Fréttablaðið - 16.06.2014, Blaðsíða 17
MEÐ SILKIMJÚKA
FÆTUR Bára er ánægð
með IROHA-fótameð-
ferðarsokkana sem hún
prófaði á dögunum.
Fætur hennar eru nú
silkimjúkir og lausir við
allt sigg og hart skinn.
MYND/GVA
IROHA er með fjölbreytt úrval maska fyrir andlit, hendur og fætur. IROHA-fótameðferðarsokkarnir hjálpa til við
að mýkja fætur. Þeir losa sigg og hart
skinn með því að flýta fyrir náttúrulegu
ferli endurnýjunar húðarinnar.
Bára Ragnhildardóttir prófaði IROHA-
meðferðarsokkana þegar hún ákvað að
gera vel við sjálfa sig og hafa dekurkvöld
eftir törn í skóla nú í vor. „Ég hafði heyrt
frábæra hluti um sokkana og ákvað þess
vegna að prófa. Fótameðferðarsokkarnir
virka þannig að þeir eru hafðir á fótunum
í 90-120 mínútur, fæturnir eru svo skol-
aðir á eftir og fjórum til sjö dögum síðar
hefur húðin endurnýjað sig. Allt það sem
maður vill ekki sýna öðrum, óaðlaðandi
sigg, þurr og hörð húð, hefur dottið af
og húðfrumurnar hafa endurnýjað sig.
Ég er líka hrifin af því að fótamaskinn og
IROHA-vörurnar eru án parabena.“
Bára segir maskann hafa virkað ótrú-
lega vel og finnur alveg sérstakan mun
á hælunum þar sem allt harða skinnið
er dottið af. „Núna er ég með silkimjúka
fætur, tilbúin í sandalana fyrir sumarið.
Eftir að ég prófaði sjálf ákvað ég að gefa
manninum mínum par af sokkunum.
Árangurinn var jafnvel enn meiri þegar
hann prófaði þá enda með þessa hefð-
bundnu „fótboltafætur“ sem þurfa oft
góða fótaumhirðu. Ég er mjög ánægð
með IROHA-vörurnar og fer nú í það að
prófa enn fleiri maska frá þeim.“
IROHA-fótameðferðasokkarnir fást í
apótekum og Hagkaup.
SILKIMJÚKIR FÆTUR
HALLDÓR JÓNSSON EHF KYNNIR Fótameðferðarsokkarnir frá IROHA losa
hart skinn og sigg af fótum og gera þá silkimjúka og tilbúna fyrir sumarið.
ÚTSÖLU-
STAÐIR
IROHA-fótameð-
ferðarsokkarnir
fást í apótekum
og Hagkaup.
HELGI BJÖRNS OG REIÐMENN VINDANNA
Stórtónleikar verða í kvöld kl. 20 í Eldborg, Hörpu, með Helga
Björns og Reiðmönnum vindanna sem eiga sér fjölda aðdáenda.
Helgi hefur frískað upp á gamla gimsteina sem sungnir
hafa verið í áratugi. Sérstakir gestir verða Hilmir Snær,
Jói Sig og Örn Árna og meðlimir úr hljómsveitinni Buff.