Fréttablaðið - 15.04.2014, Síða 47

Fréttablaðið - 15.04.2014, Síða 47
ÞRIÐJUDAGUR 15. apríl 2014 | MENNING | 35 Karl Sigurbjörnsson, fyrrver- andi biskup, er höfundur nýrrar myndskreyttrar bókar um lífs- hlaup Hallgríms Péturssonar sem forlagið Ugla gefur út. „Ég var í undirbúningshópi hjá Hallgríms- kirkju vegna afmælisárs Hall- gríms og það vantaði stutt og lag- gott yfirlit yfir ævi hans, kveðskap og áhrif á menningu okkar og trú. Það var gaman að vinna að því og velja myndir sem varpa ljósi á sögu hans,“ segir Karl og bætir við að efnið sé komið út, annars vegar sem bæklingur á íslensku, ensku, þýsku og dönsku og í bókarformi. Bókin er aðeins 32 blað síður í A5-broti. Var ekki erfitt að koma hinni mögnuðu sögu sálma- skáldsins fyrir á svo fáum síðum? „Jú, það þurfti ansi mikið að velja og hafna því þarna er bara stiklað á því stærsta. Þetta er mögnuð lífssaga og ég fullyrði að enginn Íslendingur hefur haft önnur eins áhrif á eina þjóð eins og Hallgrímur Pétursson.“ - gun Enginn haft eins mikil áhrif HÖFUNDURINN „Þarna er bara stiklað á því stærsta,“ segir Karl um nýju bókina um Hallgrím Pétursson. Sæmundur Gunnarsson hefur opnað listsýningu í húsnæði Ófeigs gullsmiðs á Skólavörðustíg 5. Sýningin kallast Ljós í hrauni, enda segir listamaðurinn nýlega atburði við Gálgahraun hafa kveikt með honum ljós. Þetta er sjöunda einkasýning Sæmundar sem kveðst hafa krassað og teiknað frá því að hann man eftir sér. Hann hefur sótt fjölda námskeiða, meðal annars í Mynd- lista- og handíðaskóla Íslands, Myndlistarskóla Reykjavíkur, hjá Þuríði Sigurðardóttur og ýmis námskeið á vegum Myndlistar- félags Reykjanesbæjar. - gun Atburðirnir í Gálga- hrauni innblástur Nýjasta sýning Sæmundar Gunnarssonar nefnist Ljós í hrauni. Hún er á Skólavörðustíg 5 í Reykjavík. LISTAMAÐURINN „Ég hef krassað og teiknað frá því ég man eftir mér,“ segir Sæmundur. MYND/ÚR EINKASAFNI Tónleikar Jazzklúbbsins Múlans verða annað kvöld í Björtuloftum Hörpu. Þar kemur fram hljóm- sveitin Hot Eskimos, en hana skipa Karl Olgeirsson, sem leikur á píanó, bassaleikarinn Jón Rafns- son og Kristinn Snær Agnars son, sem leikur á trommur. Eskimóarnir heitu munu leika lög af plötu sinni Songs from the Top of the World, sem kom út árið 2011, og einnig af væntan- legri plötu en þar kennir einmitt ýmissa grasa úr poppflóru og víðar að. Hot Eskimos í Múlanum HOT ESKIMOS Karl Olgeirsson, Jón Rafnsson og Kristinn Snær Agnarsson. Katrín Elvarsdóttir heldur erindi í hádeginu í dag í fyrirlestrar- sal Þjóðminjasafnsins og nefnist það Undirbúningsferli og val á ljósmyndum á sýninguna Betur sjá augu. Ljósmyndun íslenskra kvenna 1872-2013 er efni fyrir- lestrar Katrínar en hún er sýn- ingarhöfundur Betur sjá augu, sem er samstarfsverkefni Þjóð- minjasafns og Ljósmyndasafns Reykjavíkur. Á sýningunni Betur sjá augu, sem lýkur 1. júní, er að finna ljósmyndaverk eftir 34 konur sem eiga það sameiginlegt að hafa unnið við ljósmyndun hér á landi, flestar sem atvinnu- ljósmyndarar en einstaka sem áhugaljósmyndarar. Um ljós myndun kvenna

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.