Fréttablaðið - 16.06.2014, Síða 12

Fréttablaðið - 16.06.2014, Síða 12
16. júní 2014 MÁNUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÁ DEGI TIL DAGS Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is Vinstrihreyfingin – grænt framboð getur að mörgu leyti vel við unað eftir sveitar- stjórnarkosningar þar sem hreyfingin stóð vörð um árangur sinn frá 2010 og bauð fram víða um land, bæði undir eigin nafni en einnig með formlegri og óform- legri þátttöku í sameiginlegum framboð- um. Hins vegar tel ég ríka ástæðu á næstu misserum til að velta fyrir sér inntaki stefnu okkar. Hana tel ég eiga brýnna erindi en nokkru sinni fyrr á nýrri öld þar sem ójöfnuður og loftslagsbreyting- ar verða líklega stærstu viðfangsefnin og svörin geta ekki verið önnur en réttlæti og sjálfbærni. Miklu skiptir líka hvernig fólk sem telur sig til félagshyggjufólks velur að vinna í stjórnmálunum og því er ástæða til að óska Reykvíkingum til hamingju með nýjan borgarstjórnarmeirihluta. Þar sameinast frjálslynt og félagshyggju- sinnað fólk með breiða skírskotun og sterkt umboð kjósenda. Hver flokkur hefur að sjálfsögðu sína sérstöðu en um margt erum við sammála. Þar má nefna húsnæðismálin og áform nýs meirihluta um að byggja upp leiguhúsnæði. Þá skiptir miklu máli að nýr meirihluti tekur skýra afstöðu með fjölmenningu og gegn útlend- ingaandúð sem virðist því miður vera að skjóta rótum hér á landi. Í átt að gjaldfrelsi Það er líka ánægjulegt að sjá að nýr meiri- hluti í Reykjavík mun stíga fyrstu skrefin í átt að gjaldfrjálsum leikskóla með lækkun leikskólagjalda. Það er mál sem við Vinstri græn settum á dagskrá í kosningabarátt- unni – og ágætt dæmi um þá sókn sem við viljum hefja í velferðar- og menntamál- um á næstu árum. Nýr meirihluti hefur líka áform um aukið íbúalýðræði sem eru spennandi en vonandi verða líka tekin stór skref til að virkja fólk til þátttöku í þeim lýðræðislegu ferlum sem eru nú þegar til staðar. Þar sem við Vinstri-græn tökum þátt í meirihlutasamstarfi skiptir miklu að við leggjum inn sjónarmið réttlætis og sjálf- bærni og það munum við gera í öllu okkar starfi í sveitarstjórnum, óháð því hverj- um við vinnum með í meirihluta og raun- ar óháð meirihluta og minnihluta. Sérstök ástæða er til að fagna þegar félagshyggju- öfl ná saman um slík málefni því það gefur tilefni til bjartsýni varðandi frekari sam- vinnu vinstrimanna á öðrum vettvangi. Samstarf til vinstri Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is PARKETFLÍSAR ekkert að pússa og lakka Mikil fyrirheit Dagur B. Eggertsson verðandi borgarstjóri, ítrekaði kosningaloforð Samfylkingarinnar í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í gær. Flokkurinn hafði lofað 2.500 til 3.000 nýjum leiguíbúðum á næstu árum. Það er reyndar skemmtileg tilbreytni á þessum síðustu og verstu að menn kannist við loforð sín eftir kosningar, en það er önnur saga. Dagur sagðist ekki draga úr því að loforðin væru mikil fyrirheit, þess þyrfti. Hins vegar myndi þessi uppbygging taka nokkur ár. Það er merkilegt að í loforðum flokksins um húsnæðis- mál er aðeins minnst á uppbyggingu borgarinnar og félagslegan stuðning. Þar er hins vegar ekkert minnst á einföldun og leiðréttingu byggingareglugerða sem er eitt af því sem flækir byggingu nýs húsnæðis, gerir það dýrara og ferlið lengra en ella fyrir byggingaraðila. En borgin ætlar vissulega á fullt í að útvega borgarbúum húsnæði. Furðulegheit Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins, lætur það fara í taugarnar á sér í pistli á heimasíðu sinni með hvaða hætti Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Már Guð- mundsson seðla- banka- stjóri greina þjóðinni frá framtíðar- áformum sínum. Ólafur sagði frá því í viðtali við tímaritið Monocle að hann gæfi ekki kost á sér í næstu kosningum og Már greindi frá sínum fyrirætlunum í þættinum Eyjunni á Stöð 2 í gær. Björn segir hrifningu ýmissa fjölmiðlamanna á upp- átækjum Jóns Gnarr hafa haft áhrif á þá Ólaf og Má og það að þeir skuli kjósa þessar leiðir til að koma mikilvægum upp- lýsingum til þjóðarinnar sé ekki í ætt við neitt annað en furðulegheit Jóns Gnarr þótt hvorugur þeirra hafi ákveðið að fara í furðufatnað til að vekja á sér athygli. fanney@frettabladid.is Í helgarblaði Fréttablaðsins er spjall við hóp ungs lista- fólks sem sett hefur á stofn vinnustofu uppi á Höfða í þeim tilgangi að skapa fjölbreyttan starfsvettvang fyrir listamenn. Þetta unga fólk, sem flest er nýútskrifað úr listnámi, er ekkert á þeim buxunum að samfélagið eigi að skapa því verkefni og aðstöðu, heldur lætur verkin tala og hrindir hugmyndum sínum í framkvæmd sjálft. Mörk milli hefðbundinna listgreina eru máð út og fólk úr ýmsum áttum vinnur saman að því að skapa eitthvað nýtt og ferskt án þess að láta þröngva sér í fyrir- framgefna farvegi. Og hendir þeirri hugmynd að listsköpun sé bundin við 101 Reykjavík út í hafsauga. Eins og gerst hefur í öðrum borgum Evrópu undanfarna áratugi sækja þau þangað sem húsnæði er ódýrt og gera hallærisleg iðnaðar- hverfi að stöðunum þar sem gerjunin og blómgunin fer fram. Ef miðborgin er undirlögð af túristabúllum og hótelum er fundið nýtt hverfi þar sem svigrúm er til að skapa. Hópurinn á Höfðanum er ekkert einsdæmi, úti um allt spretta upp sambærilegir hópar ungs listafólks sem vinnur saman þvert á skilgreiningar listgreina. Tjarnarbíó er orðið sprúðlandi vettvangur fyrir sköpun og samstarf og nú stendur yfir tónlistarhátíðin Reykjavík Midsummer Music sem er alfarið framtak Víkings Heiðars Ólafssonar píanóleikara sem, eins og hinum listamönnunum, fannst skorta vettvang fyrir það sem hann langaði að gera og bjó hann þá bara til sjálfur. Lungaskólinn á Seyðisfirði er enn eitt dæmið um þetta viðhorf unga fólksins og nær daglega heyrum við af nýjum verkefnum og hugmyndum sem drifnar eru áfram af fólki á milli tvítugs og þrítugs. Kynslóðinni sem legið hefur undir ámæli fyrir að vera veruleikafirrtir tölvuleikjanördar sem liggi uppi á pabba og mömmu og taki ekki virkan þátt í samfélaginu. Fátt gæti verið nær sanni. Á meðan þetta unga fólk er önnum kafið við að skapa sér vettvang á eigin forsendum og sinna hugðarefnum sínum bölsótast eldri kynslóðir út í allt sem nöfnum tjáir að nefna en þó aðallega alla þá sem ekki eru sammála þeim í einu og öllu. Hin goðsagnakennda ’68 kynslóð sem hingað til hefur verið litið á sem tákn uppreisnar gegn ríkjandi hugmyndum og ráðandi öflum er að sanna sig sem tuðandi íhaldskynslóð sem engu vill breyta. Hún dómínerar alla umræðu um list og menningu, og raunar nánast öll svið samfélagsins, með hroka besser wissersins sem alltaf hefur rétt fyrir sér og er smátt og smátt að verða dragbítur á nýsköpun og ferskar nálganir. Ansi dapurleg örlög goðsagnarinnar. Það er gömul saga og ný að eldri kynslóðir líti þær sem á eftir koma hornauga og þyki lítið til þeirra koma en einhvern veginn hélt maður samt að uppreisnarseggirnir frá 1968 myndu ekki detta í þá gryfju í ellinni. Svo lengi lærir sem lifir. Eitt má þó ’68 kynslóðin og sporgöngufólk hennar eiga; henni hefur tekist að ala upp nýja kynslóð sem virðist fær um að hrista af sér klafa kreddna og þröngsýni og fyrir það má vissulega hrósa henni. Ný kynslóð listamanna haslar sér völl. Út fyrir ramma STJÓRNMÁL Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri- grænna ➜ Þar sameinast frjálslynt og félagshyggjusinnað fólk með breiða skírskotun og sterkt umboð kjósenda.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.