Fréttablaðið - 16.06.2014, Page 46
16. júní 2014 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 22
BAKÞANKAR
Hauks Viðars
Alfreðssonar
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
HOLLYWOOD REPORTER NEW YORK DAILY NEWS
ANGELINA JOLIE OG ELLE FANNING
EKKI TRÚA
ÆVINTÝRINU
Miðasala á:
22 JUMP STREET LÚXUS
FAULT IN OUR STARS
MILLION WAYS TO DIE . . .
TÖFRALANDIÐ OZ 2D ÍSL. TAL
X-MEN3D
X-MEN2D
VONARSTRÆTI
Á Ö ÍL SI L GGUBLL
22 JUMP STREET
GRACE OF MONACO
FAULT IN OUR STARS
VONARSTRÆTI
THE OTHER WOMAN
KL. 5.30 - 8 - 10.30
KL. 5.30 - 8 - 10.30
KL. 5 - 8 - 10.40
KL.10.45
KL. 3.20
KL. 8 - 10.45
KL. 5
KL. 5.20 - 8
KL. 3.20
KL. 8 - 10.30
KL. 5.40 - 8
KL. 6 - 9
KL. 5.20 - 8 - 10.40
KL. 5.30 – 10.30
OF
KIDMAN
NICOLE
FRANK LANGELLA
DAHANOLIVIERMYND EFTIR
ROTH
TIM
GAUMONT KYNNIR
„ÞÚ SÉRÐ EKKI FYNDNARI
MYND Í SUMAR!“ -T.V., BIOVEFURINN.IS
-C.P., USA TODAY
SHORT TERM 12
HM Í FÓTBOLTA
Í BEINNI
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
22 JUMP STREET 5, 8, 10:20
MILLION WAYS TO DIE IN THE WEST 8, 10:30
VONARSTRÆTI 5, 8, 10:40
TÖFRALANDIÐ OZ 2D 5
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
T.V. Bíóvefurinn.is
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Hörð keppni á súlunum
Orkuboltarnir í Pole Sport héldu sína árlegu innanhússkeppni um helgina og voru það heimsmeistararnir
Anastasia Shukhtorova og Evgeny Greshilov sem sáu um dómgæslu og sinntu henni vel að sögn gesta.
HÆFILEIKARÍK Eva Dögg Sigurðardóttir og Lúðvík Viktorsson.
ÁNÆGÐAR MEÐ SIGURINN Sól Stefánsdóttir, Guðný Ósk Sigurðardóttir og Tinna
Snorradóttir eru ánægðar með bikarana sína.
MIKIÐ STUÐ Heimsmeistararnir gáfu
eiginhandaráritanir .
SÝNIR STUÐNING Ásta Marteinsdóttir ásamt kærasta
sínum, Marinó Flóvent.
STUÐNINGUR Alexandra Jóna Hermannsdóttir ásamt stuðn-
ingsmönnum sínum. GAMAN SAMAN Halldóra Kröyer og Sólveig Steinunn.
HEIMSMEISTARAR Anastasia Shukhtorova og Evgeny Greshilov
ásamt Birni Inga Pálssyni.
Margir telja þáttaröðina Break-
ing Bad vera eina af þeim bestu
sem gerðar hafa verið og skapast
hefur sterkur og dyggur aðdá-
endahópur í kjölfar þáttanna.
Einn aðalleikaranna, Aaron
Paul sem leikur hinn mislukk-
aða Jessie Pinkman í þáttunum,
stríddi aðdáendum þegar hann
gaf í skyn að gerð yrði enn ein
serían af Breaking Bad. „Ég vissi
ekki að það væri búið að opinbera
það, en jú, við erum að vinna í
annarri seríu,“ skrifaði leikarinn
á heimasíðu Huffington Post og
olli miklu fjaðrafoki með ummæl-
unum. Stuttu síðar leiðrétti hann
þó tilbúninginn og sagðist ein-
ungis hafa verið að grínast.
Stríðnispúki
Flestir hafa heyrt kjaftasöguna um mennina tvo sem hittust á förnum vegi
og töldu sig þekkja hvor annan. Í ljós kom
að lokum að þeir voru báðir að taka feil
og höfðu þeir feikað það til þess að móðga
ekki hinn.
ÉG taldi engar líkur á að þessi saga
væri sönn þar til ég lenti í svipuðu.
Ég var í gleðskap á föstudaginn þegar
maður kom að mér og rétti út hönd-
ina. „Sæll og blessaður,“ sagði hann
stútfullur af sjálfsöryggi. „Hvaða
maður er þetta?“ hugsaði ég en
tók engu að síður í höndina á
honum. „Manstu ekki eftir
mér?“ spurði hann og
neyddi mig þar með til
þess að ljúga. Það er jú
auðvitað stórglæpur að
muna ekki eftir ein-
hverjum, eða það taldi
ég mér trú um.
ÉG sagði honum að mig
rámaði í hann (lygi) en
ég myndi ekki hvaðan.
Hann sagðist þá vinna hjá fyrirtæki í
bænum sem ég hefði hannað vefsíðu fyrir.
Þarna fattaði ég að það var hann sem var
úti á túni en ekki ég. Ég er ekki vefsíðu-
hönnuður og hef aldrei unnið fyrir fyrir-
tækið sem hann nefndi.
FLESTIR hefðu á þessum tímapunkti
notað tækifærið og komið sér út úr
aðstæðunum. „Nei, þú ert eitthvað að
ruglast,“ hefði ég getað sagt og hann hefði
orðið vandræðalegur en ekki ég. Ég ákvað
hins vegar að gera það sem mér er tamast
í aðstæðum sem þessum — að ljúga. Ég
gat alveg verið vefsíðuhönnuður ef þessi
maður vildi að ég væri það. Og þið haldið
að þið séuð meðvirk.
EN upp komast svik um síðir og auðvit að
endaði þetta með því að hann áttaði sig
á því að ég var alls ekki maðurinn sem
hann hélt að ég væri. Ég hafði skorið hann
úr snörunni og hengt sjálfan mig í stað-
inn.
ÞAÐ er kannski spurning að þroskast
aðeins og hætta að reyna að feika það?
Hættur að feika’ða
FYNDINN Aaron Paul er húmoristi.