Fréttablaðið - 26.06.2014, Page 33
KYNNING − AUGLÝSING Þvottur og fataviðgerðir26. JÚNÍ 2014 FIMMTUDAGUR 3
SAGA ÞVOTTAVÉLARINNAR
Fyrsta þvottatækið var líklega hið klassíska þvottabretti sem talið er að fundið hafi verið
upp árið 1797. Líklega er það langlífasta þvottatækið enda er það enn notað víða um heim til
að handþvo föt og klæði.
Árið 1851 sótti Bandaríkjamaðurinn James King um einkaleyfi á fyrstu þvottavélinni þar sem
notast var við tromlu. Tromlan gerði að verkum að tækið líktist nokkuð nútíma þvottavél en
hún var samt sem áður handknúin.
Árið 1858 fann Hamilton Smith upp og fékk einkaleyfi á þvottavél með tromlu með hand-
knúnu snúningskerfi.
Árið 1874 smíðaði William Blackstone frá Indiana í Bandaríkjunum afmælisgjöf fyrir eiginkonu
sína. Þetta var vél sem fjarlægði og þvoði skít úr fötum. Líklega er þetta fyrsta vélin sem
hönnuð var til notkunar inni á heimili.
Þvottavélin Thor var fyrsta rafmagnsknúna þvottavélin. Hún var kynnt til leiks árið 1908 af
Hurley Machine Company frá Chicago. Uppfinningamaðurinn að baki Thor var Alva J. Fisher.
HALDARAR Í POKA
Brjóstahaldarar með spöngum
geta farið ansi illa með þvotta-
vélar. Spangirnar geta stungist
inn í tromluna og skemmt vélina.
Yfirleitt er mælt með því að
handþvo brjóstahaldara þar sem
það fer best með flíkurnar. Þær
sem ekki nenna slíku dútli og vilja
nýta þarfasta þjóninn til verksins,
ættu alltaf að nota svokallaða
nærfatapoka. Þá eru brjóstahald-
ararnir settir í pokann sem kemur
í veg fyrir að spangirnar fari á
flakk í vélinni.
Ekki skal setja brjóstahaldara í
þurrkara en best er að slétta úr
honum og leggja hann snyrti-
legan og flatan til þerris.
„Besta bleikiefnið er einnig að
hengja út hvítan þvott í sól, þá bragg-
ast hvíti liturinn vel. Gallabuxur
þarf hins vegar að hengja út á röng-
unni því sólin er undurfljót að upplita
þvottinn.”
Margrét segir gott að eiga til mis-
munandi þvottaefni fyrir ólíkan þvott
og þvottakerfi.
„Þá skal alltaf stilla notkun þvotta-
efnis í hóf eftir því hvað á að þvo og
nota minna þvottaefni en mælst er til
á umbúðum og er jafnan of mikið. Út-
koman getur annars verið útbrot og
kláði, ekki síst hjá börnum og þeim
sem hafa viðkvæma húð.“
Á vordögum las Margrét í glansrit-
inu Vogue að henda ætti skyrtum sem
væru orðnar gular eða brúnar í kraga
og líningum því ekki væri hægt að ná
gula litnum úr.
„Svona er spekin nú orðin en besta
ráðið við að ná óhreinindum úr kraga
og líningum er auðvitað að nudda
svæðið með handsápu áður en flíkin
fer í þvottavél. Það hvíttar vel og gerir
flíkina eins og nýja.”
n þvott
rskólans í Reykjavík, hefur í
vo þvott sinn rétt. Hún segir
i til að drepa bakteríur.
l þvegnum borðdúk í þvottahúsi skólans. MYND/GVA
Með því að nota mild þvottaefni
eins og MILT, dregur þú úr líkum
á því að þú eða einhverjir í þinni
fjölskyldu fái ofnæmi eða exem.
ÁN OFNÆMIS-
VALDANDI EFNA
Þú þarft minna
af MILT því það
er sérþróað fyrir
íslenskt vatn.
40 ÞVOTTAR
Í 2 KG PAKKA
FARÐU MILDUM HÖNDUM UM
ÞIG, ÞVOTTINN OG UMHVERFIÐ