Fréttablaðið - 16.06.2014, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 16.06.2014, Blaðsíða 8
16. júní 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 8 SVEITARSTJÓRNIR Austurbrú, sjálfseignarstofnun á Austurlandi, keypti bifreið til afnota fyrir fram- kvæmdastjóra sinn haustið 2013. Bifreiðin, sem er af tegundinni Chevrolet Captiva, kostaði tæpar fimm milljónir króna í innkaup- um. Ekkert er að finna um þessi bílakaup í fundargerðum stjórnar Austurbrúar. Fyrirtækið Austurbrú var stofn- að 8. maí 2012 á grunni Þekking- arnets Austurlands, Þróunarfélags Austurlands, Markaðsstofu Aust- urlands og Menningarráðs Austur- lands og annast auk þess daglegan rekstur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Á vef Austurbrúar kemur fram að yfir 30 stofnaðilar eru að sjálfseignarstofnuninni; öll sveitarfélögin á Austurlandi, allir háskólar landsins, helstu fagstofn- anir, stéttarfélög, framhaldsskólar og þekkingarsetur á Austurlandi. Stofnunin er að mestu leyti rekin af skattfé. Kaupin voru gerð síðla árs 2013. Þáverandi framkvæmdastjóri var Karl Sölvi Guðmundsson. Á því ári var rekstrarniðurstaða Austurbrú- ar neikvæð um rúmar 20 milljón- ir króna. Einnig var rúmlega níu milljóna króna tap af 7 mánaða rekstrarniðurstöðu ársins 2012. Valdimar O. Hermannsson er stjórnarformaður Austurbrúar. Hann telur eðlilegar skýringar á kaupunum. „Kaupin á bifreiðinni voru hluti af starfskjörum sem stjórn samþykkti haustið 2013 þegar ráðningarsamningur við Karl var endurskoðaður. Þetta var í raun sparnaður fyrir Austurbrú. Við vorum að borga um 30-40 þús- und krónur á mánuði í bílastyrk til framkvæmdastjóra. Með því að greiða 2,5 milljónir í bifreið- inni eru lánin af henni þau sömu og greiðslur til framkvæmdastjóra voru áður.“ Valdimar segir að hægt hefði verið að kaupa ódýrari bifreið á sínum tíma og að komið hafi fram gagnrýni á kaupin á árs- fundi stofnunarinnar. Hann segir einnig að tekjur eigi eftir að skila sér til stofnun- arinnar. „Verkefni sem við áttum að fá greitt fyrir á árinu 2013, sem námu um 12 milljónum, komu ekki inn á því ári heldur koma þau á þessu ári. Þegar Austurbrú var sett á laggirnar og sameining stofnana varð að veruleika þurft- um við að fara í nokkrar einsskipt- is aðgerðir sem kostuðu peninga en við sjáum fram á góða afkomu á næstu misserum,“ segir Valdimar. Hann bætir við að stjórn hafi ekki verið ánægð með rekstur- inn og vegna niðurstöðu ársreikn- inga og samstarfsörðugleika við þáverandi framkvæmdastjóra hafi verið ákveðið að hann myndi hætta störfum. Við er tekinn þriðji fram- kvæmdastjórinn frá því að stofn- unin var sett á laggirnar 2012, Jóna Árný Þórðardóttir. sveinn@frettabladid.is Þetta var í raun sparn- aður fyrir Austurbrú. Við vorum að borga um 30–40 þúsund krónur í bílastyrk til framkvæmdastjóra. Valdimar O. Hermannsson, stjórnarformaður Austurbrúar Besti bílinn. Audi A3 hefur verið valinn besti bíll ársins 2014* af blaðamönnum frá 22 löndum. Takk fyrir okkur! Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri: 7,1-1,5 l/100 km, CNG 3,3-3,2 kg/100 km; E-Tron blönduð orkunotkun í kWh á 100 km: 11,4; CO 2 útblástur í blönduðum akstri: 165-35 g/km, CNG 92-88 g/km. Uppgefnar tölur miðast annars vegar við bensín- og hinsvegar rafmótor. *World Car Awards 2014, New York: www.wcoty.com Keyptu fimm milljóna bíl fyrir stjóra Austurbrúar Sjálfseignarstofnunin Austurbrú á Austurlandi keypti tæplega fimm milljóna króna bifreið af gerðinni Chevr- olet Captiva þegar rekstrarhallinn var um 20 milljónir. Ekkert er að finna um kaupin í fundargerðum stjórnar. Stjórnarformaðurinn telur að hægt hefði verið að kaupa ódýrari bíl. Búist er við góðri afkomu næstu misserin. CHEVROLET CAPTIVA Austurbrú keypti bifreið af tegundinni Chevrolet Captiva fyrir framkvæmdastjóra sinn haustið 2013. SVEITARSTJÓRNIR Bæjarfulltrúar Þriðja framboðsins og Sjálfstæð- isflokksins hafa gert með sér samkomulag um meirihlutasam- starf í Sveitarfélaginu Horna- firði. Í yfirlýsingu frá framboð- unum segir að meginmarkmið nýrrar bæjarstjórnar verði að viðhalda og efla grunnþjónustu við íbúa. „Aukið gegnsæi og íbúalýð- ræði verður eitt af leiðarljósum í starfi bæjarstjórnar. Leitast skal við að hafa gott samstarf milli allra bæjarfulltrúa óháð flokki og tryggja að sjónarmið allra komi að borðinu,“ segir í yfirlýsing- unni. - fbj Íbúalýðræði verður aukið: Ný bæjarstjórn í Hornafirði MEIRIHLUTI MYNDAÐUR Fulltrúar Þriðja framboðsins og Sjálfstæðisflokks- ins mynda meirihluta í Hornafirði. LÖGREGLUFRÉTTIR Ungur innbrotsþjófur Tilkynnt var um innbrot og þjófnað í söluturni í Breiðholti aðfaranótt sunnudags og náðist 16 ára drengur á hlaupum frá vettvangi. Hann var undir áhrifum vímuefna og var vistaður í fangageymslu. Foreldrum drengsins var tilkynnt um handtöku hans.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.