Fréttablaðið - 26.06.2014, Qupperneq 30
FÓLK|TÍSKA
MEISTARI
Edda Bára hefur í mörg
ár sérsaumað kjóla og
brúðarkjóla og starfaði
meðal annars fyrir
brúðarkjólabúðina
Brides by Solo í
Cambridge. Til hennar
koma konur til að láta
sauma á sig sparikjóla,
hvunndagskjóla og
brúðarkjóla en einnig til
að láta laga eða breyta
kjólum.
MYNDIR/DANÍEL
Eddu Báru er brennandi áhugi á handavinnu og saumaskap í blóð borinn. „Þannig var ég öll menntaskólaárin á
sauma námskeiðum á laugardagsmorgnum og
sat heima við saumavélina þegar aðrir voru að
djamma,“ segir Edda og hlær sínum dillandi hlátri.
Þegar aldarfjórðungur hafði mælst af ævi Eddu
ákvað hún að leggja saumaskapinn fyrir sig og
mennta sig í fatasaum, sníðagerð, bróderíi og
kennsluréttindum við textílskóla í Kaupmannahöfn.
„Ég vissi að ég myndi njóta lífsins við saumavél-
ina því ég hef gaman af því að gera einhvern glaðan
með saumaskap. Þá finnst mér dásamlegt að kenna
saumaskap og koma til móts við eldmóð og einlæg-
an áhuga nemenda minna,“ segir Edda Bára kát.
Saumavélin hefur fylgt Eddu Báru um víðan heim
því hún var um árabil flugfreyja hjá Atlanta og tók
saumavélina með sér í allar ferðir.
„Í ferðum mínum um heiminn hef ég lagt mig
fram um að bæta við mig kunnáttu í saumaskap og
lærði þannig sníðagerð herrafata og búninga hjá
virtum búningahönnuði við Konunglega leikhúsið
í Kaupmannahöfn ásamt því að verða óvænt full-
numa í gardínusaum þegar ég var verslunarstjóri
Vogue og síðar gardínumeistari efnaða fólksins á
Englandi.“
ENGAR TVÆR Í ALVEG EINS DRAUMAKJÓL
Meðfram flugi og annríki í Vogue saumaði Edda
Bára spari- og brúðarkjóla í hjá-
verkum.
„Ég hef yndi af því að
skapa fallega hluti og
sérstaklega að hanna
og sauma drauma-
kjól kvenna,“ segir
Edda Bára sem fyrst
hittir konurnar til
að kynnast þeim
aðeins og sjá hvað
þeim þykir fallegt,
eins og úrklippur,
efni og snið.
„Síðan tek ég
málin, teikna upp
draumakjólinn og
sauma eins konar
prufukjól úr lakalérefti
svo ég þurfi ekki strax að
klippa í silkið eða annað fínt
kjólaefni. Með því sjá konurnar
hvernig kjóllinn klæðir þær og í sam-
einingu komust við að niðurstöðu sem gerir
draumakjólinn fullkominn.“
Edda Bára sérpantar dýrðleg gæðaefni ásamt
blúndum og borðum fyrir hvern og einn kjól og
önnur sérverkefni.
„Sérsaumaður kjóll fellur vel að vexti hverrar
konu og klæðir hana undurvel. Ég legg mikið
upp úr því að fínir kjólar fyrir stærri tilefni henti
áfram fyrir aðra sparilega daga og glansinn við
sérsaumaðan kjól er óneitanlega sá að engin
kona sem mætir þér er í eins kjól.“
Að sögn Eddu Báru ætti að vera jafn eðlilegt
að fara til kjólameistara til kjólakaupa eins og
það er að kaupa sér tilbúinn kjól út úr búð.
„Á Íslandi starfa margir mjög hæfileikaríkir
hönnuðir og saumakonur og beinlínis æðislegt
að geta nýtt sér krafta þeirra í fallegan sauma-
skap og einstök klæði.“
KONUNGLEGA DJÚSÍ
GARDÍNUR
Edda Bára flutti til Íslands
um síðustu áramót eftir
að hafa búið í Cambridge á
Englandi síðastliðin þrjú ár
með skoskum unnusta sínum.
„Í Cambridge tók ég við
saumastofu fyrirtækisins Cle-
ment Jocelyne sem sérhæfir sig í
innanhússhönnun, líkt og Epal hér
heima. Þar sá ég um sérsaum á gard-
ínum upp á breskan máta sem voru fram-
leiddar fyrir heimili, stofnanir og hótel,“ segir
Edda Bára um stássleg gluggatjöld Breta sem eiga
lítið skylt við íslenska gardínutísku.
„Bresk híbýli eru verr einangruð en þau íslensku
og því gömul hefð að setja vatterað millifóður í
gardínurnar sem gerir þær djúsí, konunglegar og
flottar. Í stíl eru svo rúmteppi og púðar og allt auð-
vitað handsaumað sem þykir það allra fínasta á
Englandi,“ segir Edda Bára brosmild á vinnustofu
sinni, Edda Bára Couture, í Fornubúðum við smá-
bátahöfnina í Hafnarfirði, þar sem iðar allt af lista-
lífi í gömlum bátaskýlum við sæinn.
„Hér er yndislegt að skapa og starfa og með haustinu
verð ég með spennandi saumanámskeið í skemmtilegu
plássi á loftinu ofan við vinnustofuna. Ég hlakka mikið
til enda fátt eins meira kósí og að setjast við saumavél-
ina þegar haustar að úti.“
Sjá nánar á www.eddabara.com og á Facebook.
■ thordis@365.is
DRAUMAKJÓLLINN
TÍSKA Kjólameistarinn Edda Bára Róbertsdóttir bróderar perlur og blúndur í
handsaumaða brúðarkjóla. Hún mætir draumum kvenna við saumavélina.
Útsala hafin!
Frábær tilboð á Útsölu.
Fylgist með okkur á
facebook.com/Parisartizkan
Skipholti 29b • S. 551 0770
Swanson – ánægðustu viðskiptavinirnir í USA árið 2013.
Söluaðilar á Íslandi á www.swanson.is.
Öflug blanda fyrir auma liði
Styður við brjósk og eykur liðleika
10 g af kollagenum í hverjum skammti
Joint Health Mix
Verkjalaus hreyfing
í sumar?