Fréttablaðið - 16.06.2014, Page 18
FÓLK|HEIMILI
Dezeen.com fjallaði um Brynju og Skjöld í vikunni sem leið. Það fylgdi því
talsverð athygli og eftirspurn,
sem er gaman. Við héldum að
verkefnið væri bara búið eftir
sýninguna í vor en svo er ekki,“
segir Hjörtur Matthías Skúlason,
einn þriggja í hönnunarteyminu
Hlutagerðinni sem frumsýndi sín-
ar fyrstu vörur í vor, tehetturnar
Brynju og Skjöld.
„Við fengum boð um að taka
þátt í sýningunni Teaser í Sparki
sem AttiKatti stýrði á Hönnunar-
Mars í vor. Þetta var fyrsta stóra
verkefnið okkar en við áttum
að vinna út frá orðinu tehetta.
Mokkaskinn hefur haldið hita á
íslensku þjóðinni gegnum ald-
irnar og við útfærðum tehettuna
í mokkaskinn. Við nýttum okkur
gamlar aðferðir sem stríðsmenn
í fornöld notuðu til að gera sér
brynjur úr skinnum. Skinnin eru
sniðin til og þeim síðan dýft í
sjóðandi vatn. Þá herpist skinnið
saman og mótast utan um hlut-
inn. Tekatlarnir samanstóðu svo
af samtíningi, við vildum nota
það sem til er en klæða í okkar
búning,“ segir Hjörtur.
Hlutagerðin er því að hasla sér
völl á hönnunarsenunni og segir
Hjörtur spennandi verkefni fram
undan. Þau þrjú sjái styrk í því
að sameina krafta sína.
„Við Elín lærðum vöruhönnun
saman í LHÍ og fengum svo til
liðs við okkur Hrönn Snæbjörns-
dóttur en hún er master í menn-
ingarmiðlun. Við sáum að við
stæðum betur að vígi saman en
eitt og eitt. Hlutagerðin mun taka
sér ýmisleg verkefni fyrir hendur,
við munum gera allt frá því að
hanna hluti upp í að standa fyrir
uppákomum. Það eru spennandi
tímar fram undan.“
Nánar má forvitnast um Hluta-
gerðina á Facebook og á hluta-
gerdin.is.
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ
sem býður aug lýsendum að
kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum
auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu
daglega.
Útgefandi: 365 miðlar
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn:
Bryndís Hauksdóttir,
bryndis@365.is, s. 512 5434
Kolbeinn Kolbeinsson,
kolli@365.is, s. 512 5447
HLUTAGERÐIN Hrönn Snæbjörnsdóttir, Elín Bríta og Hjörtur Matthías Skúlason skipa
hönnunarteymið Hlutagerðina. MYND/HLUTAGERÐIN
FORN AÐFERÐ Skinnið er sniðið til
og svo dýft í sjóðandi vatn. Við það
skreppur skinnið saman og mótast utan
um hlutinn.
MYND/HLUTAGERÐIN
TEHETTA Brynja og Skjöldur er fyrsta
vörulína Hlutagerðarinnar, tehettur úr
íslensku lambsskinni. Línan vakti athygli
hönnunarvefsins Dezeen.com í vikunni
sem leið. MYND/HLUTAGERÐIN
MOKKASKINNIÐ
HELDUR HEITU
ÍSLENSK HÖNNUN Hlutagerðin er nýtt íslenskt hönnunarteymi sem vakið
hefur athygli fyrir fyrstu vörulínu sína, tehettur úr lambsskinni.
Svíar hafa verið hvað vinveittastir Íslend-ingum þegar kemur að hönnun. Hluti af verkunum á sýningunni eru íslensk hús-
gögn sem framleidd eru í Svíþjóð,“ segir Harpa
Þórsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafns Ís-
lands, en safnið stendur
fyrir sýningunni Ísland –
Svíþjóð í Norræna húsinu
og Hannesarholti dagana
17. til 22. júní.
Tilefni sýningarinnar er koma Viktoríu krónprins-essu hingað til lands.
Þeir hönnuðir sem
eiga verk á sýningunni
í Norræna húsinu eru
Sigurður Gústafsson, en
hann vinnur með fyrir-
tækinu Källemo, Sigríður
Heimisdóttir, með IKEA,
Katrín Ólína Pétursdóttir
og Michael Young en fyrir-
tækið Swedese framleiðir
Tréð, fatahengi eftir þau,
og Chuck Mack en fyrirtækið Design House
Stockholm framleiðir borðið Arco Desk.
Þá verða einnig sýndir munir úr „Sænsku glergjöf-
inni“ sem Karl Gústaf Svíakonungur afhenti Hönnun-
arsafni Íslands til varðveislu í heimsókn sinni hingað
til lands fyrir tíu árum. Glermunirnir verða sýndir
bæði í Hannesarholti og í Norræna húsinu.
SÆNSKT SAMSTARF
SÝNING Hönnunarsafn Íslands stendur fyrir sýningu á húsgögnum eftir ís-
lenska hönnuði, framleiddum í Svíþjóð, í Norræna húsinu og í Hannesarholti.
Tilefnið er heimsókn Viktoríu krónprinsessu.
VATNAJÖKULL Glervasi
eftir sænska glerlistamann-
inn Monicu Backström,
gerður árið 2003.
CHUCK MACK Íslenski hönnuðurinn Chuck Mack hefur bæst í
hóp þeirra sem vinna með framleiðendum í Svíþjóð. Borðið Arco
Desk er framleitt af Design House Stockholm. MYND/CHUCK MACK
Ábendingahnappinn
má finna á
www.barnaheill.is
ÉG MÓTA
BODY
FIRMING
Ég viðheld teygjanleika húðarinnar. Byrjaðu
bara á að bera mig reglulega á líkamann og þú
helst flott og fitt. Frábært krem með góðum
innihaldsefnum eins og Elastín, Kollagen og
Pomegranate.
Made in Italy
www.master-line.eu
Fæst í apótekum og Hagkaup