Fréttablaðið - 15.04.2014, Blaðsíða 36
KYNNING − AUGLÝSINGSumardekk ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 20148
Hjólbarðaskipti
Aðferð:
• Setjið bílinn í gír, handhemil-
inn á og steina við hjól, ef þörf
krefur.
• Setjið viðvörunarþríhyrning 50
til 100 metrum fyrir aftan bílinn.
• Takið hjólkoppinn af og losið
um allar felgur, en takið þær
ekki af.
• Náið í varahjólbarðann og
tjakk. Stillið tjakkinn undir
bílinn. Upplýsingar um hvar
hann er og hvar á að setja hann
undir eru í eigendahandbók
bílsins.
• Tjakkið bílinn upp þar til
hjólbarðinn sem skipta á um er
í lausu lofti.
• Skrúfið felgurær af og takið
sprungna hjólbarðann undan.
• Setjið varahjólbarðann undir
og skrúfið rærnar að. Sú hlið
róarinnar sem er með úrtakinu
(kóníska hliðin) á að snúa að
hjólbarðanum (felgunni). Herðið
rær á misvíxl, þannig að felgan
sitji rétt á.
• Slakið bílnum niður, takið tjakk-
inn undan og herðið allar rærnar
aftur. Setjið hjólkoppinn á.
Heimild: Umferðarstofa
ÖRYGGISAPP
Tire Facts-appið frá Tire Safety
Group veitir ókeypis dekkjaupp-
lýsingar beint í símann. Þar er að
finna allar helstu upplýsingar af
heimasíðu Tire Safety Group en
með því að skrá inn DOT-kóða
dekkja, sem gefur meðal annars
upplýsingar um stærð og fram-
leiðsludag, fást nauðsynlegar
upplýsingar um endingartíma. Þá
fá eigendur tilkynningu ef dekk
þeirra hafa verið innkölluð en
margir eru grunlausir um það.
Dekk ætti ekki að nota lengur en
í sex ár og lætur appið vita hversu
mikið þau eiga eftir.
DOT-kóðinn er letraður í hliðar
dekksins. DOT stendur fyrir The
U.S. Department of Trans-
portation og í kjölfarið má lesa
tölur og bókstafi sem segja til um
framleiðanda og framleiðsludag.
Appið er uppfært á sólarhrings-
fresti. Það má nálgast á www.
tiresafetygroup.com.
SAGA DEKKSINS
Fyrirrennarar dekkjanna voru tréhjól sem umlukin voru járn-
hring og síðar stálhring. Slík „dekk“ voru notuð undir kerrur og
vagna. Járnræmur voru þá hitaðar í eldi, settar utan á hjólið og
kældar. Þannig dróst járnið saman og festist tryggilega við hjólið.
Vagnasmiður sá um þessa smíði.
Fyrsta loftfyllta dekkið var búið til af uppfinningamanninum
John Boyd Dunlop árið 1887. Hann starfaði sem dýralæknir í
Belfast og ákvað að finna lausn á vanda sonar síns sem fékk alltaf
mikinn höfuðverk þegar hann hjólaði á hörðum götum. Reyndar
var einkaleyfi Dunlop lýst ógilt þar sem Skotinn Robert William
Thomson átti svipaða hugmynd aðeins fyrr.
Önnur merkileg tímamót í sögu dekksins voru þegar Charles
Goodyear og Robert William Thomson uppgötvuðu gúmmísuðu.
Gervigúmmí var síðan fundið upp í rannsóknarstofum Bayer á
þriðja áratugnum.
Ný og betriheimasíða!
NORRÆN SUMUR GERA
KRÖFU
UM HÁMARKS FRAMM
ISTÖÐU
Á Íslandi vitum við að
sumarveður getur þýtt
alls konar veður!
Þess vegna hefur Noki
an þróað sumar- og he
ilsársdekk sem
henta fjölbreyttu veður
fari norðlægra slóða.
NOKIAN
FINNSK SUMAR- OG HEILSÁRSDEKK
Í HÆSTA GÆÐAFLOKKI
Finndu réttu dekkin undir bílinn þinn!
Skoðaðu
MAX1.is
Mundu
:
naglad
ekkin
af fyrir
15. apr
íl!
Fáðu vaxtalaust kortalán eða
10% staðgreiðsluafslátt af dekkjum!
Reykjavík:
Bíldshöfða 5a
Jafnaseli 6
Knarrarvogi 2
Hafnarfjörður:
Dalshrauni 5 515 7190
Opnunartími:
Öll verkstæði opin virka daga kl. 8-17
Laugardaga: sjá MAX1.is
Aðalsímanúmer:
Mikið úrval fyrir fólksbíla, jeppa og sendibíla