Fréttablaðið - 26.06.2014, Síða 4
26. júní 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Ingibjörg Karlsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
HELGARSPÁIN NOKKUÐ GÓÐ. Það lítur út fyrir milt veður og hægan vind um
helgina og eitthvað ætti að sjást til sólar. Mögulega léttir heldur til vestanlands
síðdegis á föstudag. Búast má við síðdegisskúrum norðaustanlands.
13°
5
m/s
12°
8
m/s
12°
8
m/s
11°
12
m/s
Hægur
eða
fremur
hægur
vindur.
Hæg
breytileg
átt.
Gildistími korta er um hádegi
28°
32°
15°
24°
18°
16°
23°
20°
20°
25°
20°
28°
29°
38°
24°
21°
20°
23°
13°
4
m/s
12°
4
m/s
17°
3
m/s
14°
2
m/s
17°
2
m/s
13°
3
m/s
8°
6
m/s
16°
13°
14°
12°
16°
18°
18°
16°
17°
15°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
LAUGARDAGUR
Á MORGUN
LÖGREGLUMÁL Rannsókn á hóp-
nauðgun sem kærð var til lög-
reglunnar í maí síðastliðnum er
á lokastigi. Hún verður send til
ríkissaksóknara á allra næstu
dögum.
Friðrik Smári Björgvinsson,
yfirlögregluþjónn og yfirmaður
kynferðis-
brotadeild-
ar, staðfestir
þetta.
Stúlka undir
lögaldri kærði
fimm menn
fyrir nauðgun
sem á að hafa
átt sér stað í
samkvæmi í
Breiðholti í
maí. Menn-
irnir voru
allir í gæslu-
varðhaldi um
stund en Hæstiréttur úrskurðaði
að áframhaldandi gæsluvarðhald
væri óþarft. Fjórir mannanna eru
undir átján ára aldri. - ssb
Rannsókn á lokametrunum:
Hópnauðgun
til saksóknara
STJÓRNMÁL „Samtök um nýja
stjórnarskrá fordæma andlýð-
ræðisleg vinnubrögð og valdþótta
alþingismanna gagnvart fram-
komnum lýðræðislegum vilja
kjósenda í stjórnarskrármálinu,“
segir í yfirlýsingu frá samtök-
unum.
Enn fremur segir að þjóðin sé
stjórnarskrárgjafinn. Hún hafi
kveðið upp sinn dóm í þjóðar-
atkvæðagreiðslu. Niðurstöður
almennra kosninga beri öllum
að una við. Alþingi beri siðferði-
leg og pólitísk skylda til að fara
að niðurstöðum þjóðaratkvæða-
greiðslu sem það sjálft boðar til.
Í lýðræðisríki sé enginn annar
kostur. - jme
Fordæma vinnubrögðin:
Eiga að fara að
þjóðarvilja
YFIR KYNFERÐIS-
BROTADEILDINNI
Friðrik Smári Björg-
vinsson yfirlögreglu-
þjónn.
PERSÓNUVERND Umboðsmanni
skuldara hafa borist kvartanir
vegna ákvörðunar embættisins um
að senda upplýsingar um 1.700 skjól-
stæðinga þess til einkarekins rann-
sóknarfyrirtækis. Upplýsingarnar
voru notaðar í þjónustukönnun sem
embættið taldi að Persónuvernd
hefði veitt leyfi fyrir.
Í könnuninni var haft samband
við bæði fyrrverandi og núverandi
skjólstæðinga sem höfðu sótt ráð-
gjöf til Umboðsmanns skuldara eða
farið í greiðsluaðlögun. Þeir sem
samþykktu að taka þátt voru meðal
annars spurðir um ánægju þeirra
með embættið og hvernig þeim
hefði gengið að fara eftir ráðlegg-
ingum þess. Fyrirtækið Maskína
sá um gerð könnunarinnar. Starfs-
menn þess höfðu upplýsingar um
kennitölur, símanúmer og netföng
einstaklinganna. Þeir vissu einnig
hvort skjólstæðingarnir hefðu leit-
að ráðgjafar eða farið í greiðslu-
aðlögun.
Viðmælandi Fréttablaðsins, sem
vildi ekki láta nafn síns
getið, hafði samband við
Umboðsmann skuldara í
gær til að lýsa óánægju
sinni með að upplýsing-
ar um hann hefðu ratað
til fyrir tækisins. Þá var
honum sagt að Persónu-
vernd hefði gefið leyfi fyrir
könnuninni.
„Það er einfaldlega rangt.
Við höfum ekki gefið neitt leyfi
fyrir þessari könnun,“ segir Þórður
Sveinsson, forstöðumaður lögfræði-
sviðs Persónuverndar. Hann segir
Persónuvernd einungis hafa feng-
ið tilkynningu frá Umboðsmanni
skuldara um þjónustukönnunina. Í
svari Persónuverndar við þeirri til-
kynningu hafi verið tekið
fram að engin afstaða hefði
verið tekin til efnis hennar.
Ásta Sigrún Helgadótt-
ir, umboðsmaður skuldara,
segir embættið hafa talið
svar Persónuverndar ígildi
leyfis.
„Úrtakið var 1.700 manns
en það hafa einungis tveir
kvartað til okkar. Það má
líka ekki gleyma því að fólk sem
er ósátt hefur úrræði. Það getur í
fyrsta lagi leitað til Persónuvernd-
ar og svo getur það auðvitað neitað
að svara,“ segir Ásta.
Spurð hvort þau úrræði eigi við
í þeim tilvikum þar sem einstak-
lingar séu ósáttir við að upplýsing-
ar um þá hafi farið til þriðja aðila
segir Ásta könnunina lúta sömu lög-
málum og reglum og ef starfsmenn
embættisins hefðu unnið hana.
„Bæði hvað varðar trúnaðar-
skyldu og hæfisreglur. En ég geri
mér fulla grein fyrir að þetta er við-
kvæmt mál en mér finnst persónu-
lega ekki mikið að tveir aðilar hafi
leitað til okkar til að kvarta af öllu
þessu fólki,“ segir Ásta.
haraldur@frettabladid.is
Skjólstæðingar gagnrýna
miðlun persónuupplýsinga
Tveir skjólstæðingar Umboðsmanns skuldara eru ósáttir við að embættið hafi sent einkareknu fyrirtæki upp-
lýsingar um þá. Upplýsingarnar notaðar í könnun sem Umboðsmaður skuldara taldi hafa leyfi Persónuverndar.
UMBOÐSMAÐUR SKULDARA Vinna við könnunina hófst í maí og lauk í fyrradag. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ÁSTA SIGRÚN
HELGADÓTTIR
Umboðsmaður skuldara hefur áður verið gagnrýndur fyrir meðferð per-
sónuupplýsinga. Persónuvernd úrskurðaði í september 2012 að embætt-
inu hefði verið óheimilt að senda bréf með upplýsingum um rúmlega þrjú
þúsund einstaklinga til nokkurra lífeyrissjóða. Fyrir mannleg mistök var
bréfið einnig sent innheimtudeild Landspítalans.
Þann 27. júní 2012 úrskurðaði Persónuvernd að starfsmanni stofnunar-
innar hefði ekki verið heimilt að senda félagsþjónustu Hafnarfjarðar
tölvupóst sem innihélt upplýsingar um að skjólstæðingur hefði hlotið
greiðslu fyrir tímabundna örorku frá Tryggingastofnun ríkisins.
Dreifði lista yfir skjólstæðinga
8 karlar og konur, sem ekki hafa verið kjörnir alþingis-
menn, hafa gegnt ráðherra-
embætti á Íslandi.
Sjö karlar og ein kona hafa hlotið
þann heiður.
UMHVERFISMÁL Ómar Smári
Ármannsson, rannsóknarlög-
reglumaður og náttúruverndar-
sinni, kom að hellinum Gjögri í
Ölfusi rammlega lokuðum með
keðjum á dögunum. Hann telur
þann gjörning kolólöglegan.
Ómar Smári hefur sent umhverf-
isráðuneyti og Hellarannsóknar-
félagi Íslands erindi vegna máls-
ins.
„Það vantar skýringar,“ segir
Ómar Smári. „Það er búið að leita
skýringa hjá umhverfisráðuneyt-
inu en engar skýringar hafa feng-
ist. Það er búið að spyrjast fyrir
um þetta hjá Hellarannsóknar-
félaginu en það hefur ekki gefið
skýringar á þessu.“
Guðmundur Þorsteinsson, félagi í
Hellarannsóknarfélaginu, staðfest-
ir að félagið hafi lokað hellinum.
Hann segir að hellinum hafi verið
lokað af verndunar- og öryggis-
sjónarmiðum og að kröfu eigand-
ans, Jóns Ólafssonar kaupsýslu-
manns. Guðmundur segir að hann
viti að áhöld séu um hvort þetta sé
löglegt en það verði bara að koma
í ljós.
Ellert Grétarsson ljósmynd-
ari hefur sent Umhverfisstofnun
erindi og fer fram á að keðjurnar
og lásarnir verði fjarlægð. Hann
bendir á að hellarnir séu ekki frið-
aðir.
Gjögur er í landi Hlíðarenda,
sem Jón Ólafsson keypti á sínum
tíma, eða öllu heldur fyrirtækið
Iceland Water Holdings þar sem
Jón og sonur hans fara með 55 pró-
senta hlut. - jbg / jme
Jón Ólafsson athafnamaður lætur Hellarannsóknarfélagið loka hellinum Gjögri í Ölfusi fyrir umferð:
Stenst ekki lög að loka hellismunnanum
KIRFILEGA LOKAÐ Hellarannsóknar-
félagið lokaði hellinum en margir telja
að sá gjörningur standist ekki lög.
MYND/ELLERT GRÉTARSSON.