Fréttablaðið - 27.05.2014, Síða 38
27. maí 2014 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 30
„Ég er svo viðkvæm sál, ég er farinn að svitna,“
segir Ásgeir Ásgeirsson, betur þekktur sem frétta-
ljósmyndarinn Geirix hjá PressPhotos, en hann
opnar sína fyrstu einkasýningu, Á nærfötunum:
Hin hliðin á íslenskum stjórnmálum, í Tjarnarbíói
klukkan sex í dag. „Maður er búinn að sanka að sér
myndum í gegnum tíðina sem passar ekki að hafa í
fréttum, svona húmorsatvik sem gerast bak við tjöld-
in. Og vegna þess að það eru kosningar þá var hugs-
unin að hafa smá húmor, létta fólki lundina og leyfa
því að brosa,“ segir Ásgeir.
Aðspurður hvort ekki hefði verið erfitt að fá póli-
tíkusana til að taka þátt sagðist Ásgeir ekki hafa gefið
þeim neitt val. „Ég sneri upp á handlegginn á þeim og
fékk að lokum leyfi frá þeim til að sýna þessar óvana-
legu myndir,“ segir Ásgeir og hlær. „Raunveruleik-
inn er oft skondnari en fólk sér í fréttum.“
S. Björn Blöndal, borgarstjóraefni Bjartrar fram-
tíðar, og frambjóðendur Pírata munu formlega opna
sýninguna með því að afhjúpa einstakar myndir af
sér, þar sem þau sýna á sér nýjar og óvæntar hlið-
ar. „Ég býst við því að þurfa að fela mig undir pils-
faldinum á vertinum þegar borgarstjóraefnin koma
hlaupandi á eftir mér,“ segir Ásgeir að lokum. - ósk
Maður er búinn að sanka að sér
myndum í gegnum tíðina sem passar
ekki að hafa í fréttum
Ásgeir Ásgeirsson, ljósmyndari
„Mér hefur verið líkt við svo mikið af fólki að ég hef
ekki spáð mikið í þessu,“ segir hinn 25 ára gamli
Sigurður Örn Einarsson. Hann þykir vera sláandi
líkur knattspyrnugoðinu David Beckham þó hann
sé talsvert yngri en David sem verður fertugur á
næsta ári. Sigurður tekur sjálfur ekki eftir þessum
líkindum.
„Mér finnst ég ekki vera neitt sérstaklega líkur
honum en það er betra að vera líkt við Beckham en
til dæmis Bill Murray,“ segir hann og hlær.
„Ég hef heyrt þetta frá nokkrum upp á síðkastið
sem ég þekki ekki neitt. Í síðustu viku voru held ég
þrír sem líktu mér við Beckham,“ segir Sigurður en
tekur fram að enginn hafi ruglast á þeim tveimur.
„Ég virði kallinn enda er hann goðsögn. En það
hefur enginn tekið feil á okkur enn þá. Ef það gerist
spila ég með. En mér hefur líka verið líkt við James
Franco og í síðustu viku var mér líkt við Ryan Gosl-
ing. Ég hef fengið að heyra að ég líti út fyrir að vera
hvaðan sem er eða ekki neins staðar frá,“ segir Sig-
urður glaður í bragði. - lkg
Tvífari Davids Beckham
„Það hefur enginn tekið feil á okkur enn þá,“ segir Sigurður Örn Einarsson.
SLÁANDI LÍKIR Á þessum tveimur myndum sést hve líkir
Sigurður og Beckham eru. MYND/ÚR EINKASAFNI
Langar að segja að uppáhalds-
myndin mín sé einhver framúr-
stefnuleg frönsk nýbylgjumynd frá
7. áratugnum en verð að viðurkenna
að ég hef enga mynd séð jafn oft og
This is Spinal Tap, bæði drepfyndin
og snertir mann líka á einhvern
furðulegan og fallegan hátt.
Hannes Óli Ágústsson, leikari
BÍÓMYNDIN Sneri upp á handlegg pólitíkusa
Fréttaljósmyndarinn Geirix fangar nýjar hliðar á stjórnmálamönnum og -konum.
EIN MYNDANNA Á SÝNINGUNNI
Geirix hefur náð mörgum skemmti-
legum myndum gegnum árin sem ekki
hafa passað í fréttir. MYND/GEIR
„Hver og einn bloggari mun ein-
blína svolítið á sitt eigið en vef-
síðan verður samansafn af tísku,
innanhússhönnun, lífsstíl, mat
og menningu, með smá innsýn í
persónulega lífið,“ segir Sylvía
Dagmar Briem Friðjónsdóttir,
en Sylvía er í hópi sex bloggara
sem stofnað hafa bloggið Femme.
is. Stúlkurnar koma víða að og
segir Sylvía að fjölbreytileikinn
verði allsráðandi. „Ég hef sjálf
verið að þjálfa á Dale Carnegie,
hef unnið mikið með fólki og verð
því með áhugaverð viðtöl við fólk
og fleira skemmtilegt. Alexandra
Helga mun birta alls konar upp-
skriftir, bæði hollar og óhollar,
Marta Rún verður með umfjöll-
un um mat og menningu, Sara
Dögg er innanhússarkitekt og
mun taka púlsinn á því sem er að
gerast í þeim bransanum, Edda
mun koma inn á tísku og listir og
Sara Sjöfn er mikil áhugamann-
eskja um hönnun og ætlar að
veita innsýn í hönnunarheiminn.“
Edda Gunnlaugsdóttir bloggar
einnig á síðunni en hún segir
undirbúningsferlið hafa verið
stórskemmtilegt. „Við komum
allar úr mismunandi áttum og
erum með mismunandi áhuga-
mál. Sumar höfðu verið að
blogga áður en aðrar höfðu
mikinn áhuga á því að byrja að
skrifa og á fyrsta fundi kom
okkur öllum ótrúlega vel saman.“
Sylvía segir að bloggheimurinn
hér á landi hafi sótt í sig veðr-
ið undanfarin ár. „Það eru gríð-
arlega mörg blogg að spretta
upp núna sem er alveg ótrúlega
skemmtilegt. Fólk í dag er mikið í
tölvunni og því er gaman að geta
skoðað eitthvert skemmtilegt les-
efni á vefnum.“
kristjana@frettabladid.is
Sameina áhugamálin
á vefsíðunni Femme
Á bloggsíðunni Femme.is ætla sex ungar konur að fj alla um áhugamál sín á
borð við tísku, matargerð, menningu og innanhússhönnun í bland við smá
innsýn í persónulegt líf þeirra en þær eru búsettar víðs vegar um heiminn.
KOMIN Í LOFTIÐ Bloggsíðan Femme.is er farin í loftið en á vefnum verður samansafn af áhugamálum sex ungra kvenna. Á
myndinni má sjá þær Söru Dögg Guðjónsdóttur, Mörtu Rún Ársælsdóttur, Eddu Gunnlaugsdóttur og Söru Sjöfn Grettisdóttur.
Sumar höfðu verið
að blogga áður en aðrar
höfðu mikinn áhuga á
því að byrja að skrifa og
á fyrsta fundi kom okkur
öllum ótrúlega vel
saman.
Edda Gunnlaugsdóttir