Fréttablaðið - 26.06.2014, Blaðsíða 48
26. júní 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 36
21.00 Árið 2013 tók amiina þátt í
verkefni þar sem fimm listamenn
og hljómsveitir(amiina, James Black-
shaw, Loney Dear, Tim Hecker og Yann
Tiersen) voru fengin til að semja nýja
tónlist við 100 ára gamlar kvikmyndir
um hinn siðblinda stórglæpamann
Fantomas. Tilefnið var 4K endurgerð
Gaumont á myndunum fimm, en það
er ein nákvæmasta og ítarlegasta leið
sem hægt er að fara við endurgerð
gamalla kvikmynda. Amiina mun flytja
tónlistina við kvikmyndina í Mengi.
Kvikmyndinni verður varpað á vegg.
Miðaverð er 2.000 krónur.
Sýningar
09.00 Hreindýrasýning í Hörpu. Á
sýningunni Villt hreindýr á Íslandi er
hægt að sjá og fræðast um hreindýr
og líf þeirra. Hreindýrasýningin er full-
komin blanda menningar, náttúru og
tækninýjunga og er mikil upplifun fyrir
alla aldurshópa. Sýningargestum
gefst tækifæri til að komast
í návígi við hreindýrin en
gagnvirk innsetning
Gagarín gefur fólki
kost á að fá innsýn
í og hrífast af líf-
erni og lífsháttum
hreindýranna.
Sýningin er í
Flóanum í Hörpu
og er miðaverð
1.900 krónur,
miða má nálgast
á heimasíðu
midi.is.
14.00 Gunnar Marel
Hinriksson hefur
undanfarið eitt og hálft
ár ljósmyndað á farsíma
innkaupakerrur víðs vegar um
borgina með appinu Instagram. Inn-
kaupakerrurnar eru myndaðar þar sem
þær finnast yfirgefnar og ekki hreyfðar
af ljósmyndaranum. Þær eru hlut-
gervingur einnota neysluhyggju, skildar
eftir þegar hlutverki þeirra er lokið frá
sjónarhóli neytandans. Þegar þær hafa
verið yfirgefnar er ekki laust við að þær
manngerist örlítið þar sem þær standa
eða liggja einar og afskiptalausar í
borgarlandslaginu, horfandi í tómið.
Sýningin opnar í dagí Ljósmyndasafni
Reykjavíkur.
17.00 Sýning um verðlaunað útskriftar-
verkefni, Vítamín Náttúra, jákvæð áhrif,
verður opnuð í Listasafni Árnesinga,
Hveragerði. Anna Birna Björnsdóttir,
sem lauk nýverið meistaranámi frá
Kunst- og designhögskolen í Bergen,
Noregi, hreppti útskriftarverðlaunin við
það tilefni. Lokaverkefni hennar, Vítam-
ín Náttúra, fjallar um áhrif umhverfis
á heilsu og samskipti og er líkan að
endurhæfingastöð fyrir fjölskyldur.
19.00 How to become Icelandic in
60 minutes er leiksýning sem leikin
er á ensku, samin og flutt af Bjarna
Hauki Þórssyni og leikstýrt af Sigurði
Sigurjónssyni. Þetta er sprenghlægileg
klukkustundarlöng sýning sem ætluð er
öllum þeim sem vilja læra hvað það er
að vera Íslendingur. Sýningin fer fram í
Kaldalóni í Hörpu og er miðaverð 4.200
krónur. Miða má nálgast á heimasíðu
midi.is.
20.00 Boðið er upp á leiðsögn um
sýninguna Ummerki sköpunar í fylgd
með Ólöfu K. Sigurðardóttur, forstöðu-
manni Hafnarborgar. Á sýningunni eru
valin verk úr safneign Hafnarborgar,
sýningin kynnir aðföng síðustu
tíu ára en verkin eru unnin á
árunum frá 1952 til 2014.
Sýningin beinir sjónum að
safninu sem stað þar sem
afrakstur sköpunar lista-
manna er varðveittur og
honum miðlað.
Hátíðir
12.30 Sjötta Barokkhátíðin
á Hólum að hefjast. Aðal-
gestur hátíðarinnar að þessu
sinni er breski fiðluleikarinn og
prófessorinn Peter Hanson sem
heldur námskeið og stýrir Barokksveit
Hólastiftis á lokatónleikumhátíðarinnar.
Hátíðin hefst með hádegistónleikum
í Hóladómkirkju klukkan 12.30 þar
sem leikið verðu á virginalinn sem
Barokksmiðjan eignaðist í fyrra og ýmis
einleikshljóðfæri.
20.00 Kammersveitin Reykjavík barokk
heldur tónleika í Hóladómkirkju. Fluttar
verða ýmsar perlur barokktímans og
í flytjendahópnum er altsöngkonan
Jóhanna Halldórsdóttir. Tónleikarnir eru
fluti af Barokkhátíðinni á Hólum.
Uppákomur
14.00 Sýningin S.I.R.K.U.S. Sýninguna
hefur Sirkus Íslands sett saman með
yngri börnin í huga en þó ekki á
kostnað eldri áhorfenda. Sirkus Íslands
leyfir áhorfendum að skyggnast inn í
annan heim þar sem draumar verða að
veruleika, hægt er að furða sig á ótrú-
legri færni hins íslenska sirkusflokks og
jafnvel láta lítil hjörtu slá hraðar. Fim-
leikafólk virðist falla af himnum ofan,
listafólk lætur hið ómögulega virðast
auðvelt og stórskrítnar persónur draga
áhorfendur inn í sýninguna. Sýningin
er fjölbreytt samansafn sirkusatriða
úr öllum áttum þannig að úr verður
ógleymanleg skemmtun. Sýningin er
í tjaldinu Jökla á Klambratúni og má
miða nálgast á heimasíðu midi.is.
17.00 Fyrsti grillviðburður ársins í Star-
tup Reykjavík að Laugavegi 120. 2. hæð,
Hlemmi. Fimm af teymunum tíu sem
taka þátt í ár munu kynna hugmyndir
sínar stuttlega fyrir gestum en að
því loknu verður boðið upp á grillaða
hamborgara, pylsur og meðlæti.
17.00 Heima er best er stóra fjölskyldu-
sýning Sirkus Íslands. Hún er alíslensk
sirkusskemmtun þar sem öll fjölskyldan
nýtur þess að horfa á ótrúlega leikni
listamanna Sirkus Íslands. Öll tón-
listin sem notast er við í sýningunni er
íslensk svo útkoman er heimaræktaður
íslenskur sirkus af bestu gerð. Sýningin
er í tjaldinu Jökla og má nálgast miða á
heimasíðu midi.is.
Upplýsingar um viðburði sendist
á hvar@frettabladid.is og einnig er hægt
að skrá þá inni á visir.is.
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
FIMMTUDAGUR
26. JÚNÍ 2014
Tónleikar
12.00 Guðmundur Sigurðsson leikur
á Klais-orgelið í Hallgrímskirkju. Tón-
leikarnir eru þáttur af Alþjóðlegu
orgelsumri 2014. Aðgangseyrir er
1.700 krónur.
20.00 Tom Odell kemur fram í Hörpu.
Píanósnillingnum, sem er 23 ára,
skaut upp á stjörnuhimininn á síðasta
ári þegar hann gaf út plötuna Long
Way Down. Hlaut hann í kjölfarið
gagnrýnendaverðlaun Brit-verð-
launahátíðarinnar. Eins var
hann tilnefndur til tveggja
verðlauna í ár, Besti nýliðinn
og Besti sólólistamaðurinn.
Miða má nálgast á midi.is.
20.00 Olga sækir Ísland
heim. Sönghópurinn Olga
er nýr og ferskur hópur
sem hefur aðsetur í Hol-
landi. Olga var stofnuð árið
2012 í Tónlistarháskólanum í
Utrecht. Hópurinn syngur allt án
undirleiks og efnisskráin spannar
fimm aldir, allt frá endurreisninni til
rakarakvartetta og frá þjóðlögum til
sönglaga. Hópurinn leggur upp með
að færa tónlistina nær áheyrendum í
leikrænni tjáningu og einlægum söng
með vandaðri og metnaðarfullri tón-
listarlegri túlkun. Miða má nálgast á
heimasíðu midi.is.
20.30 Mille des Fleurs tekur áheyrend-
ur til Frakklands árið 1930 og syngur
lög Edith Piaf, Maurice Chevalier
og fleiri á Loft Hostel.
Aðgangur er ókeypis.
21.00 Í byrjun júní
kom út þriðja
breiðskífa
Klassart
sem ber
heitið Smá-
stirni. Af því
tilefni ætlar
hljóm-
sveitin að
halda tón-
leika víðs
vegar um
landið. Hljóm-
sveitin Soffía
Björg Band sér
um upphitun en
sveitirnar koma fram á
Græna hattinum, Akureyri, í
kvöld. Miðasala við dyr og á heimasíðu
midi.is.
21.00 Gítarleikarinn Andrés Þór heldur
ásamt norrænum kvartett tónleika
á Bryggjunni, kaffihúsi í Grindavík.
Andrés er í tónleikaferðalagi í tilefni
af útgáfu á diskinum Nordic Quartet.
Gítarleikarinn Andrés Þór Þykir einn
af fremstu djassgítaristum hérlendis
af sinni kynslóð og hefur hann fengið
góða umfjöllun víðs vegar að um
plötur sínar og tónleika. Einnig hefur
hann reglulega verið tilnefndur til
Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir
plötur sínar og tónsmíðar og var núna
nýlega útnefndur bæjarlistarmaður
Hafnarfjarðar.
21.00 Margrét Júlíana og hljómsveit
flytja nýtt efni og gamla standarda í
nýjum útsetningum á Café Rosenberg.
Aðgangseyrir er 1.500 krónur.
„Við erum svona að rífa okkur
upp, við vorum svo dugleg einu
sinni,“ segir Kolbrún Eva Vikt-
orsdóttir, söngkona hljómsveit-
arinnar Myst sem kemur fram á
tónleikum í kvöld klukkan 21.00 á
Café Deluxe í Hafnarfirði.
„Við gáfum út diskinn Take
Me with You árið 2006 sem fékk
mjög góða spilun,“ segir söngkon-
an. „En síðan fór maður bara í að
eignast fleiri börn og við erum
núna að halda fyrstu tónleikana í
nokkur ár,“ segir Kolbrún og hlær.
Hljómsveitin ætlar sér ekki að
fara rólega af stað heldur er hún
nýkomin úr hljóðveri þar sem
hún tók upp nýtt lag með aðstoð
Jóns Ólafssonar tónlistarmanns.
„Hann er alveg ótrúlegur,“ segir
Kolbrún.
„Við vorum að fá lagið í hend-
urnar og ætlum að herja á
útvarpsstöðvarnar og athuga
hvort við fáum ekki einhverja
spilun.“ Meðlimir Myst eru ekki af
verri endanum en ásamt Kolbrúnu
eru í sveitinni maðurinn hennar,
Haraldur Gunnar Ásmundsson,
bróðir hennar, Sigurvin Sindri
Viktorsson, frændi hennar, Gunn-
ar Leó Pálsson, og æskuvinur Sig-
urvins, Hermann Albert Jónsson.
„Þetta er algjör fjölskylda,“
segir söngkonan. „Það er æðis-
legt að vera á tónleikaferðalagi,
það geta allir gist saman hjá ætt-
ingjum og svona. Mjög þægilegt,“
segir Kolbrún og bætir því við að
þrátt fyrir náin tengsl hafi aldrei
komið til árekstra í hljómsveitar-
starfinu. ,,Við erum svo róleg öll,
síðan er ekkert hægt að ljúga að
þú sért að fara að gera eitthvað
ef það er æfing því það vita allir
hvað þú ert að gera,“ segir söng-
konan og hlær.
baldvin@frettabladi.is
En síðan fór maður
bara í að eignast fleiri
börn og við erum
núna að halda fyrstu
tónleikana í nokkur ár.
Spila saman á ný
Hljómsveitin Myst hefur hafi ð störf á ný eft ir nokk-
urra ára hlé. Sveitin er með nýtt lag á leiðinni og
blæs til tónleika í kvöld á Café Deluxe í Hafnarfi rði.
SYNGJANDI SÆT Kolbrún Eva Viktorsdóttir söngkona mun rifja upp gamla takta
með hljómsveitinni Myst en hljómsveitin hefur ekki komið fram í nokkur ár.