Fréttablaðið - 27.05.2014, Page 21

Fréttablaðið - 27.05.2014, Page 21
KYNNING − AUGLÝSING Mótorhjól27. MAÍ 2014 ÞRIÐJUDAGUR 3 Mótorhjólaverslunin Reykja-vík Motor Center (RMC) hefur umboð fyrir fjölda þekktra gæðamerkja á Íslandi á borð við Piaggio-, Vespa-, Aprilia-, Moto Guzzi- og BMW-mótorhjól. Að sögn Eyþórs Örlygssonar, fram- kvæmdastjóra RMC, verður aðal- áherslan í ár lögð á mikla breidd frá BMW þegar kemur að nýjum mótor- hjólum, þó með áherslu á hina svo- kölluðu GS (möl/malbik) ferðahjó- lalínu sem hentar íslenskum aðstæð- um best. „Fyrst ber að nefna BMW G650GS, sem er létt og meðfærilegt eins strokks 652 rsm hjól sem hentar byrjendum jafnt sem lengra komn- um. Hjólið er í boði í tveimur út- gáfum, G650 GS og G650 GS Sertao, en báðar útgáfurnar eru með ABS- hemlakerfi og hita í handföngum sem staðalbúnað. Helsti munur- inn á þessum tveimur útgáfum er að Sertao-týpan er hærra hjól með meiri torfærueiginleika en báðar gerðir eru minnaprófshjól samkvæmt Sam- göngustofu.“ Næst nefnir Eyþór til sögunn- ar BMW F700GS og F800GS línuna sem eru millistór tveggja strokka 800 rsm ferðahjól sem fást í þremur út- færslum; F700GS, F800GS og F800GS Adventure. „F700/800GS-línan er að margra mati þau hjól sem henta ís- lenskum aðstæðum allra hjóla best. Þau eru jafnvíg á malarvegi og bund- ið slitlag en hafa jafnframt getu til að fara erfiðari hálendisvegi með þó nokkrum þægindum. Við höfum gantast með að F700/800GS-línan sé jepplingar mótorhjólanna. F700GS er með lægri sætishæð en flest önnur ferðahjól á markaði, F800GS er með meiri torfærueiginleika og F800GS Adventure sameinar meiri torfæru- eiginleika og þægindi á lengri ferð- um. Nefna má að F700/800GS-hjól- in koma með ríkulegum búnaði frá verksmiðjunni; ABS-hemlakerfi, spólvörn, hita í handföngum, akst- urstölvu og rafstýrðri fjöðrun svo eitthvað sé nefnt.“ Mesti töffarinn RMC hefur einnig til sölu toppinn í ferðahjólum sem er BMW R1200GS og ofurferðahjólið BMW R1200GS Adventure sem er að sögn Eyþórs eitt mesta tækniundur sem rúllað hefur á tveimur hjólum síðari ár. „BMW R1200GS er arftaki BMW R80G/S sem markaði upphaf stórra ferða- hjóla í byrjun níunda áratugarins. R1200GS hefur sannað sig sem eitt albesta ferðahjól sem völ er á frá því það var fyrst kynnt til sögunnar árið 2003. Tíu árum síðar, eða árið 2013, kynnti BMW til sögunnar arftakann, R1200GS LC, sem er algjörlega end- urhannaður frá grunni. Eina samlík- ingin er drifskaftið og hinn einkenn- andi tveggja strokka boxermótor en þar endar samlíkingin. Hin nýju R1200GS og R1200GS Adventure eru að sönnu lúxusferðahjól með tals- verða torfærueiginleika en um leið meiri þægindi og búnað en þekkst hefur í mótorhjólum af þessari gerð.“ Búnaður sem fylgir hjólunum er meðal annars hæðarstillanleg vind- hlíf, ABS-hemlar, spól- og skrikvörn, fullkomin aksturstölva, rafstýrð fjöðrun, hiti í handföngum, skrið- stillir og stillanleg aksturskerfi eftir aðstæðum. Önnur lína sem verslunin leggur mikla áherslu á í ár er að sögn Eyþórs einn mesti töffari sem sést hefur hin síðari ár, hið stórglæsilega R nineT. „Hjólið er eins og nafnið gefur til kynna hylling BMW til 90 ára sögu fyrirtækisins sem mótorhjólafram- leiðanda. Það er í gömlum stíl með 1200 rsm, 110 hö og tveggja strokka boxervél en þó með öllum nútíma- búnaði eins og ABS-hemlum, spól- vörn, aksturstölvu og hita í hand- föngum. R nineT er framleitt í tak- mörkuðu upplagi og eingöngu sem árgerð 2014. Ársframleiðslan er upp- seld á heimsvísu en við náðum að tryggja okkur þrjú eintök. Þetta frá- bæra hjól er hannað með einstak- lingshyggju mótorhjólakappans í huga en með örfáum handtökum er hægt að breyta R nineT í svo kallað- an Café Racer eða Bobber.“ Gott verkstæði RMC rekur þjónustuverkstæði sem er sérútbúið fyrir BMW, Harley- Davidson og þau merki sem falla undir Piaggio Group. „Þess utan þjónustum við allar gerðir bifhjóla og reynum að vera leiðandi í þjón- ustu við mótorhjólamenn og -konur. Ef við eigum ekki varahlutinn getum við yfirleitt útvegað hann með stutt- um fyrirvara. Við erum með eina best búnu dekkja- og smurþjónustu landsins fyrir bifhjól og bjóðum dekk frá öllum helstu dekkjaframleiðend- um heims. Við reynum að eiga dekk á lager fyrir sem flest götu- og ferða- hjól en séu þau ekki til getum við oft- ast útvegað þau með mjög skömm- um fyrirvara.“ Eyþór segir verslunina vera leið- andi í þjónustu við hinn ört stækk- andi hóp ferðahjóla. Auk þess bjóði hún upp á aukahluti og töskur á flest- ar gerðir ferðahjóla frá einum stærsta framleiðanda heims. „Við bjóð- um einnig sérhannaðar vatnsheld- ar mótorhjólatöskur og poka frá Ort- lieb og vatnshelda hanska og sokka frá SealSkins. Hjálma eigum við af flestum gerðum, meðal annars með innbyggðu sólgleri og Bluetooth- búnaði. Við reynum ávallt að vera með fjölbreytt úrval notaðra bifhjóla á verði sem hentar flestum í björtum og rúmgóðum sýningarsal okkar á Kleppsvegi í Reykjavík.“ Nánari upplýsingar má finna á www.rmc.is og á Facebook-síðu verslunarinnar. Gott úrval glæsilegra mótorhjóla Einungis gæðamerki eru til sölu hjá Reykjavík Motor Center. Verslunin hefur umboð fyrir fjölda þekktra merkja og býður upp á glæsileg og vönduð hjól í sumar auk þess að bjóða upp á fjölbreytt úrval aukahluta fyrir öll hjól. Þjónustuverkstæði verslunarinnar sinnir öllum gerðum mótorhjóla og er vel útbúið varahlutum. Harley-Davidson hjólin er stórglæsileg. MYND/GVA Mikið úrval aukahluta er á boðstólum í verslun RMC. MYND/GVA R1200GS Adventure-mótorhjólið er sann- kallað tækniundur. MYND/GVA RMC býður upp á gott þjónustuverkstæði fyrir nær allar gerðir bifhjóla. MYND/GVA Eyþór Örlygsson, framkvæmdastjóri RMC, situr á töffaranum R nineT. MYND/GVA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.