Fréttablaðið - 30.05.2014, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 30.05.2014, Blaðsíða 2
30. maí 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 STJÓRNMÁL Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætis- ráðherra og formaður Framsóknarflokksins, tekur ekki afstöðu til ummæla oddvita flokksins í Reykjavík um lóð fyrir mosku í yfirlýsingu sem hann birti á Facebook- síðu sinni í gær. Þar sagðist Sigmundur ekki vilja blanda sér í þessa umræðu. Hann tók fram að í stefnu flokks- ins endurspeglist að allir séu fæddir jafnréttháir. Sigmundur Davíð vildi ekki veita Fréttablaðinu við- tal vegna málsins. „Það er með ólíkindum hvað menn leggjast sumir lágt í tilraunum til að koma höggi á pólitíska andstæðinga. Þegar menn seilast svo langt að saka heilu hópana um kynþáttaníð að ósekju þá er það ekki bara alvarlegt mál fyrir þá sem fyrir því verða heldur fyrir samfélagið allt. Með því að misbeita slíkum ásökunum er verið að draga úr þeim mikilvæga þunga sem þarf að liggja að baki baráttu gegn kynþáttahyggju,“ skrifar Sigmundur. Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti lista Framsóknar og flugvallarvina, sagði í viðtali við frétta- vefinn Vísi síðastliðinn föstudag að hún vildi láta aftur- kalla lóðarúthlutun undir mosku í Sogamýri til Félags múslima á Íslandi. Ummælin hafa verið afar umdeild. Samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Stöðv- ar 2 og Fréttablaðsins, sem birt var í gær, fær Fram- sókn 9,2 prósent atkvæða, sem tryggir flokknum einn borgarfulltrúa. Í síðustu könnun Fréttablaðsins, sem gerð var í lok apríl, mældist flokkurinn með 5,2 pró- sent atkvæða. - ka, bj Forsætisráðherra vill ekki blanda sér í umræðu um mosku í Reykjavík: Tekur ekki afstöðu til ummæla RAUF ÞÖGNINA Sigmundur Davíð Gunnlaugsson birti í gær yfirlýsingu á Facebook þar sem hann tjáir sig um ummæli Svein- bjargar Birnu sem vakið hafa mikla athygli. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Treystirðu Dilly fyrir Billy? „Auðvitað, annað væri silly.“ Bergur Þór Ingólfsson mun leikstýra Billy Elliott sem frumsýndur verður í Borgar- leikhúsinu í mars. Sex ungir strákar verja sumrinu í þjálfunarbúðum fyrir hlutverkið og mun Elizabeth Greasley, eða Dilly, koma til með að þjálfa strákana. NÁTTÚRA Náttúruleg laxaseiði finnast víða í Jökulsá á Dal, eða Jöklu, og þar hefur hrygning og klak laxa því heppnast og sterk- ar vísbendingar eru um að sjálf- bær laxastofn sé að ná sér á strik í ánni. Búsvæði laxfiska hefur sannast vera um 110 kílómetr- ar frá ósi og langleiðina upp að Kárahnjúkavirkjun. Þetta kemur m.a. fram í nýrri skýrslu Veiðimálastofnunar um útbreiðslu og ástand seiða í Jöklu og hliðarám hennar í fyrrasum- ar, en höfundar hennar eru Guðni Guðbergsson og Eydís Njarðar- dóttir. Ljóst er að lax sem uppalinn er í Jöklu hefur aukist á síðustu árum, miðað við lax ættaðan úr hliðaránum sem eru nokkrar. Jafnframt bendir veiðidreifing síðasta sumars til þess að slepp- ingar smáseiða á efri svæði Jöklu séu farnar að skila sér í veiði og séu uppistaðan í hrygningar- stofni ársins 2013. Þröstur Elliðason hjá Veiði- þjónustunni Strengjum segir að með hverju árinu líti Jökla betur og betur út, og það sanni niðurstöður Veiðimálastofnunar. „Þegar við byrjuðum að sleppa smáseiðum upp allan Jökuldal þá var það gert upp á von og óvon. Svo kemur í ljós að það hefur tekist, og ég held því að þar séu miklir möguleikar til veiðinýt- ingar,“ segir Þröstur en tekur fram að lengi þurfi að bíða enn áður en fyrir liggur hversu gott veiðivatn Jökla reynist. Enn er verið að kanna ána, skrá veiði- staði og rannsaka kosti Jöklu til að fóstra laxfiska. Í skýrslu Veiðimálastofnunar segir að sá tími sem tekur laxfiska að full- nema allt vatnasvæðið verði líklega að lágmarki 15-20 ár. Á hraða landnámsins muni árferði, veiði og fiskræktaraðgerðir hafa áhrif en aðeins sjö ár eru síðan rekstur Kárahnjúkavirkjunar með tilheyrandi vatnsflutningum til Fljótsdals hófst, en nú er Jökla sennilega stærsta dragá landsins. Síðan hefur sú spurning brunn- ið á mönnum hvaða áhrif yfirfall Hálslóns hefur á seiðin í ánni, og nú virðist þeirri spurningu hafa verið svarað að hluta, en botn- gerð og uppeldisskilyrði fyrir lax eru víða ágæt. svavar@frettabladid.is Jökla fóstrar nú sinn eigin villta laxastofn Vísir að náttúrulegum laxastofni er að byggjast upp í Jökulsá á Dal. Búsvæði lax- fiska í ánni eru 110 kílómetrar og uppeldisskilyrði ágæt. Seiði laxfiska þola yfir- fallið frá Hálslóni. Allt að 20 ár munu líða áður en möguleikar til veiði liggja fyrir. JÖKLA Margir veiðistaðir í Jöklu eru ægifagrir en eiga það sameiginlegt að þar hefur aldrei maður komið með stöng, þeir hafa ekki gefið fisk og bera því ekki nafn– ennþá. MYND/PÁLL BENEDIKTSSON Miðað við bakkalengd allt að 110 kíló- metrum og möguleg uppeldisskilyrði á öllu því svæði finnst mér þetta gríðarlega spenn- andi, og gæti slegið út allt sem ég hef komið að áður. Þröstur Elliðason, Veiðiþjónustunni Strengjum. HEILBRIGÐI Nærri þriðji hver jarð- arbúi er nú of þungur, samkvæmt nýrri rannsókn sem birt var í gær. Ekki í einu einasta landi heims hefur tekist að draga úr offitu síð- ustu þrjá áratugina. Þetta kemur fram í læknatíma- ritinu The Lancet, en könnunin var gerð undir forystu vísindamanna við Washington-háskóla í Banda- ríkjunum. Meginniðurstöðurnar eru þær að meira en tveir milljarðar jarð- arbúa eru of þungir eða of feitir, og hefur ástandið versnað jafnt og þétt. Hæst er hlutfallið reynd- ar í Mið-Austurlöndum og norðan- verðri Afríku, þar sem nærri 60 prósent karla og 65 prósent kvenna eru of þung. Fram kemur að töluverð tengsl eru á milli fátæktar og offitu. Í svonefndum þróunarlöndum hefur fólk fitnað nokkuð eftir að hagur þess batnaði. Í vestrænum velferð- arlöndum hefur hins vegar aðeins tekið að hægja á þessari þróun á allra síðustu árum. - gb Ekkert hefur gengið að draga úr of itu mannkynsins undanfarna áratugi: Þriðji hver jarðarbúi of þungur TVÆR Á TALI Í NEW YORK Í Bandaríkj- unum búa 13 prósent þeirra jarðarbúa sem eiga við ofþyngd eða offitu að stríða. FRÉTTABLAÐIÐ/AP JAPAN, AP Eins manns úr áhöfn japanska olíuskipsins Shoko Maru er saknað eftir að skipið gjöreyðilagðist í sprengingu í fyrrinótt. Sjö manns var bjargað, en fjórir þeirra voru alvarlega særðir af völdum bruna. Mikil sprenging varð í skipinu út af suðvesturströnd lands- ins skammt frá hafnarborginni Himeji. Skipið er gjörónýtt, en það var 998 tonna tankskip gert út frá borginni Hiroshima. Orsakir sprengingarinnar voru ekki ljós- ar í gær. - gb Sprenging í olíuskipi: Eins úr áhöfn er saknað ORKUMÁL Samsetningu lýkur brátt á nýjum 100 MVA spenni í tengivirki Landsnets í Fljóts- dal. Þetta kemur fram á vefsíðu Landsnets. Samsetning spennis- ins hófst í síðustu viku. Verkefnið annast starfsmenn frá Orkuvirki, netrekstri Landsnets og ÞS verk- tökum. Verkið hefur gengið hratt og vel fyrir sig við góðar aðstæður. Gert er ráð fyrir að samsetning- unni ljúki á föstudag og að spenn- irinn verði kominn í rekstur í tengivirkinu í Fljótsdal í byrjun ágústmánaðar. - kóh Verður tilbúinn á föstudag: Nýr spennir Landsvirkjunar TYRKLAND, AP Hæstiréttur Tyrk- lands hefur úrskurðað að bann við notkun vefsíðunnar YouTube brjóti í bága við stjórnarskrá landsins. Tyrknesk stjórnvöld lokuðu aðgangi landsmanna að YouTube í mars síðastliðnum, eftir að þar hafði birst upptaka frá fundi rík- isstjórnar landsins. Á fundinum var fjallað um öryggismál og ráðherrar virtust vera að ræða um hugsanleg hern- aðarinngrip í Sýrlandi. - gb Stjórn Tyrklands í órétti: YouTube-bann er ekki löglegt FJÖR Í FLUGVÉLUM Börn og fullorðnir skemmtu sér vel við að skoða flugför af ýmsu tagi, en meðal skemmtiatriða var fallhlífarstökk, listflug, vélar sem nota stuttar flugbrautir, rússneskar listflugvélar og fisflugvélar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL SAMGÖNGUR Mikill fjöldi sótti flugsýningu sem Flugmálafélag Íslands stóð fyrir á Reykjavíkurflugvelli í gær. Flugdagurinn, sem haldinn er á hverju ári, tókst með afbrigðum vel. Veðráttan olli því að um morg- uninn var einkar blautt, en þegar leið á daginn batnaði veðrið svo um munaði. Metaðsókn var að flugsýningunni, en rúmlega sex þúsund happ- drættismiðar kláruðust, og áætlað er að um það bil átta þúsund manns hafi komið á flugsýninguna. - kóh Metaðsókn að árlegum Flugdegi á Reykjavíkurflugvelli í gær: Flugdagur heppnaðist mjög vel SPURNING DAGSINS FISKIKÓNGURINN HÖFÐABAKKA 1 v/Gullinbrú SÍMI 555 2800 FISKIKÓNGURINN S0GAVEGI 3 SÍMI 587 7755 www.fiskikongurinn.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.