Fréttablaðið - 15.04.2014, Page 62
15. apríl 2014 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 50
Ársfundur EFÍA 2014
Ársfundur Eftirlaunasjóðs FÍA verður haldinn þriðjudaginn
6. maí 2014 kl. 14.00 í Hlíðasmára 8, Kópavogi.
DAGSKRÁ
Allir sjóðfélagar eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum með
umræðu- og tillögurétti. Hægt er að nálgast ársfundargögn
á heimasíðu sjóðsins www.efia.is.
1. Skýrsla stjórnar
2. Ársreikningur kynntur
3. Tryggingafræðileg úttekt
4. Fjárfestingarstefna
5. Skipun stjórnar og laun stjórnarmanna
6. Val endurskoðanda
7. Önnur mál
„Hugmyndin kviknaði eiginlega
þegar ég var að fara að sofa eitt
kvöldið,“ segir Vilhjálmur Sanne
en hann var að opna veitingastað-
inn Chuck Norris Grill á Lauga-
veginum. „Ég og konan mín vorum
að velta fyrir okkur nafni á stað-
inn og þá datt okkur í hug þetta
þema,“ segir Vilhjálmur en flestir
hljóta að kannast við brandarana
um Chuck Norris og hörku hans.
„Við ákváðum í kjölfarið að fara
þá leið að leggja mesta áherslu á
steikarsamlokurnar,“ segir veit-
ingastaðareigandinn sem bætir
því við að á matseðlinum verði
ýmiss konar grillmatur ásamt
steikarsamlokunum. „Við erum
með hamborgarana eins og flestir
grillstaðir en okkur fannst vanta
fleiri staði sem sérhæfðu sig í
steikarsamlokum.“
Staðurinn var opnaður síðastlið-
inn föstudag og segir Vilhjálmur
viðtökurnar hafa verið góðar.
„Fólki finnst þetta skemmtilegt,
Chuck Norris er náttúrlega gler-
harður.“ Á bak við staðinn er
einnig að finna myndar legan garð
sem Vilhjálmur segir eiga eftir að
nýtast vel í sumar þegar sólin fer
að skína. „Við erum með nokkur
borð og stóla úti en síðan getur
fólk líka sest inni eða tekið matinn
heim með sér,“ segir Vilhjálmur
sem mælir með því að fólk líti
inn og grípi með sér eitthvað af
grillinu. „Við bjóðum líka upp á
góð salöt og steikur, hér geta allir
fundið sér eitthvað.“
Chuck Norris
er glerharður
Vilhjálmur Sanne var að opna nýstárlegan grillstað á
Laugaveginum þar sem þemað er Chuck Norris.
GÓÐUR MATUR Vilhjálmur Sanne segir að allir geti fundið sér eitthvað.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
The Darjeeling Limited eftir Wes
Anderson er í uppáhaldi.
Matthildur Matthíasdóttir, fyrirsæta
BESTA BÍÓMYND
Steinunn „Eldflaug“ Harðardóttir
er betur þekkt sem dj. flugvél og
geimskip en hún byrjaði mjög ung
að semja tónlist og er nýjasti við-
mælandi þáttarins Á bakvið borðin.
„Það eru samt bara til upp-
tökur frá því að ég var fimm ára
því þá fékk ég kassettutæki að
gjöf,“ segir Steinunn í viðtali við
þáttarstjórn endurna. „Ég fann
síðan kassetturnar um daginn og
varð svo hissa á því að lögin sem
ég var að semja þá eru rosalega
svipuð nýjustu lögunum mínum,
textar og allt.“
Tónlistarkonan segir einnig í við-
talinu að áhuginn á raftónlist hafi
kviknað þegar frændi hennar gaf
henni vinsælan geisladisk eftir
fræga rafhljómsveit. „Hann kom
sem sagt með diskinn Fat of the
Land eftir Prodigy,“ segir Steinunn.
„Þá var ekki aftur snúið eftir að ég
var búin að hlusta á hann.“
Í þættinum leikur Steinunn listir
sínar á ýmsa hljóðgervla en sá sem
hún notar einna mest er hljóðfæri
sem hún hefur nefnt Stóru nýbylgj-
una. Aðspurð hvort það séu ein-
hverjir tónlistarmenn sem hafa
haft áhrif á hana segir hún að Sig-
ríður Níelsdóttir, einnig þekkt sem
Grandma Lo-Fi, hafi haft góð áhrif
á hana. „Hún gerði tónlistina sína
og tók hana upp sjálf og bjó síðan
til geisladiska sem hún lét selja í
búðum,“ segir Steinunn. „Þá hugs-
aði ég bara, nú jæja, þetta er ekkert
mál.“ baldvin@frettabladid.is
Fékk kassettutæki fi mm ára
Steinunn „Eldfl aug“ Harðardóttir er betur þekkt sem dj. fl ugvél og geimskip en
hún segir að Grandma Lo-Fi hafi haft góð áhrif á hana sem tónlistarkonu.
HÆFILEIKARÍK Dj. flugvél og geimskip
spilar mest á hljóðgervla.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Ég var orðin svo pirruð á
ákveðinni forræðishyggju sem
var í gangi í samskiptum skóla-
stjórnar og nemendafélagins,“
segir Salka Valsdóttir, einn með-
lima Reykjavíkurdætra, en hún
bauð sig fram til forseta Nem-
endafélags Menntaskólans við
Hamrahlíð og hengdi upp nektar-
myndir af sjálfri sér sem plaköt.
„Það var rosaleg ritskoðun
í skólablaðinu og mér fannst
ég heldur ekki búin að pönkast
nægilega mikið í stjórn,“ segir
Salka og hlær. „Mér finnst að
til gangur nemendafélags sé að
gera allt eins skemmtilegt og
hægt er fyrir nemendurna en
núna er eins og það sé verið að
aga þá og allt gert til þess að
þóknast skólastjórninni.“ Salka
bjó til síðu vegna framboðsins á
Facebook en var bönnuð í kjölfar
myndbirtingarinnar. „Fyrst kom
viðvörun en síðan var ég sett í
bann í 48 klukkustundir,“ segir
Salka en Facebook hafði flokk-
að myndina sem klám. „Þetta
er klárlega ekki klám og það
er engin hlutgerving við þessa
mynd heldur er þetta bara falleg
mynd sem vinkona mín, Sólveig
Lára, tók.“ segir Salka.
„Það er eins og þeir séu með
einhverja græju sem skannar
hvort það séu brjóst á myndum en
ef ég væri karlmaður sem væri
ber að ofan þá yrði ekkert sagt.“
Athæfi Sölku virðist þó hafa
vakið athygli utan skólans en
vinkona hennar sem stundar
nám við Verslunarskóla Íslands
sagði henni að einstaklingar
innan Versló hefðu spurst fyrir
um athæfið.
„Það voru einhverjar stelpur
að spyrja vinkonu mína hvort
ég væri ekki hrædd um að fólk
héldi að ég væri lauslát út af
myndunum,“ segir Salka. „Síðan
voru nokkrar stelpur sem spurðu
hvort kærastinn minn leyfði mér
að vera með hár undir höndun-
um,“ segir Salka og hlær en hún
undirbýr brúðkaup sitt og unn-
usta síns, Almars S. Atlason-
ar. „Vinkona mín sagði þessum
stelpum að ég væri ekki beint
lauslát, í ljósi þess að ég væri að
fara að gifta mig í sumar,“ segir
Salka sem er ákaflega spennt
fyrir athöfninni.
baldvin@frettabladid.is
Nakin í framboði
Salka Valsdóttir var ekki sátt við forræðishyggjuna sem virtist ríkja innan veggja
Menntaskólans við Hamrahlíð og ákvað því að taka málin í sínar hendur.
FEMÍNISTI Salka Valsdóttir vekur mikla athygli. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
UMDEILD Salka Valsdóttir var nakin á
framboðsplakötunum.
Síðan voru nokkrar
stelpur sem spurðu hvort
að kærastinn minn leyfði
mér að vera með hár
undir höndunum.
Salka Valsdóttir