Fréttablaðið - 16.06.2014, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 16.06.2014, Blaðsíða 20
KYNNING − AUGLÝSINGSkrifstofan MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 20142 Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512-5429 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal. Pláss: Með góðu skipulagi geta smæstu skúmaskot og kompur orðið að rúm- góðu vinnuplássi. Fjárfestu í hillum, staflaðu upp, merktu snúrur, not- aðu veggpláss og skipuleggðu rýmið með tilliti til vinnunnar sem á að fara þar fram. Pappírstætari: Ef þú sýslar með viðkvæmar upplýsingar viðskiptavina er tætarinn nauðsynlegt tól. Ekki mega finnast bankanúmer og kennitölur í heim- ilistunnunni. Stóll: Langar setur við skrifborð gera engum gott. Ef vinnan krefst mikill- ar setu er ráð að velja góðan stól sem hægt er að stilla á allan mögu- legan máta. Prentari: Í okkar rafræna nútíma þarf merkilega oft að prenta eitthvað út. Lita- prentari þyrfti að vera til á heimaskrifstofunni. Tölva: Nauðsynlegt er að komast á internetið, jafnvel þótt vinnan heima felist ekki beinlínis í tölvuvinnu. Pappírstætari, prentari og pláss Fimm atriði sem nauðsynlegt þykir að séu fyrir hendi á heimaskrifstofunni, samkvæmt howstuffworks.com. Skipuleggðu rýmið með tilliti til þeirrar vinnu sem á að fara þar fram. Kannski á pappírs- tætarinn ekki alltaf við. NORDIC PHOTOS/GETTY Varast skal að henda gögnum sem innihalda viðkvæmar upplýsingar í heimilistunnuna. Pappírstætari er málið. Góður stóll er eitt af því sem nauðsynlegt þykir á heimaskrifstofuna. Garðstóll er því kannski ekki hentugur, þó hann fari vel við. NORIDC PHOTOS/GETTY Smæstu kompur geta orðið að góðu vinnurými ef hverjum hlut er fundinn staður. NORDIC PHOTOS/GETTY Með góðu skipulagi má koma sér upp góðri heimaskrifstofu. Hjúkrunarfræðingurinn Elva Björk Ragnarsdóttir heldur úti heimilisblogginu Verkefni vikunnar. Hún er í meira lagi handlagin og gerir meðal annars upp gömul húsgögn, föndrar, prjónar, saumar, breytir og bætir. Afraksturinn fer inn á síðuna vikulega. Nýjasta innleggið er heimagert pennastatíf sem hún segir taka nákvæmlega 16 mínútur og 40 sekúndur að gera ef allur efniviðurinn er fyrir hendi. Það sem þarf er límbyssa, áldós, trélitir/blýantar og málningarsprey. Byrjað er á að líma litina utan um dósina með límbyssunni. Næst er statífið spreyjað. Gripurinn er svo látinn þorna og fylltur af pennum og blýöntum. Sjá nánar á http://verkefnivikunnar.blogspot.com/ Heimagert pennastatíf *P re nt m ið la kö nn un C ap ac en t o kt ób er –d es em be r 2 01 2 – hö fu ðb or ga rs væ ði 2 5- 54 á ra Innskot í Fréttablaðið skilar árangri! MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið með glæsilegt forskot á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum 25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.* Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins. Hafðu fjölpóstinn þinn inni í Fréttablaðinu. Það er áhrifarík leið til að koma skilaboðum um vöru eða þjónustu beint inn á heimilin. Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448 eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.