Fréttablaðið - 15.04.2014, Page 56

Fréttablaðið - 15.04.2014, Page 56
15. apríl 2014 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 44 HANDBOLTI FH tryggði sér í gær- kvöldi síðasta sætið í úrslitakeppn- inni í Olís-deild karla í handbolta eftir dramatískan sigur á ÍR, 28-27, í Austurbergi. FH var 26-21 yfir þegar átta mínútur voru eftir en heimamenn tóku á mikinn sprett og jöfnuðu leikinn, 27-27. Það var svo Benedikt Reynir Kristinsson sem skoraði sigurmark FH 30 sek- úndum áður en lokaflautið gall í Breiðholtinu. FH-ingar fengu hjálp frá Vals- mönnum sem unnu Framara í Reykjavíkurslag að Hlíðarenda, 26-19, eftir að lenda mest 8-3 undir í byrjun leiks. Valur tryggði sér þriðja sætið með sigrinum en skildi um leið Framara eftir með sárt ennið í fimmta sæti deildarinnar og FH komst í úrslitakeppnina. ÍR gat einnig tryggt sér sæti í úrslita- keppninni með sigri en allt fór á versta veg hjá því vegna tapsins. Vegna sigurs Vals á Fram og Akur- eyrar á botnliði HK féllu ÍR-ingar alla leið niður í 7. sætið og þurfa Breiðhyltingar því að fara í umspil við liðin í 1. deildinni um áfram- haldandi veru í deildinni. Haukar unnu toppslaginn gegn ÍBV, 24-23, að Ásvöllum í gær og unnu því deildina með fjögurra stiga mun en ÍBV endar í öðru sæti en það er nýliði í deildinni. Þar með er það klárt að hand- boltaunnendur fá enn fleiri Hafna- fjarðarslagi því Haukar og FH mætast í undanúrslitum Íslands- mótsins og þá eigast við Eyjamenn og Valsmenn. - tom Haukar og FH mætast ÍR fer í umspilið eft ir spennandi lokaumferð. SVEKKTIR ÍR tapaði 5 af síðustu 6 leikjum sínum og fer í umspilið. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL SPORT Skeifunni 11 | Sími 515 1100 www.rekstrarland.isw .rekstrarland.is næsta útibú Olís og leitið tilboða. Rekstrarland er byggt á fyrrum rekstrarvörudeild Olís og er dótturfyrirtæki Olíuverzlunar Íslands hf. Samsettir fjáröflunarpakkar eða sérsniðnir eftir óskum hópsins Öflug fjáröflun fyrir hópinn SUND Hrafnhildur Lúthers- dóttir, sundkona úr SH, bætti sjö Íslandsmeistaratitlum í safn- ið um helgina þegar hún skellti sér heim til Íslands til að taka þátt í Íslandsmeistaramótinu í 50 metra laug sem fram fór í Laugar dalslauginni. Hrafnhildur er við nám í Flórída í Bandaríkj- unum sem hefur reynst henni vel. Hrafnhildur vann allar þrjár bringusundsgreinarnar (50 metra, 100 metra og 200 metra) á ÍM, auk þess að vinna 200 metra fjórsund. Hún átti síðan þátt í þrennum gullverðlaunum og tveimur silfurverðlaunum hjá SH í boðsundsgreinum. Vildi alls ekki missa af ÍM „Ég vildi alls ekki missa af þessu móti. Maður verður að koma heim og láta sjá sig svo maður gleymist ekki,“ segir Hrafnhildur í léttum tón. Hún horfir nú til næsta stór- móts sem er Evrópumeistara- mótið í haust. Hrafnhildur klár- aði á dögunum sitt síðasta tímabil með Flórída-háskólanum þar sem hún komst í NCAA-úrslitamótið á öllum fjórum árum sínum. Á lokamótinu synti hún þrisvar til úrslita, þar af tvisvar með boð- sundssveit skólans sem náði 3. og 4. sæti á nýjum skólametum. „Ég kom á ÍM með það mark- mið að hafa gaman af þessu og synda eins hratt og ég gæti. Ég var fullhvíld fyrir tveimur vikum fyrir úrslitamótið í banda- ríska háskólasundinu. Ég er búin að vera í hvíld síðan þá. Það er erfitt að halda svona hvíld svona lengi þannig að ég bjóst ekki við miklu,“ segir Hrafnhildur. Glæsilegt Íslandsmet í fyrstu grein á föstudagskvöldið kom því skemmtilega á óvart. „Ég var frekar fersk af því að þetta var fyrsta sundið á helginni, synti þetta vel og það gekk allt upp,“ segir hún. Hún kom í mark á 1:08.62 mínútum en gamla metið var 1:09.48 mínútur. Hrafnhildur segist hafa lengi verið að stefna á það að komast undir 1:09 og nú tókst það. Hrafnhildur hefur notið tímans sem krókódíll (Florida Gators) og fjölmörg Íslandsmet á meðan hún hefur verið við nám við skólann segja líka sína sögu. „Það er ótrúlega gaman og það hefur greinilega hjálpað mér mjög mikið. Ég fæ miklu meira af þolæfingum þarna úti og svo er alltaf gott að koma heim og fá meiri tækniæfingar hjá Klaus, sem er þjálfarinn minn hérna heima. Hann þekkir mig rosalega vel og það er gott að vinna með honum þó að ég sé að æfa þarna úti. Hann veit alltaf hvað ég á að gera þegar ég kem heim,“ segir Hrafnhildur. Árin í Flórída hafa virkað vel á hana. Æfir meira og öðruvísi „Ég er að æfa svolítið öðruvísi og meira. Þetta voru viðbrigði í byrjun en svo venst maður þessu,“ segir Hrafnhildur og það er engin afslöppun á dagskránni fram að Ólympíuleikunum í Ríó 2016. Hrafnhildur ætlar reyndar að taka sér vikuhvíld á meðan hún býr sig undir prófatörn í skól- anum en svo byrja æfingarnar á fullu og hún sér ekki fram á neina hvíld í sumar. „Ég sé mig bara æfa á fullu samfellt til ársins 2016. Það verð- ur engin hvíld hjá mér,“ segir Hrafnhildur ákveðin. Hún er að læra almannatengsl í skólan- um. Hún mælir hiklaust með að íslenskt sundfólk skelli sér í nám til Bandaríkjanna. Mælir með því að fara út í skóla „Ég mæli endalaust með því fyrir ungt sundfólk að fara út í skóla. Þetta er svo gott tækifæri. Þetta er frítt nám og svo færðu að æfa með því sem getur verið svo erf- itt að gera hérna heima, það er að vera bæði í sundinu og í háskól- anum. Þá endistu ekki lengi í sundinu nema þú dreifir nám- inu yfir lengri tíma. Það er líka farið svo vel með íþróttamennina þarna úti þannig að þetta er kjör- ið tækifæri,“ segir Hrafnhildur. Hún reyndi að nýta vikuna á Íslandi sem best og var ekki bara í lauginni. „Ég hitti vin konur mínar og ömmu og afa sem og eitthvað af fjölskyldunni. Ég fékk að borða góðan íslenskan mat sem ég hafði ekki borðað lengi. Núna taka bara við lokaverkefni og próf í skólan- um. Svo eru nokkrir vinir mínir að fara að útskrifast þannig að ég fæ að sjá alvöru bandaríska útskrift. Sjá þau henda upp hatt- inum og eitthvað svoleiðis,“ segir Hrafnhildur. Páskaegg og ferð í Disneyland Fréttablaðið heyrði í henni í gær þegar hún var að undirbúa brott- för til Flórída og verðlaunin fyrir góða frammistöðu eru ekki bara fjöldi verðlaunapeninga heldur einnig eitt gott íslenskt páskaegg sem verður með í för. Hrafnhildur ætlar líka að heimsækja Disney land í fyrsta sinn. Ef einhver hefur unnið sér það inn þá er það fremsta bringu- sundskona landsins. ooj@frettabladid.is Vildi passa upp á að gleymast ekki Hrafnhildur Lúthersdóttir nýtti Íslandsheimsóknina vel og vann sjö gullverðlaun á Íslandsmeistaramótinu í sundi um helgina en hún gaf sér smá tíma frá náminu í Flórída. Hápunkturinn var Íslandsmetið í 100 metra bringusundi sem hún bætti um tæpa sekúndu. UPPSKERA HELGARINNAR Hrafnhildur Lúthersdóttir vann níu verðlaun á Íslands- meistaramótinu í 50 metra laug um helgina, þar af fjögur gull í einstaklingsgreinum. Hún fékk einnig Sigurðarbikarinn fyrir besta afrekið í bringusundi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.