Fréttablaðið - 25.04.2014, Blaðsíða 8
25. apríl 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
RÍFLEGA HRINGINN Á EINUM TANKI!
Renault Megane hefur slegið í gegn sem einn sparneytnasti bíll landsins. Nýr Megane er ekki síðri sparibaukur því beinskiptur
Megane með start/stopp búnaði notar aðeins 3,5 l/100 km og sjálfskiptur 4,2 l/100 km*. Þú getur því keyrt ríflega 1.700 km á
einum tanki á þessum framúrskarandi sparneytna bíl og CO2 útblástur er einungis frá 90 g/km.
www.renault.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
13
10
RENAULT MEGANE
DÍSIL, SJÁLFSKIPTUR. VERÐ 3.590.000 KR.
RENAULT MEGANE SPORT TOURER
DÍSIL, SJÁLFSKIPTUR. VERÐ 3.890.000 KR.
NÝR RENAULT MEGANE
ÖRYGGIS GÆTT Indverskur lögreglumaður leitar á íbúum áður en þeir ganga til kjörfundar í Mattan í Anantnag-kjördæmi í gær.
Yfir 814 milljónir hafa kosningarétt í landinu, en kosningarnar eru þær fjölmennustu í heimi. Útlit er fyrir að niðurstöðurnar verði
á þá leið að til valda komist stjórnarandstöðuflokkur þjóðernissinnaðra hindúa. Á Indlandi hefur hagvöxtur verið dræmur og lands-
menn langþreyttir á spillingu, auk þess sem varað hefur verið við vaxandi ólgu vegna núnings ólíkra trúarbragða. NORDICPHOTOS/AFP
Fjölmennustu kosningar í heimi standa nú yfi r á Indlandi
Úrslit nálgast í Afganistan
1AFGANISTAN Abdullah Abdullah hefur enn yfirburða-forystu, með nærri 44 prósent atkvæða, þegar 82 prósent
atkvæða hafa verið talin upp úr kjörkössum forsetakosninganna í
Afganistan. Ashraf Ghani er enn í öðru sæti með nærri 33 prósent.
„Endanlegar bráðabirgðatölur“, eins og það er kallað, verða birtar á
laugardag. Þrátt fyrir sögur um kosningasvindl verður kosið á milli
tveggja efstu í seinni umferð kosninganna, innan nokkurra vikna.
Smáríki kærir stórveldin
2MARSHALL-EYJAR Stjórnin á Marshall-eyjum í Kyrrahafinu hefur lagt fram kæru hjá Alþjóðadómstólnum í Haag á hendur þeim níu ríkjum sem hafa yfir
kjarnorkuvopnum að ráða, nefnilega Bandaríkjunum, Rússlandi, Bretlandi, Frakk-
landi, Kína, Ísrael, Indlandi, Pakistan og Norður-Kóreu. Þessi ríki eru sökuð um gróf
brot á alþjóðalögum með því að vinna að því að endurnýja kjarnorkuvopn sín í
staðinn fyrir að vinna að kjarnorkuafvopnun.
Saknaði Afríku
3HAVAÍ Fimmtán ára piltur faldi sig í hjólabúnaði farþegaþotu þegar hún var á flugvelli í San Francisco í Bandaríkjunum. Hann var enn á lífi þegar vélin lenti
í Honolúlú á Havaí á sunnudagsmorgun, en var harla ringlaður, þyrstur og varla
fær um að ganga eftir þrekraunina uppi í háloftunum, þar sem loftið er þunnt og
kuldi mikill. Faðir hans sagði síðar að stráksi hefði saknað Afríku svo mikið, en þar
bjuggu þeir áður. Honum hefði líka gengið illa í skóla.
Símar prentaðir á föt
4ÁSTRALÍA Vera má að símar verði innan einhverra ára orðnir það þunnir að hægt verði að prenta þá á föt. Þetta fullyrða vísindamenn við Monash-háskóla
í Ástralíu, sem hafa unnið að rannsóknum á nanótækni. Meðal annars hafa þeir
kannað möguleikana á nanóprentun sem gerir mönnum kleift að prenta örsmáar
rafrásir, til dæmis á föt. Chanaka Rupasinghe hefur stjórnað þessum rannsóknum.
HEIMURINN
1
2
4
3
ABDULLAH
ABDULLAH