Fréttablaðið - 15.04.2014, Qupperneq 56
15. apríl 2014 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 44
HANDBOLTI FH tryggði sér í gær-
kvöldi síðasta sætið í úrslitakeppn-
inni í Olís-deild karla í handbolta
eftir dramatískan sigur á ÍR, 28-27,
í Austurbergi. FH var 26-21 yfir
þegar átta mínútur voru eftir en
heimamenn tóku á mikinn sprett
og jöfnuðu leikinn, 27-27. Það var
svo Benedikt Reynir Kristinsson
sem skoraði sigurmark FH 30 sek-
úndum áður en lokaflautið gall í
Breiðholtinu.
FH-ingar fengu hjálp frá Vals-
mönnum sem unnu Framara í
Reykjavíkurslag að Hlíðarenda,
26-19, eftir að lenda mest 8-3 undir
í byrjun leiks.
Valur tryggði sér þriðja sætið
með sigrinum en skildi um leið
Framara eftir með sárt ennið í
fimmta sæti deildarinnar og FH
komst í úrslitakeppnina. ÍR gat
einnig tryggt sér sæti í úrslita-
keppninni með sigri en allt fór á
versta veg hjá því vegna tapsins.
Vegna sigurs Vals á Fram og Akur-
eyrar á botnliði HK féllu ÍR-ingar
alla leið niður í 7. sætið og þurfa
Breiðhyltingar því að fara í umspil
við liðin í 1. deildinni um áfram-
haldandi veru í deildinni.
Haukar unnu toppslaginn gegn
ÍBV, 24-23, að Ásvöllum í gær og
unnu því deildina með fjögurra
stiga mun en ÍBV endar í öðru sæti
en það er nýliði í deildinni.
Þar með er það klárt að hand-
boltaunnendur fá enn fleiri Hafna-
fjarðarslagi því Haukar og FH
mætast í undanúrslitum Íslands-
mótsins og þá eigast við Eyjamenn
og Valsmenn. - tom
Haukar og FH mætast
ÍR fer í umspilið eft ir spennandi lokaumferð.
SVEKKTIR ÍR tapaði 5 af síðustu 6 leikjum sínum og fer í umspilið. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
SPORT
Skeifunni 11 | Sími 515 1100 www.rekstrarland.isw .rekstrarland.is
næsta útibú Olís
og leitið tilboða. Rekstrarland er byggt á fyrrum rekstrarvörudeild Olís
og er dótturfyrirtæki Olíuverzlunar Íslands hf.
Samsettir fjáröflunarpakkar eða sérsniðnir eftir óskum hópsins
Öflug fjáröflun
fyrir hópinn
SUND Hrafnhildur Lúthers-
dóttir, sundkona úr SH, bætti
sjö Íslandsmeistaratitlum í safn-
ið um helgina þegar hún skellti
sér heim til Íslands til að taka
þátt í Íslandsmeistaramótinu
í 50 metra laug sem fram fór í
Laugar dalslauginni. Hrafnhildur
er við nám í Flórída í Bandaríkj-
unum sem hefur reynst henni vel.
Hrafnhildur vann allar þrjár
bringusundsgreinarnar (50
metra, 100 metra og 200 metra)
á ÍM, auk þess að vinna 200
metra fjórsund. Hún átti síðan
þátt í þrennum gullverðlaunum
og tveimur silfurverðlaunum hjá
SH í boðsundsgreinum.
Vildi alls ekki missa af ÍM
„Ég vildi alls ekki missa af þessu
móti. Maður verður að koma heim
og láta sjá sig svo maður gleymist
ekki,“ segir Hrafnhildur í léttum
tón. Hún horfir nú til næsta stór-
móts sem er Evrópumeistara-
mótið í haust. Hrafnhildur klár-
aði á dögunum sitt síðasta tímabil
með Flórída-háskólanum þar sem
hún komst í NCAA-úrslitamótið
á öllum fjórum árum sínum. Á
lokamótinu synti hún þrisvar til
úrslita, þar af tvisvar með boð-
sundssveit skólans sem náði 3. og
4. sæti á nýjum skólametum.
„Ég kom á ÍM með það mark-
mið að hafa gaman af þessu og
synda eins hratt og ég gæti.
Ég var fullhvíld fyrir tveimur
vikum fyrir úrslitamótið í banda-
ríska háskólasundinu. Ég er búin
að vera í hvíld síðan þá. Það er
erfitt að halda svona hvíld svona
lengi þannig að ég bjóst ekki við
miklu,“ segir Hrafnhildur.
Glæsilegt Íslandsmet í fyrstu
grein á föstudagskvöldið kom
því skemmtilega á óvart. „Ég var
frekar fersk af því að þetta var
fyrsta sundið á helginni, synti
þetta vel og það gekk allt upp,“
segir hún. Hún kom í mark á
1:08.62 mínútum en gamla metið
var 1:09.48 mínútur. Hrafnhildur
segist hafa lengi verið að stefna
á það að komast undir 1:09 og nú
tókst það.
Hrafnhildur hefur notið tímans
sem krókódíll (Florida Gators) og
fjölmörg Íslandsmet á meðan hún
hefur verið við nám við skólann
segja líka sína sögu.
„Það er ótrúlega gaman og það
hefur greinilega hjálpað mér
mjög mikið. Ég fæ miklu meira
af þolæfingum þarna úti og svo
er alltaf gott að koma heim og fá
meiri tækniæfingar hjá Klaus,
sem er þjálfarinn minn hérna
heima. Hann þekkir mig rosalega
vel og það er gott að vinna með
honum þó að ég sé að æfa þarna
úti. Hann veit alltaf hvað ég á að
gera þegar ég kem heim,“ segir
Hrafnhildur. Árin í Flórída hafa
virkað vel á hana.
Æfir meira og öðruvísi
„Ég er að æfa svolítið öðruvísi
og meira. Þetta voru viðbrigði
í byrjun en svo venst maður
þessu,“ segir Hrafnhildur og það
er engin afslöppun á dagskránni
fram að Ólympíuleikunum í Ríó
2016.
Hrafnhildur ætlar reyndar að
taka sér vikuhvíld á meðan hún
býr sig undir prófatörn í skól-
anum en svo byrja æfingarnar
á fullu og hún sér ekki fram á
neina hvíld í sumar.
„Ég sé mig bara æfa á fullu
samfellt til ársins 2016. Það verð-
ur engin hvíld hjá mér,“ segir
Hrafnhildur ákveðin. Hún er
að læra almannatengsl í skólan-
um. Hún mælir hiklaust með að
íslenskt sundfólk skelli sér í nám
til Bandaríkjanna.
Mælir með því að fara út í skóla
„Ég mæli endalaust með því fyrir
ungt sundfólk að fara út í skóla.
Þetta er svo gott tækifæri. Þetta
er frítt nám og svo færðu að æfa
með því sem getur verið svo erf-
itt að gera hérna heima, það er að
vera bæði í sundinu og í háskól-
anum. Þá endistu ekki lengi í
sundinu nema þú dreifir nám-
inu yfir lengri tíma. Það er líka
farið svo vel með íþróttamennina
þarna úti þannig að þetta er kjör-
ið tækifæri,“ segir Hrafnhildur.
Hún reyndi að nýta vikuna á
Íslandi sem best og var ekki bara
í lauginni.
„Ég hitti vin konur mínar og
ömmu og afa sem og eitthvað af
fjölskyldunni. Ég fékk að borða
góðan íslenskan mat sem ég hafði
ekki borðað lengi. Núna taka bara
við lokaverkefni og próf í skólan-
um. Svo eru nokkrir vinir mínir
að fara að útskrifast þannig að
ég fæ að sjá alvöru bandaríska
útskrift. Sjá þau henda upp hatt-
inum og eitthvað svoleiðis,“ segir
Hrafnhildur.
Páskaegg og ferð í Disneyland
Fréttablaðið heyrði í henni í gær
þegar hún var að undirbúa brott-
för til Flórída og verðlaunin fyrir
góða frammistöðu eru ekki bara
fjöldi verðlaunapeninga heldur
einnig eitt gott íslenskt páskaegg
sem verður með í för.
Hrafnhildur ætlar líka að
heimsækja Disney land í fyrsta
sinn. Ef einhver hefur unnið sér
það inn þá er það fremsta bringu-
sundskona landsins.
ooj@frettabladid.is
Vildi passa upp á að gleymast ekki
Hrafnhildur Lúthersdóttir nýtti Íslandsheimsóknina vel og vann sjö gullverðlaun á Íslandsmeistaramótinu í sundi um helgina en hún
gaf sér smá tíma frá náminu í Flórída. Hápunkturinn var Íslandsmetið í 100 metra bringusundi sem hún bætti um tæpa sekúndu.
UPPSKERA HELGARINNAR Hrafnhildur
Lúthersdóttir vann níu verðlaun á Íslands-
meistaramótinu í 50 metra laug um helgina,
þar af fjögur gull í einstaklingsgreinum. Hún
fékk einnig Sigurðarbikarinn fyrir besta
afrekið í bringusundi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM