að gestir þurfi að
rölta milli húsa til að sjá fleiri en eina
hljómsveit heldur munu hljómsveitirnar
einnig færa sig á milli húsa. Dagskráin
stendur frá 20 til 23 og mun hver hljóm-
sveit leika í 45 mínútur á sama stað.
Óttast Kristinn ekkert öngþveiti í mið-
bænum þessa þrjá tíma? „Nei nei, við
erum búin að ráða skátana til að vera
með umferðarstjórnun og erum að láta
framleiða gamaldags skilti sem vísa
fólki til vegar,“ útskýrir hann. „Það á
því enginn að þurfa að villast í hraun-
inu í Hafnarfirði nema hann óski þess
sjálfur.“
Eftir tónleikana tekur hljómsveitin
Kátir piltar við stjórninni og verður
slegið upp veislu á Fjörukránni. „Það
er stórviðburður,“ fullyrðir Kristinn.
„Aðgöngumiði á heimatónleikana gild-
ir líka í Fjörukrána og Gaflaraleikhúsið
þar sem verður opinn míkrafónn fyrir
þá sem vilja láta ljós sitt skína.“
Meðal þeirra listamanna sem staðfest
hafa komu sína á Heima í Hafnarfirði
eru Fjallabræður, Bjartmar Guðlaugs-
son, Ylja, Vök og DossBaraDjamm.
Sérstakur gestur hátíðarinnar verður
tónlistarmaðurinn Hallur Joensen frá
Færeyjum.
fridrikab@frettabladid.is
Tólf hljómsveitir leika
í hafnfi rskum stofum
Heima í Hafnarfi rði nefnist tónlistarhátíð sem haldin verður síðasta vetrardag. Þar munu
tólf hljómsveitir leika í tólf heimahúsum í miðbæ Hafnarfj arðar, auk þess sem hin róm-
aða hljómsveit Kátir piltar mun slá upp partíi á Fjörukránni og spila fram eft ir nóttu.
STÓRVIÐ-
BURÐUR
Kristinn
fullyrðir að
endurkoma
Kátra pilta sé
stórviðburður í
tónlistarlífinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Okkar ástkæra systir og frænka,
HANNA INDRIÐADÓTTIR COARE
er látin. Jarðarför hennar hefur farið fram
frá heimabæ hennar, Calfont St Peter í Englandi.
Þórir Indriðason
Ása María Kristinsdóttir
Hans Jakob Kristinsson
og systkinabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir, stjúpmóðir,
tengdamóðir, amma, langamma og dóttir,
GUÐNÝ PÁLA RÖGNVALDSDÓTTIR
Kirkjusandi 5, Reykjavík,
lést á heimili sínu sunnudaginn 6. apríl
síðastliðinn. Útförin fer fram frá Háteigskirkju
miðvikudaginn 16. apríl næstkomandi
kl. 13.00.
Hörður Björnsson
Rögnvaldur H. Jónsson Mar Martinez
Hörður M. Harðarson
Björn Arngríms Harðarson Nanna Ólafsdóttir
Sigrún Harðardóttir Helgi Ómar Bragason
Sigurður Harðarson Hrönn Stella Jónsdóttir
Erla Kristín Harðardóttir
Álfhildur Friðriksdóttir Gunnar Halldórsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir okkar,
GUÐJÓN PÁLSSON
hljóðfæraleikari og tónmenntakennari,
lést á hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri
laugardaginn 12. apríl. Útförin verður
auglýst síðar.
Páll, Fanný, Herjólfur, Erla Björg, Friðjón Snorri
og systkini hins látna.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
DAGNÝ PEDERSEN
Hrafnistu í Hafnarfirði,
lést 31. mars. Útför hennar hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir
færum við starfsfólki Hrafnistu í Hafnarfirði
fyrir góða umönnun og hlýju.
Jón Magnússon Helen P. Brown
Halla Magnúsdóttir
Anna Magnúsdóttir Guðmundur Jóhannsson
og barnabörn.
Kær systir mín, mágkona og frænka,
ANNA GUÐMUNDSDÓTTIR
hússtjórnarkennari,
Reynimel 36,
lést sunnudaginn 6. apríl. Útför hennar
verður gerð frá Neskirkju þriðjudaginn
15. apríl kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Krabbameinsfélagið.
Jóhannes Guðmundsson Guðrún María Tómasdóttir
Jóhanna Guðbjörnsdóttir
Þuríður Guðbjörnsdóttir
Tómas Jóhannesson
Helgi Jóhannesson
Sigríður Jóhannesdóttir
Guðmundur Þorri Jóhannesson
og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður,
faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÖRVAR KRISTJÁNSSON
harmonikkuleikari,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
mánudaginn 7. apríl sl. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þökkum hlýhug og kveðjur.
Guðbjörg B. Sigurðardóttir (Bubbý)
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
SÓLBORG S. SIGURÐARDÓTTIR
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk 5. apríl
síðastliðinn. Útför hennar fer fram frá Kópa-
vogskirkju miðvikudaginn 16. apríl kl. 13.
Álfheiður Steinþórsdóttir Vilhjálmur Rafnsson
Sigurður Steinþórsson Kristjana Ólafsdóttir
Magnús Steinþórsson Margrét Ragnarsdóttir
Steinþór Steinþórsson Bjarnþóra Egilsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GEIR ÞÓRÐARSON
bókbindari,
Norðurbrún 1,
lést þann 9. apríl á líknardeild Landspítalans
í Kópavogi. Útför fer fram 22. apríl
frá Áskirkju klukkan 13.00.
Gunnar Þ. Geirsson Anna G. Hafsteinsdóttir
Bjarni Geirsson Þuríður Björnsdóttir
Þórður Geirsson Erna Valdimarsdóttir
afabörn og langafabörn.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓSÚA MAGNÚSSON
hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi,
andaðist miðvikudaginn 9. apríl.
Útför hans verður gerð frá Akraneskirkju
miðvikudaginn 16. apríl kl. 14.00.
Ragnheiður Jósúadóttir Ingi Gunnarsson
Borghildur Jósúadóttir Sveinn Kristinsson
Sigurður Jósúason Orchide Jósúason
og fjölskyldur.
Á þessum degi árið 1955 var fyrsti McDonalds-veitinga-
staðurinn opnaður eftir að einkaleyfi fékkst á vörumerk-
inu. Staðurinn var í Des Plaines í Illinois-ríki.
Raunar var fyrsti McDonalds-staðurinn opnaður sjö
árum áður en það gerðu bræðurnir Maurice og Richard
McDonald. Skriður komst þó ekki á útbreiðsluna fyrr
en kaupsýslumaðurinn Ray Kroc heimsótti veitingastað
bræðranna og heillaðist af aðferð þeirra við að framleiða
hamborgara og mjólkurhristing á ódýran hátt.
Eftir opnun staðarins í Des Plaines hófst vöxtur McDon-
alds-fyrirtækisins. Einungis áratug síðar voru staðirnir
orðnir fleiri en þúsund talsins og árið 1967 opnaði
McDonalds útibú í Kanada. Var það fyrsta skrefið í
útbreiðslu hamborgarakeðjunnar um allan heim.
Í byrjun þessarar aldar voru veitingastaðirnir
orðnir fleiri en þrjátíu þúsund í hundrað og nítján
löndum.
Þaulskipulögð markaðsherferð McDonalds
hefur löngum verið talin ein helsta ástæðan
fyrir velgengni fyrirtæksins. Það hefur þó
lent í skakkaföllum undanfarin ár vegna
aukinnar meðvitundar um alþjóðleg viðskipti.
ÞETTA GERÐIST 15. APRÍL 1955
Útþensla McDonalds hófst
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, afi,
tengdafaðir, bróðir og mágur,
GUÐMUNDUR KR.
ÞÓRÐARSON – MUGGUR
stýrimaður, til heimilis að Skaftahlíð 8,
lést föstudaginn 4. apríl. Úför Muggs fór
fram föstudaginn 11. apríl í kyrrþey. Þökkum
hlýhug og stuðning á erfiðum tímum.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktarfélagið Ljósið.
Þuríður Þorsteinsdóttir
Elva Hrund Guðmundsdóttir Albert Rúnar Einvarðsson
Kristinn Þór Guðmundsson Ingibjörg Bj. Bjarnadóttir
Eva Lind Þuríðardóttir
og barnabörn.
Díana Þórðardóttir
Gyða Þórðardóttir Gissur Jóhannsson
og fjölskylda.