Fréttablaðið - 15.04.2014, Page 32

Fréttablaðið - 15.04.2014, Page 32
KYNNING − AUGLÝSINGSumardekk ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 20144 Dekkin sem notuð eru í Formúlu 1-kappakst r-inum eiga fátt skylt við venjuleg bíladekk. Á venju legum dekkjum má aka allt að 80 þúsund kílómetra en formúludekkin aftur á móti eru smíðuð til að end- ast hluta úr einni keppni. Þessi skammi endingartími kemur til af því ofboðslega álagi sem er á dekkjunum í keppninni. Skipt er um dekk minnst einu sinni í hverri keppni. Reyndar var bannað að skipta um dekk árið 2005 og því þurfti sami dekkjagangurinn að endast alla keppnina eða um 300 km. Þessi regla var afturkölluð strax árið eftir og skipti þar mestu atvik sem upp kom í bandarísku formúlu- keppninni árið 2005. Þá lenti Ralf Schumacher, sem ók fyrir Toyota, í harkalegum árekstri í 13. beygju í Indianapolis-brautinni. Ástæðan var bilun í hægra afturdekki. Æði- mörg vandamál komu upp tengd Michelin-dekkjum í keppninni. Að lokum voru aðeins sex keppendur eftir, allir ökumenn í liðum sem voru með Bridgestone-dekk. Nokkrir dekkjaframleið endur hafa þróað og framleitt dekk í Formúlu 1 í gegnum tíðina. Þetta eru Avon, Bridgestone, Continental, Dunlop, Englebert, Firestone, Goodyear og Michel- in. Pirelli hefur frá árinu 2011 haft einkarétt á því að skaffa dekk í keppnina. Dekkin sem notuð eru í Formúl- unni í dag eru flest slétt. Á árunum 1998 til 2008 kröfðust reglur þess að minnst fjórar rásir væru í öllum dekkjum og var það gert til að hægja á bílunum. Þessari reglu var breytt árið 2009 þegar sléttu dekk- in fóru undir bílana á ný. Í blautu veðri eru hins vegar notuð annars konar dekk með rásum sem kljúfa vatnið betur. Í miklu vatnsveðri hafa dekkin þó ekki við að kljúfa vatnið. Þá halda formúlubílarnir ekki í við öryggis- bílinn þar sem dekkin fljóta ofan á vatninu. Í slíkum tilfellum er keppni frestað. Í hverri keppni eru tvær gerðir af sléttum dekkjum í boði, hörð dekk sem endast betur og gefa minna grip og mýkri dekk sem gefa meira grip en endast verr. Liðin verða að nota báðar týpurnar í keppninni. Þó er gerð undantekning ef notuð eru bleytudekk. Reglurnar kveða einnig á um að ökumenn sem komast áfram eftir tímatöku verði að byrja keppni á sömu dekkjum og voru notuð í hraðasta hringnum í tímatökunni. Hvert dekk vegur aðeins níu kíló Dekk skipta höfuðmáli í Formúlu 1-kappakstrinum. Mikil þróunarvinna liggur að baki dekkjunum sem notuð eru. Framleiðendur á borð við Avon, Bridgestone, Continental Dunlop, Englebert, Firestone, Goodyear, Michelin og Pirelli hafa spreytt sig á gerð þeirra. Dekk fyrir þurrt veður eru þekkt undir nafninu „slicks“. Þau eru framleidd í fjórum gerðum; mjög mjúk, mjúk, miðlungs og hörð. Aðstæður hverju sinni, gerð malbiks, fjöldi krappra beygja og hámarkshraði ráða hvaða gerð er notuð hverju sinni. Dekk fyrir blauta braut eru með raufar- mynstur í ysta byrði. Tvær týpur eru til, annars vegar miðlungsbleytudekk fyrir raka braut og þegar veðurspá er óljós og hins vegar fullbleytudekk fyrir rigningu. Sebastian Vettel hjá Red Bull-liðinu kælir dekkin á bíl sínum eftir að hann varð fyrstur í tímatöku í keppni á Indlandi í fyrra. NORDICPHOTOS/GETTY ENDURKOMA PIRELLI Pirelli sér öllum tólf liðum Formúlu 1 fyrir dekkjum. Dekkjaframleið- andinn sneri aftur í keppnina eftir nokkurt hlé árið 2009 en hafði þá ekki komið að henni síðan 1991. Nokkrar staðreyndir um Pirelli-formúludekkin: Bleytudekkin geta tvístrað meira en 60 lítrum af vatni á sekúndu þegar ekið er á 300 km hraða á klukkustund. Pirelli framleiðir um 50 þúsund dekk fyrir hvert keppnistímabil. Öll formúludekkin eru búin til í verksmiðju Pirelli í Izmit í Tyrklandi. Í hverri keppni er Pirelli með 15 bíla á sínum snærum og 50 starfsmenn, þar af einn verkfræðing fyrir hvert lið. Hvert framhjól vegur um níu kíló. Afturhjólin eru eilítið þyngri. Dekkin virka best við um 90 gráðu hita. Skipt á mettíma Dekkjaskipti í Formúlu 1 taka aðeins örfáar sekúndur. Heims- metið á lið Red Bull sem skipti um öll fjögur dekkin á 1,9 sekúndum í kappakstrinum í Austin í Bandaríkjunum í fyrra. www.n1.is facebook.com/enneinn ÍSLE N SK A /SIA .IS E N N 68624 04/14 Bíllinn nýtur sín best á hjólbörðum af bestu gerð. Þú færð hágæðahjólbarða frá Michelin á hjólbarða- verkstæðum N1 sem öll hafa hlotið vottun samkvæmt gæða- kerfi Michelin.  Hjólbarðaþjónusta N1: Bíldshöfða 440-1318 Fellsmúla 440-1322 Réttarhálsi 440-1326 Ægissíðu 440-1320 Langatanga Mosfellsbæ 440-1378 Reykjavíkurvegi Hafnarfirði 440-1374 Grænásbraut Reykjanesbæ 440-1372 Dalbraut Akranesi 440-1394 Opið mánudaga-föstudaga kl. 08-18 laugardaga kl. 09-13 www.n1.is www.dekk.is  Michelin gæði allan hringinn • Frábært undir fjölskyldubílinn og stærri fólksbíla • Endingargott og sparar eldsneyti • Besta dekkið – hæsta heildarskor í könnun Autobild 2014 • Undir smærri bíla, meðalstóra og fjölskyldubíla • Umhverfisvænt, endingargott og stutt hemlunarvegalengd • Sumardekk ársins 2013 samkvæmt gæða- og öryggisprófum ADAC • Algjör lúxus undir kraftmikla sportbíla • Gefur gott grip og bætir aksturseiginleika   • Dekk fyrir kröfuharða eigendur sportlegra lúxusbíla   Michelin Primacy 3 Michelin Energy Saver + Michelin Pilot Sport 3 2014

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.