Fréttablaðið - 05.06.2014, Qupperneq 68
5. júní 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 52
1. Sítrónu- og hindberjastykki
Botn
8 muldar hafrakexkökur
3 msk. bráðið smjör
Hindberjasósa
1 bolli fersk hindber
2 msk. hunang
2 msk. vatn
Fylling
115 g mjúkur rjómaostur
¼ bolli grísk jógúrt
⅓ bolli „condensed milk“
1 egg
⅓ bolli „lemon curd“ (sítrónu-ystingur)
2 msk. hveiti
2 tsk. vanilludropar
⅛ tsk. salt
Hitið ofninn í 175°C og smyrjið 20
sinnum 20 sentimetra form. Myljið
hafrakexið í matvinnsluvél og blandið
því síðan saman við bráðið smjör.
Setjið blönduna í botninn á forminu og
bakið í um það bil átta til tíu mínútur.
Látið kólna. Blandið hindberjum, hun-
angi og vatni saman í potti yfir lágum
hita í um það bil fimm mínútur eða
þangað til sósan er orðin þykk. Hrærið
í blöndunni allan tímann. Setjið síðan
blönduna í gegnum sigti til að losna við
fræ og leyfið henni að kólna. Hrærið
rjómaost, gríska jógúrt og „condensed
milk“ saman í skál. Bætið eggi, lemon
curd, hveiti, vanilludropum og salti
saman við og hrærið allt saman í um
þrjár mínútur. Hellið blöndunni yfir
botninn. Setjið hindberjasósuna ofan á
hér og þar og notið tannstöngul til að
búa til rákir í kökuna. Bakið í tuttugu
mínútur. Kælið kökuna við stofuhita og
setjið í ísskáp í tvo tíma.
* Fengið á http://
www.sweetandsavorybyshinee.com
2. Sítrónu- og ólífuolíukaka
4 stór egg
1 bolli sykur
½ ólífuolía
2 ½ msk. sítrónusafi
1 bolli hveiti
½ tsk. lyftiduft
¼ tsk. salt
1 tsk. sítrónubörkur
¼ bolli flórsykur
Hitið ofninn í 175°C og smyrjið hring-
laga form. Hrærið egg og sykur vel
saman, í um það bil fimm mínútur.
Hrærið hveiti, lyftiduft, salt og börk
saman í annarri skál. Bætið olíu og
sítrónusafa varlega saman við eggja-
blönduna. Bætið síðan hveitiblöndunni
varlega saman við og passið að blanda
ekki of lengi og vel saman. Bakið í 40
til 45 mínútur þangað til kakan hefur
brúnast létt. Kælið kökuna og dustið
síðan flórsykri yfir.
* Fengið á http://
www.shebakeshere.com/
3. Sítrónuídýfa
230 g mjúkur rjómaostur
½ bolli grísk jógúrt
½ bolli lemon curd
1 tsk. vanilludropar
safi úr 1 sítrónu
Blandið öllum hráefnum vel saman og
dýfið ljúffengum ávöxtum í.
*Fengið á http://
www.lemontreedwelling.com/
4. Sítrónu- og
hvítsúkkulaðismákökur
1 ¾ bolli hveiti
1 tsk. maizena
1 tsk. matarsódi
½ tsk. salt
½ bolli sykur
½ bolli púðursykur
Börkur af 1-2 sítrónum
170 g mjúkt smjör
1 stórt egg
170 g hvítir súkkulaðibitar
Blandið saman hveiti, maizena, matar-
sóda og salti. Hrærið saman sykur,
púðursykur og sítrónubörk í annarri
skál. Bætið smjörinu við og blandið
saman í þrjár mínútur. Bætið egginu
saman við og hrærið vel. Bætið hveiti-
blöndunni við sykurblönduna en passið
að blanda ekki of vel saman. Hrærið
súkkulaðibitunum saman við með sleif.
Kælið deigið í um það bil klukkustund.
Hitið ofninn í 180°C. Búið til kúlur úr
deiginu og setjið á bökunarpappírs-
klædda ofnplötu. Bakið í um það bil
átta mínútur eða þangað til kökurnar
brúnast aðeins en miðjan er mjúk.
Fengið á http://
prettysimplesweet.com/
Sumarleg
sítrónusætindi
Sítrónan hefur ekki verið móðins í bakkelsi síðustu ár en nú er hennar tími
kominn. Hér eru nokkrar hugmyndir að sumarlegum sítrónuréttum.
➜ Sítrónur
innihalda
gríðarlega mikið
magn af
C-vítamíni
1
3
2
4
Stórkostleg myndgæði
42” 3D LED SJÓNVARP KDL42W828
Full HD 1920 x1080 punktar
400 Hz X-Reality myndvinnslukerfi
Nettengjanlegt og innbyggt WiFi
TILBOÐ 179.990.- VERÐ ÁÐUR 199.990.-
Örþunnt og flott
32” SJÓNVARP KDL32R435
HD Ready 1366 x768 punktar
100 Hz X-Reality myndvinnslukerfi
Multimedia HD Link
VERÐ 99.990.-
48” risi á góðu verði
48” LED SJÓNVARP KDL48W605
Full HD 1920 x1080 punktar
200 Hz X-Reality myndvinnslukerfi
Nettengjanlegt og innbyggt WiFi
VERÐ 199.990.-
Bravia
Hannað fyrir fótbolta
Sony Center
Verslun Nýherja Borgartúni og Kringlunni / 569 7700
Verslun Nýherja Kaupangi Akureyri / 569 7645
5 ÁRA ÁBYRGÐ FYLGIR ÖLLUM SJÓNVÖRPUM
42”
á frábæru tilboði
179.990.-