Fréttablaðið - 15.04.2014, Side 34

Fréttablaðið - 15.04.2014, Side 34
KYNNING − AUGLÝSINGSumardekk ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 20146 VERÐKÖNNUN FÍB Sumarhjólbarðar þurfa umfram vetrarhjól- barða að vera slitþolnir og þola hraðan akstur á sumarheitum og þurrum vegum langtímum saman en þeir þurfa líka að vera mynstraðir þannig að þeir hrindi vatni vel frá sér og haldi veggripi vel í bleytunni. Framleiðendur ódýrra hjólbarða ráða illa við að bæta aksturseigin- leika í bleytu auk þess sem öryggið er verra. Hemlunarvegalengd sama bíls á lélegum dekkjagangi í bleytu er miklu lengri en ef hann er á dekkjagangi af góðri tegund. Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, gerði á dögunum verðkönnun á sumarhjólbörðum. Í könnuninni var spurt um verð á fjórum hjólbörðum eða einum hjólbarðagangi undir bílinn. Könnunin var gerð í 15. viku þessa árs. Spurt var um verð á nýjum hjólbörðum af tveimur algengum stærðum hjólbarða fyrir fólksbifreiðar og jeppa/jepplinga. Beðið var annars vegar um verð á sumarhjólbörðum fyrir fólksbíla, stærð 195 / 65 R15 og hins vegar verð sumarhjólbarða fyrir jeppa/jepplinga af stærð 235 / 65 R17. Marktæk svör bárust frá 21 seljanda. Verð í könnuninni er listaverð og án afsláttar en margir seljendur bjóða margvíslegan afslátt. Ódýrasti dekkjagangurinn í fólksbílaflokki er SONAR SC608-dekk frá Dekkjahöllinni þar sem umgangurinn kostar 43.856 krónur. Í flokki jepplingadekkja er Aoteli Ecosaver-dekkjagangur frá Sólningu ódýrastur á 91.600 krónur. Nánari upplýsingar um verðkönnunina má nálgast á vefnum www.fib.is. Íslenska f y rir tæk ið A rct ic Trucks hefur um nokkurra ára skeið tekið þátt í mörgum verk- efnum á Suðurpólnum. Vegna umfangs þeirra þurfti fyrirtækið að reisa verkstæði í S uður-Afríku fyrir nokkrum árum og þar kynnt- ist einn starfsmanna þess, Gísli Jónsson, suðurhluta Afríku. Hann hreifst svo af fallegri náttúru og vinalegum landsmönnum að hann skipulagði, ásamt vinkonu sinni Önnu Kristínu Bang Péturs- dóttur, sex vikna jeppaferð um Suður-Afríku, Namibíu, Botsvana, Sambíu, Simbabve og Mósambík. „Ég hafði sjálfur starfað þarna í nokkra mánuði og kynnst inn- fæddum. Stína las sér mikið til um allar aðstæður og í samein- ingu smíðuðum við ferðaplanið.“ Ferðafélagarnir fengu lánaðan Toyota Hilux-jeppa hjá kunningja Gísla sem býr í Jóhannesarborg og þar hófst ferða lagið í upphafi árs 2011. Jeppinn var vel útbúinn og var meðal annars með tjald á toppnum. Fyrir vikið þurftu þau aldrei að gista á hótelum eða gisti- heimilum á meðan á dvöl þeirra stóð. „Jeppinn var meðal annars útbúinn með grófum 33 tommu dekkjum, ARB-læsingum, upp- færðri fjöðrun og 160 lítra elds- neytistönkum því það er slæmt að verða bensínlaus í Afríku utan alfaraleiðar. Auk þess var jeppinn með toppgrind, húsi á palli með skúffukerfi og ísskáp og ýmsum öðrum búnaði.“ Náttúrufegurð Afríku er stór- brotin og segir Gísli þau hafa séð marga ótrúlega fallega staði og kynnst um leið hlýju heima- manna. „Mér fannst þó Namibía og Botsvana standa upp úr. Í Nami- bíu búa um 3,3 milljónir manna en landið er tíu sinnum stærra en Ís- land. Landið er því mjög strjálbýlt og ekkert fólk að finna á stórum svæðum. Náttúrufegurðin er alveg mögnuð og dýralífið mjög fjöl- breytt. Á sama svæði sáum við fíla, gíraffa og antilópur hlaupa um, ljón labba eftir slóðanum eftir góða máltíð og krókódíla svamla innan um flóðhesta. Hrægammarnir sátu svo uppi í tré og biðu eftir að hýen- urnar hyrfu af braut.“ Mjög góður matur Sem fyrr segir gistu þau í tjaldi á toppi jeppans sem gerði allt skipulag auðveldara að sögn Gísla. „Auðvitað er hægt að gista á flestum stöðum en það gaf okkur mikið frjálsræði að gista í tjaldi. Við vorum sjálfstæðari fyrir vikið og ef okkur leist ekki á að stæður á einum gististað héldum við bara áfram ferðalaginu. Það skipti raunar öllu máli í ferðalagi okkar; að vera sjálfstæður og geta tekið eigin ákvarðanir varðandi gist- ingu og hvað við borðuðum.“ Að sögn Gísla var maturinn á þessum slóðum mjög góður, sér- staklega í Suður-Afríku, Namibíu og Botsvana. „Þegar við vorum komin til Sambíu var maturinn orðinn meira framandi þar sem við smökkuðum til dæmis steikta ánamaðka og sitthvað fleira. Í það heila var þetta eitthvert stórkost- legasta ferðalag sem ég hef upp- lifað og ég væri svo sannarlega til í frekari ferðalög á þessum slóðum í framtíðinni.“ Á jeppa í Afríku Afríka er heil veröld út af fyrir sig. Heimsálfan býr yfir stórkostlegri náttúru, mjög fjölbreyttu dýralífi og vinalegu fólki sem tekur vel á móti gestum. Vinirnir Gísli og Stína keyrðu á sérútbúnum jeppa um sex lönd á sex vikum sem reyndist mikið ævintýri frá upphafi til enda. Gísli Jónsson með hina stórkostlegu Viktoríufossa í baksýn. MYND/GÍSLI JÓNSSON Eyðimerkur Namibíu eru ein- stök náttúrufyrir- bæri. Á myndinni sést jeppinn sem notaður var í ferðalaginu. MYND/GÍSLI JÓNSSON M A D E T O F E E L G O O D. PARTNER FÆRÐU HJÁ OKKUR! SUMARDEKKIN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.