Fréttablaðið - 27.05.2014, Page 22

Fréttablaðið - 27.05.2014, Page 22
KYNNING − AUGLÝSINGMótorhjól ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 20144 Bifhjólasamtök lýðveldisins, Sniglar, náðu nýverið þeim merka árangri að fá úthlutað fyrsta sérmerkta bifhjólastæðinu á Íslandi. Stæðið er tvöfalt og upphitað við verslunarmiðstöðina Smáralind og senn verða tekin í notkun bifhjólastæði í Kringlu, Aðalstræti og Skólastræti. „Bifhjólastæði eru löngu tímabær á höfuðborgarsvæðinu því bifhjólum hefur fjölgað gríðarlega á undanförnum árum,“ segir Iðunn Arnarsdóttir í umferðarnefnd Snigla. Hún segir æ fleiri nota bifhjól sem farartæki og að nú séu um 11 þúsund bifhjól á landinu, fyrir utan vespur og rafmagnsvespur. „Margir eru smeykir við að leggja hjólum sínum í hefðbundin bílastæði, ekki síst ef bifreiðum er lagt sitt hvoru megin við hjólið. Þá lítur stæðið út fyrir að vera autt og aðvífandi bílar skella á hjól- unum. Til að verja hjólin leggja menn þá frekar á gangstéttum en það stuðar svo gangandi vegfarendur og vitaskuld viljum við ekki pirra neinn.“ Ingunn segir bifhjólastæðin viðurkenningu á að bifhjól séu hluti af íslenskri umferðarmenningu þar sem öllum þarf að lynda saman. „Eðlilega þurfa borgaryfirvöld svo að hagræða fyrir bifhjólafólk líkt og gert hefur verið fyrir reiðhjólafólk víða í borginni.“ Bifhjólastæðin eru sérmerkt skiltum sem Sniglar létu útbúa og vonast til að fari sem víðast. „Sniglar eru hagsmunasamtök bif- hjólafólks um land allt og að sjálfsögðu eru stæðin fyrir allt bif- hjólafólk, burtséð frá klúbbum eða félögum,“ segir Iðunn. Lesendur eru hvattir til að hafa samband við stjórn Snigla ef þeir hafa hugmynd um hentuga staði fyrir bifhjólastæði, netfang er stjorn@sniglar.is. Bifhjólastæði í fyrsta sinn Í Smáralind eru stæði fyrir sex bifhjól og hvetur Iðunn bifhjólafólk til að notfæra sér stæðin til að sýna þörfina í verki. MYND/IÐUNN ARNARSDÓTTIR Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | sími 540 4900 Facebook/YamahaMotorIsland www.yamaha.is Þú ferð lengra á Yamaha! Sérpöntum mótorhjól - afhendingartími 2 vikur Motocross er frekar ung íþrótt á Íslandi en samt sem áður er fjöldi þeirra sem stunda hana mikill. Moto- cross-íþróttin er innan vébanda Mótorhjóla & snjósleðaíþrótta- sambands Íslands, MSÍ, og er það fimmta stærsta sérsambandið innan ÍSÍ. Um fimm þúsund iðk- endur og keppendur eru skráðir innan MSÍ. „Í hverri keppni eru 90 til 140 keppendur á ráslínu,“ segir Sverrir Jónsson, liðstjóri Team Yamaha. „Fjórtán einstaklingar munu keppa fyrir Team Yamaha í sumar og að öllum líkindum verður þetta eitt fjölmennasta liðið. Við erum með mjög efnilegt unglingalið en við gerum okkur vonir um að þeir Þorsteinn Helgi Sigurðsson og Óliver Örn Sverrisson berjist um titilinn í sumar í sínum flokki. Svo er aðalfrétt ársins í sport- inu sú að margfaldur Íslands- meistari í motocrossi, Eyþór Reynisson, er kominn yfir í Team Yamaha frá Honda. Hann hefur verið einn besti ökumaður lands- ins síðustu fimm árin og hefur meðal annars vakið athygli á er- lendri grundu þar sem hann hefur verið að keppa. Við bindum vonir við að hann standi uppi sem sigurvegari í lok sumars í sínum flokki.“ Ný Yamaha-hjól uppseld strax Sverrir segir fjölda þátttakenda í motocrossi vera að aukast en nokkur niðursveif la hafi orðið á árunum í kringum hrunið. „Íþróttin er mjög skattlögð og lík- legast sú íþróttagrein sem er mest skattlögð af öllum þeim sem hér eru stundaðar. Auk þess að bera þó nokkur vörugjöld þurfum við líka að borga skatta og gjöld af bensíni sem renna til vegagerð- ar þó við notum ekki vegina og keppum í lokuðum brautum. Af þeim sökum fækkaði þeim sem stunda íþróttina nokkuð á þeim tíma vegna hækkandi verðlags. Nú hefur Arctic Trucks endurreist Team Yamaha en hjá þeim má fá fjölbreytt úrval Yamaha-moto- crosshjóla fyrir flesta aldurshópa.“ Yamaha kom með ný hjól á markað í vor, bæði í 250cc (rúm- sentimetrum) og í 450cc en þau heita Yamaha YZ250F og YZ450F. „Yamaha YZ250F hefur hvarvetna verið kosið eitt besta hjól ársins í helstu fjöl- og vefmiðlum heims. Það þykir afskaplega vel heppnuð smíði og það sem stendur upp úr er mótor, fjöðrun og léttleiki. Hjólið er uppselt hjá framleiðanda og er ófáanlegt í Evrópu vegna mikill- ar eftirspurnar. Öll hjól sem komu til landsins eru uppseld og seldust þau áður en þau komu til lands.“ Ein erfiðasta íþróttin Allir meðlimir Team Yamaha keppa bæði í enduro og moto- crossi en helsti munurinn er sá að í motocrossi er keppt í afmark- aðri braut. „Í enduro er keyrt eftir slóðum og stígum en í motocrossi er keyrt hring eftir hring í lokaðri braut. Líf motocross-ökumanns- ins sem keppnismanns er ekki mjög langt því að líkamlega er þetta ein erfiðasta keppnisíþrótt sem til er. Fólk ímyndar sér að þetta sé ekkert mál, að það sé bara setið á rassinum og snúið upp á rör. Ég hef sjálfur verið í mörgum íþróttum og þetta er það lang- erfiðasta sem ég hef gert. Ég var í góðu formi þegar ég byrjaði en ég komst bara þrjá hringi lullandi í öðrum gír en menn fara allt upp í tuttugu hringi á fullum hraða í keppni og það í tvígang sama dag- inn,“ segir Sverrir og hlær. Ekki bara setið á rassinum og stýrt Motocross er vinsæl íþrótt á Íslandi en áætlað er að um fimm þúsund manns stundi torfæruakstur af einhverju tagi hér á landi. Yamaha- motocross-hjól fást í fjölbreyttu úrvali fyrir flesta aldurshópa hjá Arctic Trucks en fyrirtækið styður einnig við bakið á Team Yamaha. Björk Erlings- dóttir á Yamaha YZ250F sem seldist upp áður en það kom til landsins. Björk keppir í kvennaflokki fyrir Team Yamaha en hún er fædd árið 1967.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.