Fréttablaðið - 26.06.2014, Síða 30

Fréttablaðið - 26.06.2014, Síða 30
FÓLK|TÍSKA MEISTARI Edda Bára hefur í mörg ár sérsaumað kjóla og brúðarkjóla og starfaði meðal annars fyrir brúðarkjólabúðina Brides by Solo í Cambridge. Til hennar koma konur til að láta sauma á sig sparikjóla, hvunndagskjóla og brúðarkjóla en einnig til að láta laga eða breyta kjólum. MYNDIR/DANÍEL Eddu Báru er brennandi áhugi á handavinnu og saumaskap í blóð borinn. „Þannig var ég öll menntaskólaárin á sauma námskeiðum á laugardagsmorgnum og sat heima við saumavélina þegar aðrir voru að djamma,“ segir Edda og hlær sínum dillandi hlátri. Þegar aldarfjórðungur hafði mælst af ævi Eddu ákvað hún að leggja saumaskapinn fyrir sig og mennta sig í fatasaum, sníðagerð, bróderíi og kennsluréttindum við textílskóla í Kaupmannahöfn. „Ég vissi að ég myndi njóta lífsins við saumavél- ina því ég hef gaman af því að gera einhvern glaðan með saumaskap. Þá finnst mér dásamlegt að kenna saumaskap og koma til móts við eldmóð og einlæg- an áhuga nemenda minna,“ segir Edda Bára kát. Saumavélin hefur fylgt Eddu Báru um víðan heim því hún var um árabil flugfreyja hjá Atlanta og tók saumavélina með sér í allar ferðir. „Í ferðum mínum um heiminn hef ég lagt mig fram um að bæta við mig kunnáttu í saumaskap og lærði þannig sníðagerð herrafata og búninga hjá virtum búningahönnuði við Konunglega leikhúsið í Kaupmannahöfn ásamt því að verða óvænt full- numa í gardínusaum þegar ég var verslunarstjóri Vogue og síðar gardínumeistari efnaða fólksins á Englandi.“ ENGAR TVÆR Í ALVEG EINS DRAUMAKJÓL Meðfram flugi og annríki í Vogue saumaði Edda Bára spari- og brúðarkjóla í hjá- verkum. „Ég hef yndi af því að skapa fallega hluti og sérstaklega að hanna og sauma drauma- kjól kvenna,“ segir Edda Bára sem fyrst hittir konurnar til að kynnast þeim aðeins og sjá hvað þeim þykir fallegt, eins og úrklippur, efni og snið. „Síðan tek ég málin, teikna upp draumakjólinn og sauma eins konar prufukjól úr lakalérefti svo ég þurfi ekki strax að klippa í silkið eða annað fínt kjólaefni. Með því sjá konurnar hvernig kjóllinn klæðir þær og í sam- einingu komust við að niðurstöðu sem gerir draumakjólinn fullkominn.“ Edda Bára sérpantar dýrðleg gæðaefni ásamt blúndum og borðum fyrir hvern og einn kjól og önnur sérverkefni. „Sérsaumaður kjóll fellur vel að vexti hverrar konu og klæðir hana undurvel. Ég legg mikið upp úr því að fínir kjólar fyrir stærri tilefni henti áfram fyrir aðra sparilega daga og glansinn við sérsaumaðan kjól er óneitanlega sá að engin kona sem mætir þér er í eins kjól.“ Að sögn Eddu Báru ætti að vera jafn eðlilegt að fara til kjólameistara til kjólakaupa eins og það er að kaupa sér tilbúinn kjól út úr búð. „Á Íslandi starfa margir mjög hæfileikaríkir hönnuðir og saumakonur og beinlínis æðislegt að geta nýtt sér krafta þeirra í fallegan sauma- skap og einstök klæði.“ KONUNGLEGA DJÚSÍ GARDÍNUR Edda Bára flutti til Íslands um síðustu áramót eftir að hafa búið í Cambridge á Englandi síðastliðin þrjú ár með skoskum unnusta sínum. „Í Cambridge tók ég við saumastofu fyrirtækisins Cle- ment Jocelyne sem sérhæfir sig í innanhússhönnun, líkt og Epal hér heima. Þar sá ég um sérsaum á gard- ínum upp á breskan máta sem voru fram- leiddar fyrir heimili, stofnanir og hótel,“ segir Edda Bára um stássleg gluggatjöld Breta sem eiga lítið skylt við íslenska gardínutísku. „Bresk híbýli eru verr einangruð en þau íslensku og því gömul hefð að setja vatterað millifóður í gardínurnar sem gerir þær djúsí, konunglegar og flottar. Í stíl eru svo rúmteppi og púðar og allt auð- vitað handsaumað sem þykir það allra fínasta á Englandi,“ segir Edda Bára brosmild á vinnustofu sinni, Edda Bára Couture, í Fornubúðum við smá- bátahöfnina í Hafnarfirði, þar sem iðar allt af lista- lífi í gömlum bátaskýlum við sæinn. „Hér er yndislegt að skapa og starfa og með haustinu verð ég með spennandi saumanámskeið í skemmtilegu plássi á loftinu ofan við vinnustofuna. Ég hlakka mikið til enda fátt eins meira kósí og að setjast við saumavél- ina þegar haustar að úti.“ Sjá nánar á www.eddabara.com og á Facebook. ■ thordis@365.is DRAUMAKJÓLLINN TÍSKA Kjólameistarinn Edda Bára Róbertsdóttir bróderar perlur og blúndur í handsaumaða brúðarkjóla. Hún mætir draumum kvenna við saumavélina. Útsala hafin! Frábær tilboð á Útsölu. Fylgist með okkur á facebook.com/Parisartizkan Skipholti 29b • S. 551 0770 Swanson – ánægðustu viðskiptavinirnir í USA árið 2013. Söluaðilar á Íslandi á www.swanson.is. Öflug blanda fyrir auma liði Styður við brjósk og eykur liðleika 10 g af kollagenum í hverjum skammti Joint Health Mix Verkjalaus hreyfing í sumar?

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.