Fréttablaðið - 16.06.2014, Blaðsíða 4
16. júní 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 4
SLYS Á árunum 2009 til 2013
mátti rekja 109 slys í umferð-
inni til ógætilegs framúraksturs
og önnur 205 til of mikils hraða,
samkvæmt tölum úr slysaskrám
Samgöngustofu og VÍS.
Vegagerðin hefur unnið
áhættumat á vegum landsins
og sett upp merki til að vara við
yfirvofandi hættum svo sem
kröppum beygjum og lausagöngu
dýra. Síðastliðinn áratug mátti
rekja þrjú banaslys til ógætilegs
framúraksturs. Samkvæmt töl-
fræði Samgöngustofu voru skráð
15 slys í fyrra þar sem einhver
slasaðist af þessum sökum. Vart
þarf að sökum að spyrja ef bílar
skella saman á 90 km/klst. - sój
Mikill hraði í umferðinni:
109 slys vegna
framúraksturs
LÖGREGLUMÁL Sérstakur saksókn-
ari hefur nú til skoðunar að fella
niður tíu mál þar sem grunur er
um brot á reglum um gjaldeyrismál
þar sem reglurnar teljast ekki tæk
refsiheimild. Seðlabanki Íslands lét
fyrir farast að leita staðfestingar
ráðherra á reglunum í lok árs 2008
eins og áskilið var í lögum. Sér-
stakur saksóknari hefur þegar fellt
niður sjö slík mál hjá embættinu.
Í Aserta-málinu svokallaða er
fjórum mönnum gefið að sök að
hafa brotið gjaldeyrislög en því
máli var vísað frá af héraðsdómi
þar sem ákæran uppfyllti ekki
kröfur sakamálalaga um skýrleika
ákæru. Hæstiréttur hefur sent
málið aftur til héraðsdóms.
Reglur um gjaldeyrismál sem
mennirnir eru grunaðir um að hafa
brotið voru hins vegar ekki rétti-
lega settar því það vantaði staðfest-
ingu viðskiptaráðherra á reglunum
eins og lög um gjaldeyrismál gerðu
áskilnað um. Þetta er staðfest í
bréfaskiptum milli aðila málsins.
Sérstakur saksóknari byggði í
málinu fyrir Hæstarétti eingöngu
á lögum um gjaldeyrismál en ekki
umræddum reglum þar sem fyrir
lá að þær gætu ekki talist tæk refsi-
heimild.
Seðlabankinn kærði ákvörðun
sérstaks saksóknara um að fella
málin niður til ríkissaksóknara
sem staðfesti ákvörðunina. - þþ / fbj
Seðlabankinn gleymdi að fá staðfestingu ráðherra á reglum um gjaldeyrismál:
Fellir niður mál vegna mistaka
SEÐLABANKI ÍSLANDS Ef sérstakur
saksóknari fellir niður tíu mál vegna
mistakanna við reglugerðina hafa alls
17 mál endað á þann veg.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
➜ Í Aserta-málinu svokallaða
er fjórum mönnum gefið að
sök að hafa brotið gjaldeyrislög.
KJARAMÁL Samningar tókust ekki
við flugvirkja Icelandair í gær en
fundað var í húsakynnum ríkis-
sáttasemjara frá klukkan tvö
til rétt rúmlega sjö um kvöldið.
Í dag skellur á eins dags vinnu-
stöðvun flugvirkja en næstkom-
andi fimmtudag hefst ótímabund-
ið verkfall ef ekki næst að semja
fyrir þann tíma.
„Þessu miðar mjög hægt,“ segir
Maríus Sigurjónsson, formað-
ur samninganefndar flugvirkja.
„Það er allavega ekki komin nið-
urstaða sem menn eru sáttir við.“
Ljóst er að vinnustöðvun í dag
veldur Icelandair talsverðu fjár-
hagslegu tjóni en fella þurfti
niður 65 flug hjá félaginu sem
hefur áhrif á um tólf þúsund far-
þega. Maríus segir að samnings-
aðilar hafi samt sem áður rætt
málin af ró í gær.
„Fundurinn var kannski
jákvæðari en ég átti von á,“ segir
Maríus. „Þegar það er komið út í
það að röskunin verður óumflýj-
anleg, þá kannski verður harkan
meiri. En það var allavega rætt
saman. Það var ekki skilið með
neinum látum.“
Ekki liggur fyrir hversu miklu
tjóni vinnustöðvunin mun valda
Icelandair en Samtök atvinnu-
lífsins áætluðu í vor að þegar flug
raskaðist vegna verkfalla flug-
manna næmi heildartjónið um
milljarði á dag. Ljóst er að tjónið
sem verður vegna vinnustöðvunar
í dag verður mun meira.
Guðjón Arngrímsson, upplýs-
ingafulltrúi Icelandair, segir
fyrir tækið ekki byrjað að horfa
til þess hvernig bregðast eigi við
verkfalli á fimmtudag.
„Við hljótum að vona að það
náist samningar fyrir þann tíma,“
segir Guðjón.
Bein afskipti stjórnvalda gætu
mögulega komið í veg fyrir ótíma-
bundið verkfall. Hanna Birna
Kristjánsdóttir sagði í vor, í
tengslum við verkfallsaðgerðir
flugmanna, að hún myndi ekki setja
lög á kjaradeilur nema í neyð og þá
ekki án þess að kalla saman þing.
Þær upplýsingar fengust frá
innanríkisráðuneytinu í gær að
ekki hefði verið tekin ákvörðun
um að setja lög á verkfallið. Það
hefði þó ekki verið slegið út af
borðinu og grannt væri fylgst með
stöðu mála. bjarkia@frettabladid.is
Samningar tókust
ekki við flugvirkja
Í dag skellur á vinnustöðvun flugvirkja hjá Icelandair. Kjarasamningar tókust ekki
í gær og mun ótímabundið verkfall hefjast á fimmtudag að óbreyttu. Innanríkis-
ráðherra segist ekki hafa tekið ákvörðun um hvort setja eigi lög á verkfallið.
FLUGSTÖÐ LEIFS EIRÍKSSONAR Fella þurfti niður 65 flug Icelandair í dag vegna vinnustöðvunarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
4,9 er hækkun launa að meðaltali hjá opin-
berum starfsmönnum á fyrsta
ársfjórðungi 2014 í prósentum.
Hækkunin var 5,7 prósent á
almennum vinnumarkaði.
Heimild: Hagstofa Íslands
SVEITARSTJÓRNARMÁL Fyrsti fund-
ur nýrrar borgarstjórnar verður
haldinn í Ráðhúsinu í Reykjavík í
dag klukkan tvö.
Kjartan Magnússon, borgarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins, setur
fundinn sem starfsaldursforseti
og stýrir fundi þar til Sóley Tóm-
asdóttir, fulltrúi Vinstri grænna,
verður kjörin forseti borgar-
stjórnar. Kosið verður í allar
nefndir og ráð en sætum er úthlut-
að samkvæmt d’Hondt-reglunni.
Dagur B. Eggertsson, verðandi
borgarstjóri, segir skipan nefnda
verða með sama hætti og áður
utan þess að nýtt stjórnkerfis- og
lýðræðisráð verður stofnað undir
forystu Halldórs Auðar Svans-
sonar, oddvita Pírata, sem og að
nefndarmönnum í skipulagsráði
verður fækkað úr níu í sjö. - fbj
Skipað í ráð og nefndir:
Fyrsti fundur
borgarstjórnar
HEFUR STÖRF Samkvæmt sveitar-
stjórnarlögum skal ný sveitarstjórn taka
við stjórn fimmtán dögum eftir kjördag.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SAMFÉLAGSMÁL Sumarhátíð
félagsins Einstök börn fór fram
um helgina á Gufunesi. Um er
að ræða árlega skemmtun en í
félaginu eru hátt í 250 börn sem
eiga við sjaldgæfa sjúkdóma að
stríða.
„Það voru allir rosalega glaðir,“
segir Guðrún Helga Harðardótt-
ir, framkvæmdastjóri félagsins.
Að sögn Guðrúnar Helgu fengu
börnin meðal annars heimsókn
frá Sollu stirðu, Íþróttaálfinum
og töframanni. „Svo voru hestar
til að gefa börnum tækifæri til að
fara á hestbak sem hafa ekki oft
möguleika á því.“ - bá
Gleðidagur á Gufunesi:
Einstök börn á
sumarhátíð
VEL HEPPNUÐ HÁTÍÐ Börnin fengu
meðal annars heimsókn frá Sollu stirðu
úr Latabæ. MYND/EINSTÖK BÖRN
LÖGREGLUMÁL
Skurðarbretti á eldavél
Slökkviliðið var kallað að Þingholts-
stræti í Reykjavík um tvöleytið í gær.
Reyk lagði út um opinn glugga. Í ljós
kom að reykinn lagði frá skurðarbretti
sem skilið hafði verið eftir á elda-
vélarhellu. Lögregla komst inn til að
slökkva á eldavélinni. Slökkvilið sá
um reykræstingu og voru skemmdir
óverulegar.
Datt á reiðhjóli
Reiðhjólaslys varð á Geirsgötu við
Kolaportið í gær. Þar datt drengur á
reiðhjóli. Hann var fluttur á slysadeild
til aðhlynningar. Meiðsli hans eru ekki
talin alvarleg.
Ingibjörg Karlsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
17. JÚNÍ Norðaustanlands verður bjart með köflum fram eftir degi og hiti gæti farið
yfir 20 stig en síðdegis þykknar upp. Sunnan og vestan til má búast við lítilsháttar
úrkomu fyrri hluta dags en svo bætir í úrkomuna síðdegis.
12°
5
m/s
12°
3
m/s
13°
6
m/s
11°
8
m/s
Fremur
hægur
vindur
víðast
hvar.
Fremur
hægur
vindur
víðast
hvar.
Gildistími korta er um hádegi
25°
31°
20°
22°
18°
15°
23°
19°
19°
26°
17°
26°
25°
31°
24°
20°
20°
23°
12°
4
m/s
12°
4
m/s
19°
3
m/s
14°
2
m/s
17°
3
m/s
14°
3
m/s
8°
3
m/s
14°
11°
12°
10°
14°
16°
21°
12°
17°
12°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
MIÐVIKUDAGUR
Á MORGUN