Fréttablaðið - 16.06.2014, Side 14
16. júní 2014 MÁNUDAGUR| SKOÐUN | 14
Það er hægt að deila um
hvort alheimsvæðing sé
jákvæð framför eða ekki
en engu að síður er hún
augljós staðreynd. Helsta
afleiðing alheimsvæð-
ingarinnar á samfélög er
óhjákvæmileg blöndun
kynþátta, trúarbragða og
ólíkra menningarheima.
Þetta er það sem almennt
er kallað fjölmenning.
Sumir eiga bágt með að
samþykkja slíka blöndun
og einblína á neikvæðar hliðar
hennar. Þeir álíta sig ekki endi-
lega fordómafulla; hafa ekkert á
móti „þessu fólki“ eða ólíkum við-
horfum og siðum – en eru oftar en
ekki þeirrar skoðunar að það sem
er öðruvísi eða ólíkt því sem þeir
eiga að venjast eigi betur heima
annarstaðar. Oft eru þessi viðhorf
skilgreind sem fordómar.
Ég leyfi mér að fullyrða að
það er sjaldnast hrein illska sem
liggur að baki slíkum fordómum.
Ástæðan er miklu frekar skortur á
skilningi, umburðarlyndi og þekk-
ingu á því sem telst vera öðruvísi.
Þar að auki er margt sem hefur
áhrif á þessar skoðanir fólks og
nægir þar að nefna einhæfar
staðalmyndir ólíkra menningar-
og trúarhópa sem birtast okkur í
fjölmiðlum og vestrænni
dægurmenningu – þ. á m.
í kvikmyndum.
Enginn efast um áhrifa-
mátt kvikmyndanna. Hér
á landi getum við nálg-
ast afþreyingu í hæsta
gæðaflokki en vert er að
benda á að íslensk afþrey-
ing er í aðra röndina hálf-
gerð framlenging á vest-
rænni dægurmenningu.
Það mætti hæglega færa
fyrir því rök að heimssýn-
in sem birtist í þessu afþreying-
arefni sé einhliða og endurspegli
ekki þann menningarlega fjöl-
breytileika sem þrífst hérlendis
(eða bara hvar sem er).
Upplýsandi reynsla
Við sem störfum hjá Alþjóð-
legri kvikmyndahátíð í Reykja-
vík (RIFF) erum sannfærð um
að upplifunin við að horfa á þær
kvikmyndir sem sýndar eru á
hátíðinni séu oftar en ekki upplýs-
andi og áhrifamikil reynsla sem
áhorfendur taki með sér út í lífið.
Kvikmyndahátíðin RIFF hefur þá
sérstöðu að sameina ólíka menn-
ingarheima og býður gestum
sínum inn í alþjóðlega veröld sem
endurspeglar áhugaverðar sögur
frá fjölbreytilegum og ólíkum
samfélögum. Þannig viljum við
meina að hátíðin stuðli á ákveðinn
hátt að víðsýni og dragi jafnvel úr
fordómum fyrir því sem kann að
þykja öðruvísi.
Í fjölmenningarsamfélagi eins
og því sem er á Íslandi er nauðsyn-
legt að rækta umburðarlyndi og
skilning gagnvart samborgurum
sínum. Það er ekki bara skynsam-
legt og réttlátt heldur snýr einn-
ig að grundvallarmannréttindum.
Við hjá RIFF kvikmyndahátíð
erum stolt af því að geta miðlað
ólíkum menningarheimum, við-
horfum og sögum til Íslendinga
á alþjóðlegum vettvangi. Við von-
umst því til að sjá sem flesta á
RIFF-hátíðinni í september.
Hvers vegna er RIFF mikilvæg
fjölmenningarsamfélaginu?
Flest ágreiningsmál vegna
fasteignaviðskipta eru um
um galla, bæði hvort fast-
eign sé yfirhöfuð gölluð og
hvort ágallinn sé þannig
vaxinn að kaupandi eigi rétt
á skaðabótum eða afslætti
af kaupverði fasteignar-
innar. Það er nefnilega ekki
alltaf þannig að kaupandi
eigi rétt á afslætti af kaup-
verði fasteignar þó að ágalli
sé á eigninni.
En hvenær á kaupandi
gallaðrar fasteignar rétt á
afslætti eða skaðabótum? Í laga-
legum skilningi er fasteign gölluð
ef hún stenst almennt séð ekki þær
kröfur um gæði, búnað og annað
sem leiðir af lögum um fasteigna-
kaup og kaupsamningi. Þá getur
fasteign talist gölluð ef hún hentar
ekki til þeirra afnota sem sambæri-
legar eignir eru venjulega notaðar
eða til þeirra sérstöku afnota fyrir
kaupanda sem um var samið.
Þrátt fyrir þetta telst notuð fast-
eign ekki gölluð í hinum lagalega
skilningi nema ágallinn rýri verð-
mæti fasteignarinnar svo „nokkru
varði“ eða seljandinn hafi sýnt af
sér saknæma háttsemi. Sá sem
kaupir notaða eign borgar minna
en sá sem kaupir nýja eign og tekur
þar með á sig áhættu af minniháttar
ágöllum.
Aldur og ástand skiptir máli
En hvað þýðir að ágalli rýri verð-
mæti fasteignar „svo nokkru
varði“? Frá því að lögin um fast-
eignakaup tóku gildi fyrir tæpum
12 árum hafa fallið nokkrir tugir
dóma í Hæstarétti þar sem reynt
hefur á þetta. Aldur og ástand fast-
eignar skiptir máli við mat á því
hvaða kröfur kaupandi getur gert
til fasteignar. Kaupandi nýrrar
fasteignar getur gert meiri kröfur
en kaupandi gamallar fasteignar.
Sá sem hefur keypt nýlega fasteign
í góðu ástandi þarf ekki að sætta sig
við ágalla á fasteign sem kaupandi
40 ára gamallar fasteignar
þarf að sætta sig við.
Af dómum Hæstaréttar
má ráða að kaupandi nokk-
urra áratuga gamallar fast-
eignar eigi ekki kröfur á seljand-
ann ef það kostar innan við 8-10
prósent af kaupverði fasteignar-
innar að gera við ágallann. Ef kostn-
aður við lagfæringar er hins vegar
meiri þá getur kaupandinn átt rétt á
afslætti af kaupverðinu eða skaða-
bótum úr hendi seljandans. Þá hefur
Hæstiréttur ítrekað tekið það fram
í dómum sínum að sá sem kaupir
nokkurra áratuga gamla fasteign
megi gera ráð fyrir því að allt sé
upprunalegt eins og t.d. lagnir, inn-
réttingar og þak nema annað sé sér-
staklega tekið fram við kaup fast-
eignarinnar.
Þrátt fyrir framangreint getur
fasteign alltaf talist haldin galla
(þótt minniháttar sé) ef seljandi
hefur vanrækt að veita mikilvægar
upplýsingar við sölu fasteignarinnar
og það hefur haft áhrif á gerð eða
efni kaupsamningsins. Vanræksl-
an getur falist í því að veita rangar
upplýsingar, eða þegja yfir upplýs-
ingum um atriði sem seljandanum
eru kunn og hann veit eða má vita
að eðlilegt sé að upplýsa um.
Að síðustu er rétt að nefna að
kaupandi getur ekki borið fyrir sig
galla á fasteign sem hann vissi um
eða hefði átt að vita um. Þetta þýðir
að kaupandi getur ekki borið fyrir
sig galla sem hann sá eða mátti sjá
við skoðun á fasteign og á þar af
leiðandi ekki rétt á afslætti af kaup-
verði eða skaðabótum vegna þess-
ara galla.
Hvenær telst notuð
fasteign gölluð?
Augu manna hafa verið að
opnast fyrir því að í vind-
inum gæti falist auðlind
sem nýta má á hagkvæm-
an hátt til raforkuvinnslu.
Landsvirkjun hefur bent
á að vindorka gæti orðið
þriðja stoðin í raforku-
framleiðslu landsmanna
og tilraunir á Hafinu ofan
Búrfells lofa góðu.
Fyrir skemmstu skoð-
aði ég vindorkugarð (eða
vindlund, sbr. trjálund) í Þrænda-
lögum í Noregi. Hitra (520 km²) er
ein af stærri eyjum strandlengj-
unnar og þar getur blásið hressi-
lega. Íbúar Hitra eru um 4.200
talsins og starfa m.a. við laxeldi,
sem er stórtækt á þessum slóðum.
Eyjan er þekktur ferðamanna-
staður og fjöldi Þjóðverja kemur
á sumrin til handfæraveiða líkt og
vinsælt er hér. Tæplega sex kíló-
metra neðansjávargöng tengja
síðan eyjuna við fastalandið og
minna þau ískyggilega á okkar
Hvalfjarðargöng.
Fyrir 10 árum voru reistar á
miðri eyjunni, þar sem hún er
hæst, 24 vindmyllur með nefhjóli í
70 metra hæð. Aflgeta hverrar er
2,3 MW og vindgarðurinn er í um
300 metra hæð á klapparholtum
ofan við gisið skóglendi. Raforku-
framleiðslan hefur gengið það vel
að nú verður stækkað, bætt við 20
möstrum og heildaraflgetan fer
í 115 MW. Orkufyrirtækið SAE
vind sem rekur vindgarð-
inn er í 61% eigu Statkraft
(hin norska Landsvirkj-
un) og orkufélag á vegum
sveitarfélaga í S-Noregi á
afganginn. Hitra er einn
elsti af 11 sambærilegum
vindorkugörðum í rekstri
við sjávarsíðuna, allt frá
Suður-Noregi og norður
í Finnmörku. Reynslan
er það góð að fjölmargir
nýir vindlundir eru í und-
irbúningi. Fylkisstjórnin í Suður-
Þrændalögum vinnur eftir eigin
orkustefnu þar sem stefnt er að
því að vindorkan verði nýtt á fáum,
en stórum svæðum. Mest á lágum
fjöllum í 300-400 metra hæð þar
sem sýnileiki þeirra í umhverfinu
þykir hvað minnstur. Stefnt er allt
að 2 TWh í orkuvinnslu með vindi
í fylkinu árið 2020 og ætla Norð-
menn að vinnslan gæti orðið árlega
6-8 TWh í heild sinni. Til saman-
burðar er heildarraforkuvinnsla á
Íslandi 17-18 TWh á ári um þessar
mundir
Hár framleiðslukostnaður
Fjárfesting við fjölgun vindraf-
stöðva á Hitra ásamt tengingum
við flutningsnetið er áætluð um
760 millj. NOK. Það samsvarar
um 250 millj. ÍKR á hvert uppsett
MW vindorku. SAE vind áætlar að
framleiðslukostnaður sé um 10 til
11 ÍKR á kWh (0,53-0.58 NOK). Ég
er nokkuð viss um að á íslenskan
mælikvarða þykir það frekar hátt.
En engar framkvæmdir eru án
umhverfisáhrifa. Á Hitra hefur
verið fylgst náið með fugladauða
og þjálfaðir hundar látnir leita
reglulega. Stofn rjúpu er sterkur,
enda blasti við þróttmikið lyng-
lendi hvar sem farið var um eyj-
una. Starfsemin virðist ekki trufla
rjúpuna, en hins vegar hafa í allt 5
hafernir fundist örendir í grennd
við vindmyllurnar. Jarðvegsrask
er lítið sé rétt staðið að málum og
vindmyllur eru fjarlægðar eftir að
þær hafa lokið hlutverki sínu. Nýt-
ing vindorku er vistvæn í öllu til-
liti og rétt eins og vatnsorka losar
hún ekki gróðurhúsalofttegundir.
Í annarri grein verður fjallað um
möguleika á vindorku hér á landi.
Bæði mikil tækifæri sem bíða
okkar og þær takmarkanir sem
fylgja breytilegum vindinum og
samkeppnisforskoti vatnsorku og
einnig jarðvarma.
Mikil aukning vindorku í Noregi
Nýverið birtist í dagblöð-
unum auglýsing frá sveit-
arfélaginu Hornafirði um
að laus væru til umsókn-
ar leyfi til nýtingar á
landsvæði í Fjallsárlóni
(NB: í Fjallsárlóni, ekki
við Fjallsárlón).
Fyrir þá sem ekki til
þekkja er Fjallsárlón
nokkru vestan við Jökul-
lón á Breiðamerkursandi,
en miklu minna umleikis.
Nálægð skriðjökulsins og
fegurð og friðsæld svæðisins gerir
það eina af vel geymdum perlum
í náttúru Íslands. Í samanburði
við Breiðamerkurlón má segja að
umferð við Fjallsárlón sé hverf-
andi lítil þrátt fyrir gott aðgengi.
Nú virðist sem fyrir-
ætlanir séu uppi um að
fækka perlum í náttúru
íslands um eina með því
að „túristavæða“ Fjalls-
árlón. Koma fyrir þjón-
ustuhúsi og salernisað-
stöðu, og í framhaldi af
því væntanlega að fara að
gera út á lónið í einni eða
annarri mynd. Sjálfsagt
ekki hávaðalaust.
Ef erlendum ferðamönn-
um mun halda áfram að
fjölga eins og undanfarið verð-
ur eðlilega að fara að vinna að
skipulagningu dreifingar þeirra
um okkar tiltölulega litla land og
brydda upp á nýrri afþreyingu
sem jafnar fjölda þeirra á landinu
bæði í tíma og í rúmi. En það getur
varla verið nauðsynlegt að fórna
hverju náttúruvéinu á fætur öðru
til þess að það gangi upp.
Mér er spurn: Má ekki þetta
auga náttúrunnar, Fjallsárlón, fá
að vera óraskað og njóta friðsæld-
arinnar sem það hefur áskapað
sér? Er þessum mönnum ekkert
heilagt?
Fjallsárlón
Ertu alltaf með áhyggjur
af því að öðrum líði vel, að
þeir verði ekki reiðir eða
fari í fýlu? Ertu meira í að
láta drauma annarra ræt-
ast en þína eigin? Heldurðu
að þú verðir hamingjusöm
ef þú hjálpar öðrum að
hætta að drekka, reykja
eða líða illa?
Sumir eru snillingar í að
geta sér til um þarfir fólks
og leggja sig í líma við að
uppfylla þær. Þeir álíta sig
jafnvel ábyrga fyrir gjörð-
um annarra og hegðun, þörfum
þeirra og vali, vellíðan eða skorti
á vellíðan. Ef hjálp þeirra er ekki
metin verða þeir sárir og finnst
aðrir vanþakklátir. Svo verða þeir
líka sárir að enginn skuli gera það
sama fyrir þá. Samt fyllast þeir
hræðilegri sektarkennd ef einhver
réttir þeim hjálparhönd.
Þetta fólk segir já þótt það vilji
frekar segja nei og fyllist svo pirr-
ingi yfir að hafa allt of mikið að
gera. Orðið nei er ekki til í orða-
forðanum, nema helst til að neita
sjálfum sér um eitthvað. Ef aðrir
eru ekki nógu snöggir að sinna
sínum verkefnum, gerir hinn með-
virki það og fyllist gremju yfir að
þurfa alltaf að gera allt.
Vanvirkt heimili
Meðvirkni er þegar okkur finnst
við ekki eiga rétt á því að hafa
grunnþarfir og langanir og að
þarfir og langanir annarra skipta
meira máli en okkar eigin. Flest-
ir halda að meðvirkni sé bundin
við óhóflega drykkju eða ofbeldi
á heimili, en í raun teng-
ist hún miklu frekar van-
virkum aðstæðum í æsku.
Heimili er vanvirkt ef ekki
má sýna reiði og gremju,
ef vonbrigði eru falin með
Pollýönnuviðhorfi og kvíði
og ótti bældir niður.
Meðvirkir hugsa um
allt sem þeir ættu að
gera og það er langur
listi því þeir eru svo dug-
legir að taka að sér verk-
efni og fullir ábyrgð-
arkenndar. En listinn
virkar svo yfirþyrmandi að þeir
fyllast verkstoli og missa fram-
kvæmdaþrekið. Þeir skammast
sín fyrir letina og fyrir sjálfa
sig. Þeir eru sannfærðir um að
þeir séu ekki nógu góðir og eru
sífellt að brjóta sjálfa sig niður
með neikvæðum hugsunum. Svo
fyrtast þeir við ef einhver dirfist
að gagnrýna þá. Þeir fara í vörn
eða reiðast og telja sig alltaf hafa
á réttu að standa. Þeir eiga erf-
itt með að taka hrósi en samt eru
þeir vonsviknir yfir að fá aldrei
viðurkenningu fyrir allt sem þeir
gera fyrir aðra.
Meðvirkni er í stuttu máli lágt
sjálfsmat og getuleysi til að standa
með sjálfum sér. Meðvirkni er því
ekki sjúkdómur heldur lærð hegð-
un, samskiptamunstur, hugsunar-
háttur og viðhorf. Þegar fólk gerir
sér grein fyrir meðvirkni er hægt
að vinna bug á henni. Með því að
vinna í gömlu tilfinningunum og
hleypa þeim upp á yfirborðið má
sleppa skelinni og leyfa okkur
sjálfum að koma í ljós.
Hver er aðal-
persónan í lífi þínu?
FASTEIGNIR
Hildur Ýr
Viðarsdóttir
héraðsdómslög-
maður og stundaken-
nari við lagadeild HÍ
➜ Frá því að lögin
um fasteignakaup
tóku gildi fyrir tæpum
12 árum hafa fallið
nokkrir tugir dóma í
Hæstarétti.
SAMFÉLAG
Hildur
Þórðardóttir
þjóðfræðingur,
rithöfundur og
heilari
SAMFÉLAG
Ottó Tynes
heimspekingur og
markaðsstjóri RIFF
➜ Hér á landi getum við
nálgast afþreyingu í hæsta
gæðafl okki en vert er að
benda á að íslensk afþreying
er í aðra röndina hálfgerð
framlenging á vestrænni
dægurmenningu.
VINDORKA
Einar
Sveinbjörnsson
veðurfræðingur
➜ Á Hitra hefur verið fylgst
náið með fugladauða og
þjálfaðir hundar látnir leita
reglulega. Stofn rjúpu er
sterkur, enda blasti við þrótt-
mikið lynglendi hvar sem
farið var um eyjuna.
NÁTTÚRUVERND
Jón Baldur
Þorbjörnsson
leiðsögumaður og
frkvstj. Isafold Travel
➜ Nú virðist sem fyrirætl-
anir séu uppi um að fækka
perlum í náttúru íslands um
eina með því að „túrista-
væða“ Fjallsárlón.