Fréttablaðið - 15.04.2014, Síða 59
ÞRIÐJUDAGUR 15. apríl 2014 | SPORT | 47
OG
3FALDIR
Vildarpunktar
Icelandair
alla páskana
15.–21. apríl
Dæmi: 10.000 kr. áfylling
gefur 450 Vildarpunkta.
Til að safna Vildarpunktum Icelandair með ÓB-lyklinum
þarf að hafa hann tengdan Visa Icelandair korti eða
American Express vildarkorti. Einnig er hægt að safna
punktum með Sagakorti. Nánari upplýsingar um
vildarkerfi ÓB eru á ob.is/vildarkerfi
PI
PA
R\
TB
W
A
-
SÍ
A
-
14
11
20
-12KR.
af bensíni og dísel
í dag þriðjudag
með lykli, Staðgreiðslu- og
Tvennukorti Olís
Hlaupahópur Stjörnunnar leitar nú að
þjálfara til að ganga til liðs við frábæran
hóp skemmtilegra einstaklinga.
Hópurinn var stofnaður haustið 2012 og er í dag
með stærri hlaupahópum landsins. Mikil fjölbreytni
er innan hópsins sem og mikið og gott félagslíf
Ef þú ert áhugasamur og vilt kynna þér málið frekar
vertu þá í sambandi við Odd eða Gunnar,
oddur@nordicseafood.is s. 847 7674 eða
gunnar@garri.is s. 696 4446.
Hlaupagarpar!
KÖRFUBOLTI Teitur Örlygsson stýrði Stjörnuliðinu í síðasta sinn á sunnu-
dagskvöldið þar sem Garðabæjarliðið datt út úr úrslitakeppninni eftir
æsispennandi leik og eins stigs tap fyrir deildarmeisturum KR.
Það er óhætt að segja að Teitur hafi skrifað nokkra kafla í sögu körfu-
boltans í Garðabænum þau rúmu fimm ár sem hann var við stjórn-
völinn í Ásgarði en Stjarnan hefur á þeim tíma orðið að einu af bestu
körfuboltaliðum landsins þótt Íslandsbikarinn eigi enn eftir að rata í
Garðabæinn.
Einn sá óvæntasti í sögunni
Teitur tók við Stjörnuliðinu á miðju tímabili 2008-09 og hafði ekki verið
marga mánuði í starfinu þegar Stjarnan vann einn óvæntasta sigur í
sögu íslenska körfuboltans. Stjarnan vann þá stórstjörnulið KR í bikar-
úrslitaleiknum í Laugardalshöllinni og dramatísk fagnaðarlæti þessa
mikla sigurvegara gleymast líklega aldrei.
Síðan þá hefur Stjarnan ítrekað endurskrifað körfuboltasögu félags-
ins og nú síðast hjálpuðu Stjörnumenn Teiti sjálfum að ná einstökum
árangri. Teitur vann fjóra leiki með Stjörnunni í þessari úrslitakeppni
og komst þar með upp í 100 sigurleiki í úrslitakeppninni á Íslandi.
Hann varð fyrstur til að vinna tíu Íslandsmeistaratitla sem leik maður í
úrslitakeppni og tími hans með Stjörnunni kom honum upp um hundrað
sigurleiki sem leikmaður og þjálfari í úrslitakeppni.
Það eina sem vantar upp á er að vinna Íslandsmeistarabikarinn sem
var í huga flestra kominn hálfa leið upp í Ásgarð fyrir ári. Sigur vilji
Grindvíkinga verður hins vegar seint vanmetinn og Teitur og félagar
urðu að sætta sig við silfrið í annað skiptið á þremur tímabilum.
Hafa fest sig í sessi
„Hjartað í liðinu í dag eru sömu mennirnir og voru þegar ég kom og
við erum að spila svipað kerfi mestallan tímann. Liðið og deildin á
sama tíma hefur dafnað frá því að ég tók við Stjörnunni og það hefur
verið gaman að fylgjast með uppbyggingunni. Liðið hefur unnið tvö
silfur og tvo bikarmeistaratitla og er vonandi búið að festa sig í sessi í
körfubolta,“ sagði Teitur við blaðamann Vísis eftir síðasta leikinn sem
þjálfari Stjörnuliðsins.
Teitur gekk líka stoltur maður út úr Ásgarði á sunnudagskvöldið:
„Algjörlega, stoltur og þakklátur fyrir að hafa fengið
þetta tækifæri. Allir vinirnir sem maður er
búinn að eignast hérna, það situr eftir í
manni,“ sagði Teitur.
Komið að 89 prósent sigranna
Stjarnan hefur unnið 106 leiki
í deild og úrslitakeppni
frá upphafi, þar af 94
þeirra undir stjórn Teits
Örlygssonar eða 89 pró-
sent. Hann hefur komið
að báðum stórum titlum
félagsins og nú er það í
höndum Hrafns Kristjáns-
sonar að fylgja starfi hans
eftir.
Hér fyrir neðan má sjá yfirlit
yfir fyrstu skrefin sem Stjarn-
an tók í þjálfaratíð Teits Örlygssonar frá 2009 til
2014.
ooj@frettabladi.is
Tímamótatíð
hjá Teiti
Teitur Örlygsson kvaddi Ásgarð á sunnudaginn
eft ir fi mm og hálft tímabil sem þjálfari karlaliðs
Stjörn unnar. Liðið náði ekki þeim stóra en endur-
skrifaði körfuboltasögu Garðabæjar í þjálfaratíð
þessa mikla sigurvegara úr Njarðvík.
KR - STJ
KARLA,
KÖRFUB
UPP, UPP, UPP
Stjarnan steig hvert
skrefið af öðru upp
metorðastigann
á meðan Teitur
þjálfaði liðið.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„NÝJU SKREFIN“ Í
GARÐABÆNUM Í
ÞJÁLFARATÍÐ TEITS
FYRSTA SINN Í UNDANÚRSLIT Í
BIKARKEPPNI
- 11. janúar 2009 (116-70 sigur á Val)
FYRSTA SINN Í BIKARÚRSLITALEIK
- 25. janúar 2009 (83-73 sigur á Njarðvík)
FYRSTI BIKARMEISTARATITILINN
- 15. febrúar 2009 (78-76 sigur á KR)
FYRSTA SINN YFIR 50 PRÓSENT
SIGURHLUTFALL Á TÍMABILI
- 2009/10, 68 prósent (15 sigrar - 7 töp)
FYRSTI LEIKUR Í ÚRSLITAKEPPNI
- 14. mars 2009 (81-93 tap fyrir Snæfelli)
FYRSTI SIGURLEIKUR Í ÚRSLITA-
KEPPNI
- 29. mars 2010 (95-91 sigur á Njarðvík)
FYRSTI SIGUR Í SERÍU Í ÚRSLITA-
KEPPNI
- 23. mars 2011 (69-66 sigur á Grindavík, 2-1)
FYRSTI SIGUR Í UNDANÚRSLITUM Í
ÚRSLITAKEPPNI
- 27. mars 2011 (75-73 sigur á Snæfelli)
FYRSTA SINN Í LOKAÚRSLIT Í ÚR-
SLITAKEPPNI
- 31. mars 2011 (105-88 sigur á Snæfelli)
FYRSTI SIGUR Í LOKAÚRSLITUM Í
ÚRSLITAKEPPNI
- 14. apríl 2011 (107-105 sigur á KR)
FYRSTA FORYSTA Í LOKAÚRSLITUM Í
ÚRSLITAKEPPNI
- 22. apríl 2013 (101-89 sigur á Grindavík,
2-1)