Fréttablaðið - 15.04.2014, Side 48
15. apríl 2014 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 36
LEIKLIST ★★★★ ★
Hamlet litli
Litla svið Borgarleikhússins
HÖFUNDUR: BERGUR ÞÓR INGÓLFS-
SON OG HÓPURINN. LEIKSTJÓRN:
BERGUR ÞÓR INGÓLFSSON. LEIKMYND,
LEIKBRÚÐUGERÐ OG BÚNINGAR:
SIGRÍÐUR SUNNA REYNISDÓTTIR. LÝS-
ING: GARÐAR BORGÞÓRSSON. HLJÓÐ:
ÓLAFUR ÖRN THORODDSEN. TÓNLIST:
KRISTJANA STEFÁNSDÓTTIR. LEIKARAR:
SIGURÐUR ÞÓR ÓSKARSSON, KRISTÍN
ÞÓRA HARALDSDÓTTIR OG KRISTJANA
STEFÁNSDÓTTIR.
Best að gangast við því strax; ég
er Shakespeare-snobb. Nútíma-
uppfærsla á Hamlet, sem miðar
að því að opna augu íslenskra
ungmenna fyrir gildi klassískrar
leikritunar, hljómar eins og eitt-
hvað sem lævís óvinur gæti hafa
kokkað upp sérstaklega mér til
hrellingar. Hamlet Shakespeares
er líklega þekktasta leikrit ger-
vallra leikbókmenntanna og leik-
listarfólk hefur í gegnum árin og
aldirnar gert sér mat úr verkinu
með afar misjöfnum árangri eins
og gengur, bæði með uppfærslum
verksins og svo því að byggja
lauslega á leikritinu. Hamlet litli
fellur í seinni flokkinn; Bergur
Þór Ingólfs son fær hér frjálsar
hendur, litla leiksvið Borgarleik-
hússins (besta leiksvið lands-
ins) og fulltingi leikhússins – en
frumsýnt var um síðustu helgi.
Og útkoman kemur sannarlega
ánægjulega á óvart.
Bergur Þór, leikstjóri, höfundur
leikgerðar og söngtexta, sker
verkið inn að beini, styðst við
strípaðan söguþráðinn og helstu
persónur verksins – veitir sér
svo fullkomið frelsi til að setja
upp sýningu sem byggir á þeirri
sögu með frjálslegu orðfæri sem
íslensk ungmenni þekkja. Þetta
tekst honum að gera án þess að
maður fái á tilfinninguna að verið
sé að skælast á Shakespeare –
sem hlýtur að teljast verulegt
afrek. Eina sem skýtur skökku
við er mónólógur sem Ófelía fer
með ágætlega en er á skjön við
heildarmyndina sem og epílógur
sem Hamlet flytur: Þar sem hann
ávarpar salinn og útskýrir fyrir
leikhúsgestum hvernig beri að
skilja sýninguna. Þetta er algjört
tabú, út með þessa ræðu en þá er
líka upptalið það sem finna má að.
Sýningin öll er ákaflega kraft-
mikil og sterk. Sigurður Þór Ósk-
arsson og Kristín Þóra Haralds-
dóttir fara á kostum og bresta
í söng, og leika sér að því en
fléttuð er inn í frumsamin tón-
list sem sjálf Kristjana Stefáns-
dóttir semur og flytur ásamt leik-
urunum. Kristjana bregður sér
einnig í ýmis hlutverk og túlkar
til dæmis hinn illa kóng Kládíus
með fulltingi bráðskemmtilegrar
brúðu. Allt tekst það með miklum
ágætum. Leikmyndin sjálf er
ákaflega snjöll og skemmtileg;
nánast eins og inni í pípuorgeli
sé og í pípunum leynast gagn-
legir leikmunir – reyndar ein-
kenna hugmyndaauðgi og snjallar
lausnir sýninguna í heild. Þá er
lýsingin með miklum ágætum sem
og búningar bráðskemmtilegir og
vandaðir. Hér vinnur allt saman
eins og best verður á kosið.
Bergur Þór er potturinn og
pannan í öllu þessu og sýnir hér
hversu snjall leikhúsmaður hann
er orðinn. Sýningin má heita
sigur fyrir Berg. Hún er klukku-
stundar löng og salurinn var vel
með á nótunum allt frá fyrstu
mínútu. Líkast til er ekki hægt að
mæla með henni fyrir allra yngstu
áhorfendur en þeir sem eru orðnir
tíu ára og upp úr ættu að geta haft
af henni gagn og mikið gaman.
Jakob Bjarnar Grétarsson
NIÐURSTAÐA: Sigur fyrir Berg Þór
Ingólfsson sem sýnir með stór-
skemmti legri, hugmyndaríkri og
kröftugri leiksýningu hversu öflugur
leikhúsmaður hann er.
Hamlet litli fer hamförum
HAMLET LITLI „Hér vinnur allt saman eins og best verður á kosið.“
MYND/GRÍMUR BJARNASON
„Við erum þrjú á förum norður,
Sesselja Kristjánsdóttir mezzó-
sópran, Aladár Rácz píanó- og
orgel leikari og ég. Við hlökkum til
að flytja músík í Mývatns sveitinni.
Þar fáum við líka til liðs við okkur
karlaoktett sem kallar sig Garðar
Hólm. Það verður gaman að tengj-
ast menningarstarfseminni heima
í héraði,“ segir Laufey Sigurðar-
dóttir fiðluleikari og frum kvöðull
tónlistarhátíðarinnar Músík í
Mývatnssveit sem nú er haldin í
sautjánda sinn.
Á kammertónleikum í Skjól-
brekku á skírdag er Fantasie
Impromptu eftir Chopin á dag-
skrá, ásamt fiðlu- og píanósónötu
eftir Beethoven. Sesselja syngur
úr Sígaunaljóðum eftir Dvorák,
einnig íslensk lög og óperusmelli,
meðal annars úr Carmen, sem hún
flutti eftirminnilega í Íslensku
óperunni í haust. Átta karla sveitin
Garðar Hólm kemur líka fram þar.
„Það er allt önnur stemning í
Reykjahlíðarkirkju á föstudag-
inn langa. Þar verður tónlist sem
hæfir stund og stað, meðal annars
eftir Bach, Händel og Gluck, ásamt
íslenskum sálmalögum,“ segir
Laufey og getur þess líka að Svava
Björnsdóttir myndlistar maður
verði með sýningu á pappírs-
skúlptúrum í Skjólbrekku.
- gun
Músíkin í
Mývatnssveitinni
Tónlistarhátíðin Músík í Mývatnssveit verður haldin
um bænadagana. Kammertónleikar verða í Skjól-
brekku og kyrrlátari stemning í Reykjahlíðarkirkju.
FRUMKVÖÐULLINN „Það verður gaman að tengjast menningarstarfseminni heima
í héraði,“ segir Laufey. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
„Mér hefur alltaf þótt eftir-
tektar vert að fjórar konur skyldu
vera með þeim fyrstu sem Hall-
grímur trúði fyrir sálmunum
sínum,“ segir Steinunn Jóhannes-
dóttir rithöfundur. Hún segir
lengi hafa blundað í sér að kynna
sér sögu þeirra kvenna betur
og láta jafnmargar konur flytja
Passíusálmana í Hallgrímskirkju
í Saurbæ. Nú er komið að því. Það
eru leikkonurnar Helga E. Jóns-
dóttir, Margrét Guðmundsdóttir
og Ragnheiður K. Steindórs dóttir
ásamt Steinunni sjálfri sem gera
það og Arna Kristín Einars dóttir
flautuleikari velur og flytur tón-
list milli þátta. Dagskráin hefst
klukkan 13.30 og stendur til
18.45.
Þeir sem mæta í Saurbæ fá
afhentan bækling sem Steinunn
hefur ritað og nefnist Svoddan
ljós mætti fleirum lýsa. Þar
rekur hún sögu þeirra fjögurra
kvenna sem Hallgrímur valdi
sem umboðsmenn sína og rýnir í
ástæður hans fyrir því. Konurnar
voru Ragnhildur Árnadóttir í
Kaldaðarnesi, Helga Árnadóttir
í Hítardal, Kristín Jónsdóttir í
Einarsnesi og Ragnheiður Brynj-
ólfsdóttir í Skálholti. „Allt voru
þetta merkiskonur og vel í sveit
settar,“ segir Steinunn og kveðst
í þessum nýjustu pælingum vera
að kynnast markaðsmanninum
Hallgrími.
„Hallgrímur hafði traust á
kvenþjóðinni. Hann biður því
þessar fjórar konur að taka sálm-
ana til forsvars og sjá til þess að
þeim verði ekki varpað undir
bekk. Þær eru ekki bara læsar,
hann telur þær dómbærar og þar
fyrir utan í þeirri stöðu að geta
hugsanlega haft áhrif á að sálm-
arnir verði afritaðir og að þeir
komist í umtal og umferð,“ segir
hún.
Steinunn telur ljóst að skáldið
hafi haft smekk fyrir sterkum
konum. „Þeirri fyrstu kynnist
hann í barnæsku, Halldóru Guð-
brandsdóttur á Hólum, sem þá
var mesta valdakona landsins og
síðan velur hann sér fyrir eigin-
konu Guðríði Símonardóttur,
mikinn skörung. Þegar hann þarf
að koma stórvirkinu sínu á fram-
færi þá velur hann til þess fjórar
flottar konur. Þær risu undir
þessu trúnaðarhlutverki því þótt
handrit Ragnheiðar Brynjólfs-
dóttur sé það eina sem varðveist
hefur til okkar daga lágu handrit
hinna til grundvallar nokkrum
útgáfum Passíusálmanna.“
gun@frettabladid.is
Hallgrímur hafði
traust á kvenþjóðinni
Fjórar konur fl ytja Passíusálmana í Hallgrímskirkju í Saurbæ á föstudaginn
langa í minningu þeirra fj ögurra kvenna sem Hallgrímur sendi sálmana í eigin-
handarritum vorin 1660 og 1661. Steinunn Jóhannesdóttir veit meira.
FLYTJENDUR Arna Kristín Einarsdóttir, Ragnheiður Steindórsdóttir, Margrét Guð-
mundsdóttir, Helga E. Jónsdóttir og Steinunn Jóhannesdóttir. MYND/ÚR EINKASAFNI
Stabat Mater eftir Pergolesi,
eitt af höfuðverkum kirkju-
legra tónsmíða, verður flutt í
Bústaðakirkju á föstudaginn
langa klukkan 14. Flytjendur eru
Gréta Hergils sópran og Svava
K. Ingólfs dóttir mezzósópran við
undirleik Jónasar Þóris, kantors
Bústaðakirkju, og Gretu Salóme
fiðluleikara.
Milli þátta verður lesið úr
Píslar sögunni. Tónverkið fjallar
um raunir Maríu meyjar þar sem
hún stendur við kross Jesú Krists
og syrgir son sinn.
Það er orðin hefð í Bústaða-
kirkju að verkið sé flutt í heild á
föstudaginn langa. Aðgangur að
tónleikunum, sem standa í um það
bil 50 mínútur, er ókeypis eins og
allar kirkjulegar athafnir.
Stabat Mater
í Bústaðakirkju
Árlegur fl utningur á Stabat Mater eft ir Pergolesi fer
fram í Bústaðakirkju á föstudaginn langa.
SÓPRAN Meðal þeirra sem flytja Stabat
Mater er Gréta Hergils sópransöngkona.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON