Fréttablaðið - 16.06.2014, Blaðsíða 6
16. júní 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 6
DÓMSMÁL Dómur féll á föstudag í
máli sem rekið var gegn íslenska
ríkinu vegna tollflokkunar á iPod
Touch-spjaldtölvum. Niðurstaðan
var á þá leið að staðfest var að
tækið hefur verið tollflokkað með
röngum hætti um árabil.
Þannig var tækið fyrst sett í
tollflokkinn „hljóðupptöku- eða
hljóðflutningstæki“ og síðar
„myndupptökutæki eða mynd-
flutningstæki“. Flokkunin leiddi
til þess að innflytjendur vörunn-
ar höfðu greitt umtalsverð gjöld
við innflutning hennar. Það fé,
samtals rúmlega 16 milljónir
ásamt vöxtum og dráttarvöxtum,
ber ríkinu að endurgreiða.
Stefnandi, Skakkiturn ehf.
umboðsmaður Apple á Íslandi,
taldi að flokka ætti tækið í toll-
flokkinn „sjálfvirkar ferða-
gagnavinnsluvélar og einingar
til þeirra“ og féllst dómurinn á
þá flokkun en sá tollflokkur ber
engin gjöld eða tolla.
„Þetta kemur í raun ekkert á
óvart,“ segir Björg Ásta Þórðar-
dóttir, lögfræðingur hjá Félagi
atvinnurekenda, sem aðstoðaði
stefnanda. „Varan er tölva en
ekki vasadiskó og það vita allir
sem hafa notað hana. Það sem
meira máli skiptir er að innflytj-
endur geri sér grein fyrir því
að tollflokkun er oft og tíðum
röng. Það er erfitt að meta það
með vissu en við höfum áætlað
að í ákveðnum vöruflokkum séu
allt að 15 til 20 prósent af vörum
rangt flokkuð.“
Lögmaður Apple í málinu segir
óljóst hvort ríkið ákveði að áfrýja
niðurstöðunni en hún sé fagnað-
arefni. - fbj
Héraðsdómur segir í dómi að iPod Touch-tæki hafi verið flokkuð í rangan tollflokk um árabil:
Ríkið endurgreiði gjöld af iPod Touch
RÖNG TOLLFLOKKUN Um 15 til 20 pró-
sent af vörum eru líklega rangt flokkuð.
1. Borgarstjóri hvaða Evrópuborgar
sagði af sér vegna lögreglurannsóknar
á föstudaginn?
2. Hvað heitir tvíburabróðir Halldórs
Auðar Svanssonar, oddvita Pírata í
Reykjavík?
3. Hvað er Kvennahlaup ÍSÍ gamalt
í ár?
SVÖR
VEISTU SVARIÐ?
JAFNRÉTTISMÁL Eygló Harðardótt-
ir, jafnréttisráðherra Íslands,
lagði áherslu á að jafnréttisstarf
á Norðurlöndum tæki til karl-
manna og drengja á jafnréttis-
ráðstefnunni Nordisk Forum í
gær.
„Á næstu árum ættum við að
beina sérstakri athygli að mótun
karlmennskuímynda í samfé-
laginu og áhrifum þeirra á sam-
skipti kynjanna,“ sagði Eygló á
ráðstefnunni.
Á fundinum kom fram að skól-
arnir væru kjörinn vettvang-
ur til þess að uppræta staðlaðar
kynjaímyndir og leggja grunn að
nýjum hugsunarhætti um karl-
mennsku og nám- og starfsval til
framtíðar. - fbj
Lögðu áherslu á að uppræta staðalímyndir á Nordic Forum:
Jafnréttisstarf taki
til karla og drengja
NÝ HUGSUN Jafnréttis-
ráðherra Íslands sagðist
myndu beina sérstakri
athygli að karlmennsku-
ímyndum í samfélaginu.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
UMHVERFISMÁL Stefnt er að því
að gera Stykkishólm að fyrsta
sveitarfélaginu á Íslandi þar sem
burðarplastpokar munu ekki fást í
verslunum. Tilraunaverkefni sem
hefur þetta að markmiði lýtur
einnig að því að þekkingin sem
fæst í sumar nýtist öðrum sveit-
arfélögum til að fylgja í kjölfarið.
Menja von Schmalensee, líf-
fræðingur og formaður umhverf-
ishópsins, segir að skili verkefnið
tilætluðum árangri muni Hólm-
arar hætta notkun á burðarplast-
pokum í öllum verslunum í sveitar-
félaginu í byrjun september.
Spurð um viðbrögð fólks í
sveitarfélaginu segir Menja þau
almennt góð, en mikið vatn eigi
enn eftir að renna til sjávar áður
en hægt verði að fullyrða um
árangur verkefnisins. Undirbún-
ingsvinnan sé vissulega hafin og
gengur vel, en áður en umskipt-
in fara fram verði að svara því
hvað koma eigi í staðinn fyrir
plastið. Bæði er þörf fyrir lausn-
ir fyrir verslun og ekki síður við
sorplosun. Varðandi innkaupin
kemur margt til greina, s.s. fjöl-
nota pokar, pappírspokar og maís-
pokar. Þegar kemur að sorplosun
hefur hópurinn leitað samstarfs
við Íslenska gámafélagið, og geta
maíspokar verið góð lausn í þeim
efnum.
Einstakar verslanir hafa tekið
hópnum vel, en hafa skal hugfast
að stjórnendur verslana í Stykkis-
hólmi sitja oft í Reykjavík, t.d. Vín-
búðarinnar, Lyfju og Bónuss. Þess
vegna teygir verkefnið sig vel út
fyrir bæjarmörkin.
Menja segir að verkefnið snúist
ekki síst um hugarfarsbreytingu,
og sé hugsað í mun stærra sam-
hengi en bara fyrir Stykkishólm.
Styrkur ráðuneytisins fékkst t.d. á
þeim forsendum að vinnan myndi
nýtast á fleiri stöðum í framhald-
inu, sem segir nokkuð um vilja
stjórnvalda um hvað koma skal.
„Vonin er að verkefnið muni nýt-
ast öðrum til að taka þetta skref.
Þetta er ákaflega spennandi og
gaman verður að sjá hvernig þessu
vindur fram,“ segir Menja og
minnir á í þessu samhengi að það
sé löngu tímabært að hætta notk-
un burðarplastpoka. Ýmis erlend
sveitarfélög, landshlutar og jafn-
vel heilu löndin séu komin vel á
veg með að banna notkun burðar-
plastpoka með öllu.
svavar@frettabladid.is
Vilja plastpokalaust
sveitarfélag í haust
Umhverfishópur Stykkishólms vinnur að því að verslanir í bænum hætti notkun
plastburðarpoka frá og með komandi hausti. Markmiðið er að sveitarfélagið verði
fyrst til að taka þetta skref og vinnan nýtist öðrum sveitarfélögum í framhaldinu.
EFTIR SKEMMTANAHALD Allir Íslendingar þekkja myndir sem þessa og hlut plasts-
ins í ruslaraskap landans. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Umhverfishópur Stykkishólms fékk í ársbyrjun styrk frá umhverfis- og
auðlindaráðuneytinu til að ráðast í verkefnið, sem er unnið í sam-
starfi við Náttúrustofu Vesturlands, Landvernd, Umís/Environice og
Stykkishólmsbæ.
Margir koma að plastpokaverkefninu
1. Feneyja 2. Kári Auðar Svansson 3. 25 ára
Vonin er
að verkefnið
muni nýtast
öðrum til að
taka þetta
skref.
Menja von Schmalen-
see líffræðingur
ÍRAK Hópur öfgasinnaðra súnní-
múslima, sem sölsað hefur undir
sig stórt landsvæði í Írak undan-
farna daga, hefur birt á netinu
myndir sem virðast sýna liðsmenn
hópsins taka af lífi fjölmarga
stjórnarhermenn.
Á myndunum má sjá hermenn-
ina liggja í skurði, fyrir og eftir
meinta aftöku þeirra. Samkvæmt
texta sem fylgir myndunum er um
að ræða hermenn úr herstöð sem
vígamennirnir náðu á sitt vald.
Fulltrúi íraska hersins, Qassim
al-Moussawi hershöfðingi, segir að
myndirnar séu ekta og að aftök-
urnar hafi farið fram í Salahuddin-
héraði. Það hefur þó ekki fengist
staðfest af utanaðkomandi aðilum.
Ef satt reynist er hæglega um
að ræða mestu voðaverk í landinu
síðan Bandaríkjamenn gerðu inn-
rás árið 2003. Allt að þúsund her-
menn gætu hafa verið teknir af
lífi, samkvæmt heimildum BBC.
Hópurinn kallast ISIS og vilja
liðsmenn hans koma á fót íslömsku
ríki í Írak. Þeir náðu í síðustu viku
borgunum Mosul og Tikrit á sitt
vald.
Myndirnar birtust um það leyti
sem ríkisstjórn Íraks greindi frá
því að hún hefði unnið mikilvæga
sigra á ISIS undanfarið. - bá
Um þúsund hermenn gætu hafa verið teknir af lífi af öfgahópnum ISIS:
Myndir sýna voðaverk í Írak
ÓHUGNANLEGT
Þessi mynd virðist
sýna meðlimi ISIS
miða hríðskota-
byssum á óvopnaða
hermenn í borgara-
klæðum.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP