Fréttablaðið - 26.06.2014, Síða 44

Fréttablaðið - 26.06.2014, Síða 44
MENNING 26. júní 2014 FIMMTUDAGUR Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna, hefur úthlutað starfsstyrkjum fyrir árið 2014. Alls var úthlutað 31 styrk, samtals að upphæð 13 milljónir. Auglýst var eftir umsóknum um starfsstyrki Hag- þenkis í apríl og barst 71 umsókn til félagsins. Til ráðstöfunar voru 13 milljónir. Niðurstaða úthlutunar- nefndar var að 31 verkefni fær starfsstyrk. Tíu verk- efni fengu hæsta styrk sem er 600.000 kr., eitt 500.000 kr., sex 400.000 kr., þrettán fengu 300.000 kr. og eitt 200.000 kr. Þá hlaut einn umsækjandi handritsstyrk en sex umsóknir bárust. Í úthlutunarnefnd Hagþenkis 2014 voru Guðný Hallgrímsdóttir sagnfræðingur, Þorgerður H. Þor- valdsdóttir kynjafræðingur og Kolbrún S. Hjalta- dóttir kennari og formaður nefndarinnar. Tíu verkefni hlutu hæsta styrk Starfsstyrkir Hagþenkis hafa verið veittir. 31 verkefni var styrkt að þessu sinni. STYRKÞEGAR Veittir voru styrkir til 31 verkefnis, alls að upphæð 13 milljónir króna. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL „Við byrjum á sunnudaginn með tónleikum Ensemble Villancico sem er sænskur barokkhópur og þau verða með mjög spennandi dagskrá þar sem þau flytja barokktónlist frá Ekvador, sem er mjög óvenju- legt þar sem mest af barokktónlist sem við heyrum er frá Evrópu,“ segir Þorgerður Edda Hall, fram- kvæmdastýra Sumartónleika í Skál- holtskirkju. „Fyrsta vikan einkenn- ist af tónleikum ýmissa norrænna hópa og dagskráin er mun þéttari en hún hefur áður verið.“ Sumartónleikar í Skálholti eru fjörutíu ára í ár og af því tilefni er meira lagt í dagskrána en oft áður, tónleikar oft í viku í fimm vikur. „Lengdin er sú sama og hún hefur verið,“ segir Þorgerður. „En það verða fleiri viðburðir en vanalega. Oftast hafa eingöngu verið tónleikar um helgar en núna verða viðburðir á hverjum einasta degi fyrstu vikuna og hinar vikurnar hefst dagskrá alla fimmtudaga. Við vildum hafa þetta viðameira núna vegna afmælisins og vegna hins norræna samstarfs gátum við fjármagnað það með norrænum styrkjum.“ Mánudaginn 30. júní mun Nordic Affect flytja glænýja tónlist á bar- okkhljóðfæri, meðal annars verk eftir Maríu Huld Markan, Úlf Hans- son og Önnu Þorvaldsdóttur. Skálholtskvartettinn kemur einnig fram þessa fyrstu viku Sumar tónleika, með Jaap Schröder í fararbroddi sem leikur nú á Sumar- tónleikum í 22. skipti. Fimmtudaginn 3. júlí verður svo hátindi vikunnar náð með úrslita- keppni EAR-ly – Third Nordic Young Early Music Competition, en þar koma fram þrír framúrskarandi ungir hópar ungs fólks sem flytur barokktónlist á upprunaleg hljóð- færi. Keppendurnir eru hóparnir Bastard Barock, Ensemble Flautino og Marini-Ollberg duo og koma frá Svíþjóð og Finnlandi. Auk tónleikanna verða dagana 30. júní til 2. júlí opnir masterklassar og fyrirlestrar með virtum barokk- sérfræðingum eins og Jaap Schrö- der, Ann Wallström, Johannes Boer, Peter Pontvik og Höllu Steinunni Stefánsdóttur. Eftir opnunarviku hátíðarinnar koma fram Kór og Kammersveit Listaháskóla Íslands, sem flytja fyrir lestur og tónleika tileinkaða Þorkeli Sigurbjörnssyni. Danski hópurinn Music for the Mysteries og Kammerkór Suðurlands flytja nýtt verk eftir danska tónskáldið Hanne Tofte Jespersen, sem byggt er á keltneskri sögu og tvinnar saman tónlist, dans, leiklist og sjón- list. Voces Thules flytur ásamt Lenu Willemark íslenska miðaldatónlist ásamt sænskri þjóðlagatónlist á tón- leikum með spunaívafi. Bachsveitin í Skálholti verður á sínum stað með hinn danska Peter Spissky sem leið- ara og Elfu Rún Kristinsdóttur og Jóhönnu Halldórsdóttur sem ein- leikara og -söngvara. Caput flytur tónleika tileinkaða Hafliða Hall- grímssyni. Kammerkórinn Hljóm- eyki flytur verk eftir staðartónskáld sumarsins, Pál Ragnar Pálsson, en hann hefur samið nýtt verk við Ljóðaljóðin fyrir tilefnið. Sumr- inu lýkur á franska barokkhópnum Copro di Strumenti, með Steinunni Arnbjörgu Stefáns dóttur í farar- broddi, en þau munu m.a. sýna list- ir sínar með tónleikunum „Djúkox“, þar sem fiðluleikari hópsins leyfir tónleikagestum að panta lög á fón- inn, en hann geymir í erminni fiðlu- partítur og -sónötur Bachs, allar með tölu. Auk þess að fagna fjörutíu ára afmælinu verður Helgu Ingólfs- dóttur semballeikara minnst með sérstökum minningartónleikum, en í sumar eru fimm ár síðan hún lést. „Ann Wallström, barokkfiðluleikari, sem var fyrsti leiðari Bach-sveitar- innar í Skálholti og er því heima- vön, ætlar að spila með Sigurði Hall- dórssyni og Guðrúnu Óskarsdóttur og allur ágóði af tónleikunum, sem verða tvisvar sinnum á miðvikudag og laugardag í næstu viku, rennur í minningarsjóð Helgu,“ segir Þor- gerður. Dagskrána má kynna sér í smá- atriðum á vefsíðunni sumarton- leikar.is og ættu flestir að geta fundið tónleika við sitt hæfi í þess- ari viðamiklu dagskrá. fridrikab@frettabladid.is Þétt dagskrá í fi mm vikur í Skálholti Sumartónleikar í Skálholti fagna fertugasta starfsári sínu með viðamikilli fi mm vikna dagskrá sem hefst á sunnudaginn og stendur fram á verslunarmanna- helgi. Fyrstu vikuna verða viðburðir á hverjum degi sem er nýjung. UPPHAFSTÓNLEIKAR Sænski hópurinn Ensemble Villancico leikur suðuramerískt barokk með dönsurum, sem aldrei hefur heyrst fyrr. MYND/ÚR EINKASAFNI ÞORGERÐUR EDDA HALL Textar Einars Georgs fyrir Hjál ma og Ásgeir Trausta hafa vakið mikla athygli. Í bókinni HVERAFUGLA R kveður hann sér hljóðs með ljó ðum af ýmsu tagi. Bókin er myndskr eytt af syni hans Ásgeiri Trausta. Útgáfunni verður fagnað í Eymundsson, Laugavegi 77, fimmtudaginn 26. júní kl. 17. ALLIR VELKOMNIR Léttar veitingar í boði Ásgeir Trausti og Þorsteinn úr Hjálmum leika fyrir gesti

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.