Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.06.2014, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 26.06.2014, Qupperneq 20
26. júní 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 20 Framtakssjóður Íslands, sem er meirihlutaeigandi í hugbúnaðar- fyrirtækinu Advania, hefur gert samkomulag við norræna fjár- festa um að sjóðurinn framselji forgangsrétt sinn til áætlaðrar hlutafjáraukningar í fyrirtækinu. Samkomulagið tryggir fjárfest- unum að lágmarki 51 prósents hlut í fyrirtækinu. Hlutafé í Advania verður aukið um tvo milljarða króna samhliða þessu. Fjárfestarnir koma að Advania í gegnum sænska félagið AdvInvest en hópurinn er sam- settur af reynslumiklum mönnum í upplýsingageiranum hið ytra. „Þetta eru fyrst og fremst stjórnendur og stofnendur upp- lýsingatæknifyrirtækja síðustu 20 til 30 ára og þeir hafa starfað hjá flestum stærstu upplýsinga- tæknifyrirtækjunum á Norður- löndum,“ segir Gestur G. Gests- son, forstjóri Advania. Gestur segir að aðkoma fjár- festanna að fyrirtækinu muni reynast Advania vel. „Þetta er gífurlega gott fyrir félagið. Þetta sýnir ekki bara trú á Advania heldur því að það að reka upp- lýsingatæknifyrirtæki á Íslandi getur verið kjölfesta í öflugri starfsemi á Norðurlöndum.“ Nái áætlanir hinna erlendu fjárfesta hjá AdvInvest fram að ganga verður Advania sett á markað á Íslandi og í Svíþjóð á næstu árum. „Það eru að koma að félaginu aðilar með mikla reynslu og þekkingu á mörkuðum í Skandinavíu. Þeir ætla að nýta sér þá kunnáttu og sitt tengsla- net til að auka veg Advania á erlendum mörkuðum. Markaðs- lega hefur þetta mikið meiri þýð- ingu erlendis en hér heima,“ segir Gestur. Aðrir hluthafar í Advania hafa verið boðaðir á fund hjá fyrir- tækinu þann 2. júlí næstkom- andi. Auk framtakssjóðsins, sem er aðaleigandi Advania, eru lið- lega fjörutíu hluthafar í félaginu. „Þetta er allt háð samþykki hluthafafundar,“ segir Gestur. „Núverandi hluthöfum er boðið hvort heldur sem er að taka þátt og auka sinn hlut eða sitja hjá. Það verða haldnar fjárfestingar- kynningar fyrir hluthafa og farið verður í gegnum tækifæri okkar fram undan. Í lok þess verða hlut- hafar að gera upp við sig hvað þeir vilja gera.“ Afstaða annarra hlutafjáreigenda mun ráða hve stóran hlut AdvInvest mun eign- ast í Advania. Fjárfesting AdvIn- vest í Advania er ein stærsta fjár- festing erlendra aðila í íslensku atvinnulífi frá efnahagshruni árið 2008. Advania er stærsta upplýsinga- tæknifyrirtæki landsins með um 1.100 starfsmenn. Tap fyrirtæk- isins árið 2012 nam 1.692 millj- ónum króna og 360 milljónum á síðasta ári. snaeros@frettabladid.is Nýir eigendur vilja koma Advania á markað í Svíþjóð Áætlað er að auka hlutafé í Advania um tvo milljarða í júlímánuði. Um er að ræða eina stærstu fjárfestingu erlendra aðila hérlendis frá hruni. Fjárfestarnir telja Ísland ákjósanlegan stað fyrir upplýsingatæknifyrirtæki. FORSTJÓRINN Gestur G. Gestsson er ánægður með aðkomu hinna erlendu fjárfesta og segir að breytingin verði mikil lyftistöng fyrir fyrirtækið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 1. Ford Fiesta Trend, 5 dyra, sjálfskiptur, bensín frá bílaumboðinu Brimborg að verðmæti kr. 2.790.000. 23454 2. - 21. iPad Air spjaldtölvur, Wi-Fi+4G, 64GB frá Epli.is, hver að verðmæti kr. 154.990,- 968 2852 4748 5113 7677 9897 10528 11833 12620 15249 16733 16963 17334 19551 21977 23367 24243 25368 28536 29149 22. - 64. Gjafakort, hvert að verðmæti kr. 150.000,- 212 897 1876 1950 2683 3196 4337 5435 5730 6935 8094 8351 9230 10332 12018 12709 14940 16151 16447 17313 17725 18269 19126 19857 20178 20722 21251 21729 22436 22833 24091 25019 26532 26909 28551 JÓNSMESSUHAPPDRÆTTI SJÁLFSBJARGAR DREGIÐ VAR ÞANN 24. JÚNÍ 2014 Vinningar og vinningsnúmer Handhafar vinningsmiða eru vinsamlega beðnir um að framvísa þeim á skrifstofu Sjálfsbjargar landssambands fatlaðra að Hátúni 12, Reykjavík, sími 550 0360. Byrjað verður að greiða út vinninga þann 11. júlí 2014. Vinningaskrá er einnig birt á heimasíðu samtakanna, sjalfsbjorg.is og textavarpi RÚV. Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra þakkar landsmönnum veittan stuðning. (birt án ábyrgðar) Advania er stærsta upplýsingatæknifyrirtæki landsins með um 1.100 starfsmenn. Tap fyrirtækisins árið 2012 nam 1.692 milljónum króna og 360 milljónum á síðasta ári. Rekstrarhagnaður Advania fyrir afskriftir nam þó 1.315 milljónum króna árið 2013. Nú stendur yfir undirbúningur á 2.500 fermetra gagnaveri Advania á Fitjum í Reykjanesbæ. Stefnt er að því að fyrsti hluti gagnaversins verði tekinn til notkunar á þessu ári. Tap Advania og breytingar fram undan Borg Brugghús, sem er í eigu Ölgerðar Egils Skallagrímssonar, ætlar að framleiða bjór til útflutn- ings sem verður látinn þroskast í eikartunnum. Bjórinn sem um ræðir heitir Garún og verður geymdur á búr- bonviskítunn- um. Brugghúsið hefur framleitt og selt bjórinn til Bandaríkj- anna og í versl- unum ÁTVR en hann hefur aldrei áður verið lát- inn þroskast í tunnum. „Við erum að bíða eftir að fá helling af búrbontunnum frá Bandaríkjunum. Við lítum á þetta sem útflutningsverkefni en bjór- inn gæti einnig læðst í verslan- ir hér heima,“ segir Sturlaugur Björnsson, bruggmeistari hjá Borg Brugghúsi. Árið 2013 setti fyrirtækið þorra- bjórinn Surt 8.1 í sölu. Hann var látinn þroskast í koníakstunnum. „Við erum núna með sex til átta eikartunnur í húsi og erum búnir að fylla nokkrar. En sá bjór gæti endað sem þorrabjór frá okkur,“ segir Sturlaugur. Hann bætir við að starfsmenn brugghússins hafi einnig gert prufanir með sérrí- tunnum. „Maður er í raun að krydda bjór- inn með því sem var áður í tunn- unni. Svo að sjálfsögðu líka að reyna að ná einhverju sem gæti verið eftir af eikarbragðinu. Það er hægt að leika sér endalaust með þetta.“ Sturlaugur segir tunnurnar aug- ljóslega fela í sér aukinn kostnað. „Og ekki síður tíminn og vinn- an við þetta allt og geymslupláss- ið sem fer í að láta þetta standa og þroskast.“ Ölgerðin flytur út sex tegundir af bjór til fimm landa. Þrjár eru seldar undir nafni Ölgerðarinn- ar; Gull, Boli og Lite. Bjórarnir Bríó, Snorri og Garún eru seldir til útlanda undir merkjum Borgar brugghúss. - hg Ölgerðin ætlar í útflutning á bjór sem verður látinn þroskast í eikartunnum: Brugga tunnuþroskaðan bjór VIÐ TÆKIN Bruggarar Ölgerðarinnar bíða nú eftir búrbonviskítunnum frá Banda- ríkjunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA STURLAUGUR BJÖRNSSON Forsvarsmenn Regins fasteigna- félags gengu í gær frá kaupum dótturfélags Regins á Hótel Óðinsvéum hf. sem var áður í eigu Gamma ehf. Stjórnir beggja félaga höfðu áður samþykkt eigendaskiptin. Dótturfélagið, Reginn atvinnu- húsnæði ehf., á nú fasteignirnar Þórsgötu 1 og Lokastíg 2 í miðbæ Reykjavíkur. Þær eru samtals um 2.200 fermetrar að stærð. Hótel Óðinsvé er fjögurra stjörnu hótel með 50 herbergi. Veitingastaðurinn Snaps er einn- ig rekinn á Þórsgötu 1 sem og smurbrauðsstofan Brauðbær. Í tilkynningu Regins um eigenda- skiptin segir að engar breytingar verði á rekstri fyrirtækjanna. - hg Samningur undirritaður: Hótel Óðinsvé í eigu Regins Núverandi hluthöfum er boðið hvort heldur sem er að taka þátt og auka sinn hlut eða sitja hjá. Það verða haldnar fjárfestingar- kynningar fyrir hluthafa og farið verður í gegnum tækifæri okkar fram undan. Í lok þess verða hluthafar að gera upp við sig hvað þeir vilja gera. LEITAR OLÍU Gunnlaugur Jónsson, for- stjóri Eykon Energy. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Íslenska fyrirtækið Eykon Energy hefur dregið til baka umsókn sína um að fá viðurkenn- ingu sem sérleyfishafi á norska landgrunninu. Gunnlaugur Jónsson, forstjóri Eykons, staðfesti í samtali við fréttastofu í gær að fyrirtækið ætlaði að einbeita sér að íslenska Drekasvæðinu og vildi ekki dreifa kröftunum. Því væri þó haldið opnu að fara síðar í olíuleit í Nor- egi. Norski olíunetmiðillinn Offs- hore greindi fyrst frá þessu í gær undir fyrirsögninni „Islendingene dropp er norsk sokkel“. - kmu Einbeitir sér að Drekanum: Eykon hætt við olíuleit í Noregi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.