Fréttablaðið - 15.04.2014, Blaðsíða 28
FÓLK|HEILSA
HOLLUR OG SVALANDI
SCANDIC HEILDVERSLUN EHF. KYNNIR Alo-drykkurinn er stútfullur af nær-
ingarefnum. Hann fæst í fimm gerðum og er bæði bragðgóður og svalandi.
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Ein þeirra ungu íþróttagreina sem njóta sívaxandi vinsælda hérlendis er frisbígolf. Leiknum svipar til
golfs nema þar er notaður frisbídiskur í
stað golfkylfu og bolta og er markmiðið
að kasta disknum í tilteknar körfur í
sem fæstum köstum. Frisbígolfið er
upprunnið í Bandaríkjunum og hefur
verið spilað þar í áratugi. Einn af upp-
hafsmönnum íþróttarinnar hér á landi
er Birgir Ómarsson, formaður Frisbí-
golfsambands Íslands, en hann kynnt-
ist íþróttinni þegar hann stundaði nám
í Bandaríkjunum 1995. „Það er einkum
tvennt sem gerir þessa íþrótt svo
skemmtilega. Annars vegar getur fólk
á öllum aldri stundað hana. Þú getur
bæði spilað leikinn með barninu þínu
og ömmu þinni á sama tíma. Hins vegar
er lítill stofnkostnaður en leikmenn geta
í raun notast við einn frisbídisk þótt
þeir sem eru lengra komnir noti nokkrar
ólíkar gerðir. Þetta er ótrúlega skemmti-
legt sport.“
Nokkrir frisbígolfvellir eru á höfuð-
borgarsvæðinu og í sumar verða þrír
nýir vellir opnaðir í Reykjavík, einn við
hlið Grasagarðsins í Laugardal, annar
ofarlega í Elliðaárdal og sá þriðji í Foss-
vogsdal.
Fyrsti frisbígolfvöllur landsins var
tekinn í notkun við Úlfljótsvatn árið
1998, annar er á Gufunesi og sá þriðji
er á Klambratúni. Eftir að síðastnefndi
völlurinn var opnaður sumarið 2011
jókst áhuginn mikið og telur Birgir að um
1.000 manns stundi nú íþróttina að stað-
aldri. Hún er mest stunduð yfir sumar-
tímann þegar veður er skaplegt en Birgir
segir þó marga vera það áhugasama að
þeir stundi íþróttina allt árið, sérstaklega
á vellinum á Klambratúni.
Undanfarin ár hefur sambandið skipu-
lagt Íslandsmót auk þess sem fjölmörg
mót eru haldin hvert sumar. „Núna í
sumar skipuleggjum við að minnsta kosti
tíu mót og verður fyrsta mótið á skírdag.
Við búumst við góðri þátttöku þar.“
Allar nánari upplýsingar um mótið og
frisbígolf má finna á vefsíðunni folf.is.
ÍÞRÓTT FYRIR ALLA
SKEMMTILEG ÍÞRÓTT Frisbígolf hefur verið stundað hér á landi í nokkur ár
og hentar fólki á öllum aldri. Fyrsta mót ársins verður haldið á skírdag.
HENTAR ÖLLUM
Frisbígolf er ódýr og
skemmtileg íþrótt sem
hentar flestu fólki, segir
Birgir Ómarsson, for-
maður Frisbígolfsam-
bands Íslands.
MYND/VALLI
www.fi.is
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
Fræðslu- og
myndakvöld
Í sal FÍ 16. apríl, kl. 20:00
Hnattrænar loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á
Íslandi
Halldór Björnsson veðurfræðingur fræðir okkur um hnattrænar
loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á Íslandi.
Eldgosið í Eyjafjallajökli 2010; á norðurslóðum,
Svalbarði og nágrenni
Að loknu kaffihléi mun Kerstin Langenberger fv. skálvörður FÍ
sýna myndir frá Eyjafjallajökulsgosinu 2010 og frá ferð sinni
norður til Svalbarða og nágrennis.
Aðgangseyrir kr. 600, innifalið kaffi og kleinur
Allir velkomnir!
Hnattrænar l
oftslagsbreyt
ingar og áhri
f þeirra á Ísl
andi
Eldgosið í Eyj
afjallajökli 2
010
Alo-drykkurinn er unninn úr Aloe vera-plöntunni sem er uppfull af vítamínum, steinefnum og mikilvægum amínósýrum. Drykkurinn er unninn
beint úr plöntunni sjálfri og fylgir aldinkjötið með.
Drykkurinn inniheldur ekkert duft og engin
tilbúin bragð-, litar- eða rotvarnarefni. Fimm gerðir
fást af drykknum sem kominn er í nýjar umbúðir
með íslenskum innihaldslýsingum. Drykkurinn er í
senn bragðgóður og svalandi og hentar bæði með
mat og sem millimál. Hann er sömuleiðis góður sem
viðbót í hvers kyns „boost“. Drykkurinn viðheldur
vökvajafnvægi líkamans og er vinsæll hjá íþrótta-
mönnum. Exposed-drykkurinn er sá upprunalegi
og jafnframt þekktasti. Hann er bragðbættur með
hunangi en hinir innihalda auk Aloe vera ýmiss
konar ber og ávexti.
Allar nánari upplýsingar er að finna á www.facebook.
com/AlOdrinkIsland og í síma 864-7087.
APPEAL:
DIVINE CITRUS
Kínverskt greipaldin er
upprunnið í Suðaustur-
Asíu. Það er eins og
greipaldin á sterum.
Þetta er nýjasti drykk-
urinn en hér er hinu
kínverska greipaldini
blandað við litla frænda,
rautt greipaldin, sítrónu
og Aloe vera. Úr verður
frískandi sítrusdrykkur.
AWAKEN:
HVEITIGRAS…
NÚNA GOTT Á
BRAGÐIÐ
Þessi drykkur gefur
skjóta orku en einn
snafs samsvarar
einum kaffibolla.
Drykkurinn sameinar
orkuna í hveitigrasinu
og heilsusamleg áhrif
Aloe vera í einum
sopa.
ENRICH:
MEÐ GRANATEPLUM
OG TRÖNUBERJUM
Margir trúa því að granat-
eplið hafi verið hinn for-
boðni ávöxtur í aldingarð-
inum Eden. Granateplið er
enn í dag tákn gnægðar,
frjósemi og gæfu. Það er
þekkt fyrir höfugt bragð og
heilsusamlega eiginleika.
Hér er því blandað við
trönuber og Aloe vera-safa.
EXPOSED:
ALOE VERA OG HUNANG
Þetta er sá upprunalegi og
jafnframt þekktasti. Margir
hafa notað Aloe vera við
sólbruna og til að kæla og
græða sár. Plantan er uppfull
af vítamínum, steinefnum
og amínósýrum en drykkinn
má nota sem grunn að
heilbrigðu líferni. Hann er
auk þess bragðgóður og
svalandi.
ALLURE:
MANGÓ/TANGÓ
Mangóstan, eða
gullaldin, er talið
hafa kælandi áhrif. Í
ALO Allure blandast
suðrænu frændurnir,
hinn ofurnæringar-
ríki mangó og
mangó stan, við Aloe
vera. Upplifunin
er hressandi.
Speglar frá 5.000
Skrifstofuhillur frá 9.900
Rúm 153-193cm frá 69.000
Borðstofuborð frá 47.500
Sófaborð frá 7.500
Púðar frá 2.900
Stólar frá 2.000
Borðstofuskenkar frá 77.000
Bar skápar frá 89.000
Púðaver frá 1.000
LAGERHREINSUN
Íslenskir sófar
Fyrir íslensk heimili
• Gerð (fleiri en 900 mismunandi útfærslur)
• Stærð (engin takmörk)
• Áklæði (yfir 3000 tegundir)
Þú velur
og draumasófinn þinn er klár
Basel
Við ætlum að rýma fyrir nýjum vörum og
bjóðum allt að 50% afslátt
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is
Opið virka daga kl. 10-18
laugard. 11-16
Rín
SÓFAR Í ÖLLUM STÆRÐUM