Fréttablaðið - 26.06.2014, Side 44
MENNING
26. júní 2014 FIMMTUDAGUR
Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna,
hefur úthlutað starfsstyrkjum fyrir árið 2014. Alls
var úthlutað 31 styrk, samtals að upphæð 13 milljónir.
Auglýst var eftir umsóknum um starfsstyrki Hag-
þenkis í apríl og barst 71 umsókn til félagsins. Til
ráðstöfunar voru 13 milljónir. Niðurstaða úthlutunar-
nefndar var að 31 verkefni fær starfsstyrk. Tíu verk-
efni fengu hæsta styrk sem er 600.000 kr., eitt 500.000
kr., sex 400.000 kr., þrettán fengu 300.000 kr. og eitt
200.000 kr. Þá hlaut einn umsækjandi handritsstyrk
en sex umsóknir bárust.
Í úthlutunarnefnd Hagþenkis 2014 voru Guðný
Hallgrímsdóttir sagnfræðingur, Þorgerður H. Þor-
valdsdóttir kynjafræðingur og Kolbrún S. Hjalta-
dóttir kennari og formaður nefndarinnar.
Tíu verkefni hlutu hæsta styrk
Starfsstyrkir Hagþenkis hafa verið veittir. 31 verkefni var styrkt að þessu sinni.
STYRKÞEGAR Veittir voru styrkir til 31 verkefnis, alls að
upphæð 13 milljónir króna. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
„Við byrjum á sunnudaginn með
tónleikum Ensemble Villancico sem
er sænskur barokkhópur og þau
verða með mjög spennandi dagskrá
þar sem þau flytja barokktónlist
frá Ekvador, sem er mjög óvenju-
legt þar sem mest af barokktónlist
sem við heyrum er frá Evrópu,“
segir Þorgerður Edda Hall, fram-
kvæmdastýra Sumartónleika í Skál-
holtskirkju. „Fyrsta vikan einkenn-
ist af tónleikum ýmissa norrænna
hópa og dagskráin er mun þéttari en
hún hefur áður verið.“
Sumartónleikar í Skálholti eru
fjörutíu ára í ár og af því tilefni er
meira lagt í dagskrána en oft áður,
tónleikar oft í viku í fimm vikur.
„Lengdin er sú sama og hún hefur
verið,“ segir Þorgerður. „En það
verða fleiri viðburðir en vanalega.
Oftast hafa eingöngu verið tónleikar
um helgar en núna verða viðburðir á
hverjum einasta degi fyrstu vikuna
og hinar vikurnar hefst dagskrá alla
fimmtudaga. Við vildum hafa þetta
viðameira núna vegna afmælisins
og vegna hins norræna samstarfs
gátum við fjármagnað það með
norrænum styrkjum.“
Mánudaginn 30. júní mun Nordic
Affect flytja glænýja tónlist á bar-
okkhljóðfæri, meðal annars verk
eftir Maríu Huld Markan, Úlf Hans-
son og Önnu Þorvaldsdóttur.
Skálholtskvartettinn kemur
einnig fram þessa fyrstu viku
Sumar tónleika, með Jaap Schröder í
fararbroddi sem leikur nú á Sumar-
tónleikum í 22. skipti.
Fimmtudaginn 3. júlí verður svo
hátindi vikunnar náð með úrslita-
keppni EAR-ly – Third Nordic
Young Early Music Competition, en
þar koma fram þrír framúrskarandi
ungir hópar ungs fólks sem flytur
barokktónlist á upprunaleg hljóð-
færi. Keppendurnir eru hóparnir
Bastard Barock, Ensemble Flautino
og Marini-Ollberg duo og koma frá
Svíþjóð og Finnlandi.
Auk tónleikanna verða dagana 30.
júní til 2. júlí opnir masterklassar
og fyrirlestrar með virtum barokk-
sérfræðingum eins og Jaap Schrö-
der, Ann Wallström, Johannes Boer,
Peter Pontvik og Höllu Steinunni
Stefánsdóttur.
Eftir opnunarviku hátíðarinnar
koma fram Kór og Kammersveit
Listaháskóla Íslands, sem flytja
fyrir lestur og tónleika tileinkaða
Þorkeli Sigurbjörnssyni. Danski
hópurinn Music for the Mysteries
og Kammerkór Suðurlands flytja
nýtt verk eftir danska tónskáldið
Hanne Tofte Jespersen, sem byggt
er á keltneskri sögu og tvinnar
saman tónlist, dans, leiklist og sjón-
list. Voces Thules flytur ásamt Lenu
Willemark íslenska miðaldatónlist
ásamt sænskri þjóðlagatónlist á tón-
leikum með spunaívafi. Bachsveitin
í Skálholti verður á sínum stað með
hinn danska Peter Spissky sem leið-
ara og Elfu Rún Kristinsdóttur og
Jóhönnu Halldórsdóttur sem ein-
leikara og -söngvara. Caput flytur
tónleika tileinkaða Hafliða Hall-
grímssyni. Kammerkórinn Hljóm-
eyki flytur verk eftir staðartónskáld
sumarsins, Pál Ragnar Pálsson, en
hann hefur samið nýtt verk við
Ljóðaljóðin fyrir tilefnið. Sumr-
inu lýkur á franska barokkhópnum
Copro di Strumenti, með Steinunni
Arnbjörgu Stefáns dóttur í farar-
broddi, en þau munu m.a. sýna list-
ir sínar með tónleikunum „Djúkox“,
þar sem fiðluleikari hópsins leyfir
tónleikagestum að panta lög á fón-
inn, en hann geymir í erminni fiðlu-
partítur og -sónötur Bachs, allar
með tölu.
Auk þess að fagna fjörutíu ára
afmælinu verður Helgu Ingólfs-
dóttur semballeikara minnst með
sérstökum minningartónleikum, en
í sumar eru fimm ár síðan hún lést.
„Ann Wallström, barokkfiðluleikari,
sem var fyrsti leiðari Bach-sveitar-
innar í Skálholti og er því heima-
vön, ætlar að spila með Sigurði Hall-
dórssyni og Guðrúnu Óskarsdóttur
og allur ágóði af tónleikunum, sem
verða tvisvar sinnum á miðvikudag
og laugardag í næstu viku, rennur
í minningarsjóð Helgu,“ segir Þor-
gerður.
Dagskrána má kynna sér í smá-
atriðum á vefsíðunni sumarton-
leikar.is og ættu flestir að geta
fundið tónleika við sitt hæfi í þess-
ari viðamiklu dagskrá.
fridrikab@frettabladid.is
Þétt dagskrá í fi mm
vikur í Skálholti
Sumartónleikar í Skálholti fagna fertugasta starfsári sínu með viðamikilli fi mm
vikna dagskrá sem hefst á sunnudaginn og stendur fram á verslunarmanna-
helgi. Fyrstu vikuna verða viðburðir á hverjum degi sem er nýjung.
UPPHAFSTÓNLEIKAR Sænski hópurinn Ensemble Villancico leikur suðuramerískt barokk með dönsurum, sem aldrei hefur
heyrst fyrr. MYND/ÚR EINKASAFNI
ÞORGERÐUR EDDA HALL
Textar Einars Georgs fyrir Hjál
ma og
Ásgeir Trausta hafa vakið mikla
athygli. Í bókinni HVERAFUGLA
R
kveður hann sér hljóðs með ljó
ðum
af ýmsu tagi. Bókin er myndskr
eytt
af syni hans Ásgeiri Trausta.
Útgáfunni verður fagnað í
Eymundsson, Laugavegi 77,
fimmtudaginn 26. júní kl. 17.
ALLIR VELKOMNIR
Léttar veitingar í boði
Ásgeir Trausti og Þorsteinn úr
Hjálmum leika fyrir gesti