Fréttablaðið - 30.05.2014, Síða 58
30. maí 2014 FÖSTUDAGUR| SPORT | 34SPORT
HM Í FÓTBOLTA Í BRASILÍU
13 DAGAR Í FYRSTA LEIK
KRÓATINN JOSIP SIMUNIC fær ekki að taka þátt í HM
í Brasilíu í sumar eftir að FIFA dæmdi hann í tíu lands-
leikja bann fyrir að nota fræga nasistakveðju til að
fagna sigrinum á Íslandi í umspilinu. Simunic er
þó einstakur í sögu heimsmeistarakeppninnar því
hann er sá eini sem hefur fengið þrjú gul spjöld í
einum og sama leiknum.
Enska dómaranum Graham Poll tókst að gefa
Simunic þrjú gul í leik á móti Ástralíu á HM í
Þýskalandi 2006 en hann skráði óvart fyrsta
gula spjaldið á leikmann með sama númer í liði
Ástralíu. Poll fékk ekki að dæma meira í keppn-
inni og hætti dómgæslu skömmu eftir keppnina.
www.tskoli.is
Raftækniskólinn
Kynntu þér námið á tskoli.is/raftaekniskolinn
Opið fyrir umsóknir á haustönn á
menntagatt.is til 31. maí.
Spennandi og fjölbreytt nám í rafvirkjun og rafeindavirkjun.
Átt þú samleið með okkur?
FÓTBOLTI KR hefur unnið tólf
fleiri bikarsigra en FH frá 2011
FH-ingar þurftu enn á ný að detta
snemma út úr bikarkeppninni í
gærkvöldi þegar KR-ingar slógu
FH-liðið út úr 32 liða úrslitum
keppninnar.
Baldur Sigurðsson tryggði KR
1-0 sigur á FH með skallamarki
í fyrri hálfleik og Vesturbæing-
ar hefndu þar með fyrir 0-1 tap
fyrir FH í deildinni fyrr í þessum
mánuði.
FH-liðið hefur þar með ekki
komist lengra en í sextán liða
úrslitin í síðustu fjórum bikar-
keppnum en á sama tíma hafa
KR-ingar unnið bikarinn tvisvar
og verið í undanúrslitum í öll
skiptin.
Nú er svo komið að KR-ingar
hafa unnið tólf fleiri bikarsigra
en FH-ingar frá og með bikar-
keppninni sumarið 2011 eða síðan
að FH vann 4-0 sigur á KR í bik-
arúrslitaleiknum 2010 á Laugar-
dalsvellinum. - óój
MIKILL MUNUR Á GENGI KR
OG FH Í BIKARNUM SÍÐUSTU ÁR:
KR Í BIKARNUM SÍÐUSTU FJÖGUR ÁR:
2014 - 16 úrslit (enn í gangi)
2013 - Undanúrslit (Stjarnan)
2012 - Bikarmeistari
2011 - Bikarmeistari
Samtals: 14 sigrar í 15 leikjum
FH Í BIKARNUM SÍÐUSTU FJÖGUR ÁR:
2014 - 32 liða úrslit (datt út fyrir
KR)
2013 - 16 liða úrslit (Stjarnan)
2012 - 32 liða úrslit (Fylkir)
2011 - 16 liða úrslit (KR)
Samtals: 2 sigrar í 6 leikjum
Bikargengi KR
betra en hjá FH
GENGUR VEL Rúnar Kristinsson er með
bikarinn á hreinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Tryggvi Guðmunds-
son, markahæsti leikmaður efstu
deildar frá upphafi, er ekki hætt-
ur að skora mörk þrátt fyrir að
vera horfinn af stóra sviðinu.
Markahrókurinn spilar nú með
vinum sínum í KFS frá Vest-
mannaeyjum í 4. deildinni og eins
og búast mátti við gengur honum
auðveldlega að skora í neðstu
deild Íslandsmótsins.
Hann setti eitt mark í fyrsta
leik á móti Ísbirninum og í gær
var hann í stuði og skoraði þrennu
er KFS valtaði yfir Stokkseyri,
9-0, á Stokkseyrarvelli.
Tryggvi er því kominn með
fjögur mörk í tveimur leikjum
og má fastlega búast við að þau
verði fleiri í sumar. - tom
Tryggvi ekki
hættur að skora
FÓTBOLTI Ísland mætir í dag liði
Austurríkis í vináttulandsleik sem
fer fram í Innsbruck. Landsliðið kom
saman fyrr í vikunni og hefur nýtt
tímann til að stilla strengina fyrir
leikinn sem og viðureignina gegn
Eistlandi á Laugardalsvelli í næstu
viku.
Heimir Hallgrímsson, annar lands-
liðsþjálfara Íslands, segir að leikirnir
gegni mikilvægu hlutverki í undir-
búningi liðsins fyrir undankeppni EM
2016 sem hefst í september. „Áður
fengum við alltaf æfingaleik í ágúst
en breyttar reglur FIFA gera það að
verkum að þessir dagar nú verða þeir
síðustu sem við fáum áður en við
komum saman í september,“ segir
Heimir.
„Við erum því í raun ekki mikið
að hugsa um þessa leiki, heldur að
hugsa fram í tímann. Við erum til
dæmis að æfa ýmislegt á æfingunum
hér úti sem við komum ekki til með
að nota í þessum leikjum,“ útskýrir
Heimir.
Að venju skipta úrslitin ekki höfuð-
máli í vináttuleikjum sem þessum
en Heimir segir að þjálfararnir vilji
nota leikina til að ná fram ákveðnum
þáttum í leik liðsins. „Það er auð-
vitað mikilvægt að vinna leiki en
úrslit leikjanna munu ekki endilega
ráða því hvernig við högum okkar
leik,“ segir Heimir.
Leikurinn hefst klukkan 19.00 í
kvöld og er í beinni útsendingu á
Stöð 2 Sport. - esá
Fyrst og fremst að hugsa um september
HEIMIR HALLGRÍMSSON
FÓTBOLTI Varnarmaðurinn Hörður
Björgvin Magnússon og félagar í
Spezia spila úrslitaleik í umspili
um sæti í Serie A í kvöld. Þetta er
fyrsta tímabil Harðar hjá Spezia,
eftir að hafa verið í varaliði stór-
veldisins Juventus undanfarin ár,
og líður honum vel hjá nýja liðinu.
„Mér hefur liðið vel hér, það
tóku allir vel á móti mér þegar
ég kom en það gekk illa að fá að
spila í byrjun. Þjálfarinn sem
fékk mig til liðsins var rekinn og
sá sem tók við, fyrrverandi þjálf-
ari U-21 landsliðs Ítala, hafði sínar
áherslur. Hann fékk til sín marga
leikmenn úr unglingalandsliðun-
um sem hann þekkti vel og ég datt
úr liðinu, hann fékk til sín mann í
mína stöðu. Sá leikmaður meidd-
ist um daginn og fyrir vikið hef ég
fengið að spila mikið undanfarnar
vikur,“ segir Hörður við Frétta-
blaðið.
Mikill munur á liðunum
Hörður lék fyrsta leik sinn í meist-
araflokki með Fram aðeins sext-
án ára gamall og gekk til liðs við
Juventus einu og hálfu ári síðar.
Hörður lék með varaliði Juven-
tus í tvö ár áður en hann gekk til
liðs við Spezia fyrir tímabilið með
sameiginlegum eignarhaldssamn-
ingi.
Í því felst að liðin eiga sinn
helminginn hvort í leikmannin-
um og semja þau um verð að loknu
tímabili. Komist liðin ekki að sam-
komulagi setja bæði liðin upphæð í
umslag og hærri upphæðin vinnur.
„Það er auðvitað mikill stigs-
munur á milli þessara liða. Að
fara úr Fram í varalið Juventus og
síðan hingað til Spezia. Hjá Juven-
tus voru sterkari og teknískari
leikmenn en ég hafði vanist og ég
þurfti að aðlagast því. Síðan kemur
upp sú staða að Juventus vildi að
ég færi á lán til að fá meiri reynslu
og Spezia var í góðu sambandi við
Juventus sem leiddi til þess að
þrír leikmenn fóru til Spezia. Nú
er verið að leggja niður sameigin-
lega eignarhaldskerfið sem þekk-
ist á Ítalíu og þá þurfa félögin að
ræða saman hvert framhaldið hjá
mér verður. Þetta gæti endað í
umslögunum. Þetta kerfi er ákveð-
ið öryggi fyrir mig, ég er með eitt
stærsta og sigursælasta lið Ítalíu á
bak við mig í þessu,“ segir Hörður.
Stoltur af kallinu
Hörður var valinn í landsliðið
fyrir æfingarleik gegn Eistlandi
í næstu viku en hann hefur leik-
ið með U21 árs liði Íslands undan-
farin ár.
„Það hefur alltaf verið draumur
minn að komast í A-landsliðið, ég
hef beðið lengi eftir þessu tæki-
færi. Ég hef verið að spila vel,
bæði með U-21 og með Spezia, en
þetta er mikill heiður fyrir mig.
Ég þarf að sanna mig rétt eins og
hver annar í liðinu og vonandi, ef
ég fæ tækifærið, get ég reynt að
sýna hvað ég hef fram að færa
fyrir liðið,“ segir Hörður.
Hann heyrði í Heimi Hallgríms-
syni landsliðsþjálfara á dögunum
en hann hefur ekki rætt við Lars
Lagerbäck.
„Ég hef lítið heyrt í þeim. Heim-
ir hringdi í mig um daginn til að
tilkynna mér þetta og hann sagði
mér að þeir hefðu verið að fylgjast
með mér. Lars sá leikinn gegn Bari
um daginn og var ánægður með
það sem hann sá. Heimir sagði
mér að ef við færum í úrslita-
keppnina myndu þeir reyna að
skoða mig seinna. Það er mjög gott
að heyra að ég sé ennþá í myndinni
ef ég kemst ekki í þetta skiptið og
að þeir vilji sjá mig spila og hafi
trú á mér. Maður vonar bara það
besta,“ segir Hörður.
Þrátt fyrir að vera miðvörður að
upplagi hefur Hörður leyst stöðu
vinstri bakvarðar með góðu gengi
í verkefnum U-21 árs landsliðs
Íslands. „Ég er miðvörður að upp-
lagi en ég hef og get spilað vinstri
bakvörð. Ég spila bara þá stöðu
sem þeir setja mig í og reyni að
standa mig sem best þar.“
Óvissa um þátttöku
Hörður var valinn í landsliðs-
hópinn gegn Eistum en ekki er á
hreinu hvort hann getur tekið þátt
í leiknum. Vinni Spezia, félagslið
hans, lokaleik deildarkeppninnar
í kvöld gegn Latina eru Hörður og
félagar á leiðinni í umspil um sæti
í Serie A á sama tíma.
„Þetta er jákvæður hausverk-
ur og allt telur. Báðir möguleikar
hafa sína kosti og sína galla. Við
verðum bara að gera okkar besta
og sjá hver niðurstaðan verður. Ef
leikurinn tapast verður það góð
sárabót að komast til Íslands og fá
að taka þátt í landsliðsverkefninu,“
segir Hörður. kristinnpall@365.is
Landsliðið alltaf draumurinn
Hörður Björgvin Magnússon, varnarmaður Spezia í B-deildinni á Ítalíu, var valinn í landsliðshópinn sem
mætir Eistum hér heima í næstu viku. Gæti misst af landsleiknum vegna umspils með Spezia.
EFNILEGUR Hörður Björgvin Magnússon í baráttunni í leik með Spezia í B-deildinni á Ítalíu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY