Fréttablaðið - 26.06.2014, Síða 50

Fréttablaðið - 26.06.2014, Síða 50
26. júní 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING BÍÓ | 38 Leikstjórinn Paul Thomas Anderson er 44 ára í dag Helstu myndir: There Will Be Blood, Magnolia, Boogie Nights, The Master. AFMÆLISBARN DAGSINS BÍÓFRÉTTIR Tony- og Emmy- verðlauna- hafinn Eli Wallach lést á þriðjudag, 98 ára að aldri. Leikarinn var þekktastur fyrir leik sinn í kvikmyndinni Baby Doll árið 1956 og sem hrottinn Tuco í spagettívestranum The Good, the Bad and the Ugly. Hann skilur eftir sig eiginkonuna Anne Jackson og þrjú börn– Peter David, Robertu og Katherine. ELI WALLACH LÁTINN (1915–2014) Kvikmyndagerðarmaðurinn Jerry Bruckheimer segir að vinna við fram- haldsmynd Top Gun sé farin af stað og að viðtöl hafi verið tekin við handrits- höfunda síðasta föstudag. Top Gun sló í gegn árið 1986 með Tom Cruise í aðalhlut- verki og er myndin eins sú vinsælasta sem þessi Íslands- vinur hefur leikið í. Aðdáendur kappans fagna því eflaust að hann hefur lýst yfir áhuga á því að taka þátt í Top Gun 2. VINNA HAFIN VIÐ TOP GUN 2 Leikarinn Mel Gibson verður heiðraður á alþjóðlegu Karlovy Vary- kvikmyndahá- tíðinni í Prag í Tékklandi fyrir framlag sitt til kvikmynda- gerðar. Hátíðin hefst þann 4. júlí næstkomandi og lýkur 12. júlí. Hátíðin er nú haldin í 49. sinn og eiga Íslendingar full- trúa á hátíðinni– Hafstein Gunnar Sigurðsson með kvikmyndina París norðursins. GIBSON HEIÐRAÐUR Í PRAG Kvikmyndin Vonarstræti, í leik- stjórn Baldvins Z og með þeim Heru Hilmarsdóttur, Þorvaldi Davíð Kristjánssyni og Þorsteini Bachmann í aðalhlutverkum, er orðin aðsóknar- mesta myndin á Íslandi það sem af er árinu. Alls hafa tæplega fjörutíu þúsund Íslendingar séð myndina og hefur hún halað inn rúmlega 55 milljónir króna. Hún skákar þar með stórmyndum á borð við The Secret Life of Walter Mitty og Wolf of Wall Street. VONARSTRÆTI AÐSÓKNARMEST Transformers: Age of Extinction, fjórða Transformers-myndin, var frumsýnd á Íslandi í gær. Nú leik- ur leikarinn Mark Wahlberg aðal- karlhlutverkið og kemur í stað Shia LaBeouf sem var stjarnan í hinum þremur myndunum. Myndin á að gerast fjórum árum eftir lokabardagann í Chicago úr þriðju myndinni, Transformers: Dark of the Moon. Mark leikur ein- stæðan föður ungrar stúlku sem má ekki fara á stefnumót vegna þess að hún á að einbeita sér að náminu en faðir hennar var sjálfur mjög ungur þegar hann eignaðist hana. Faðirinn vinnur sem uppfinningamaður og lifir á því að kaupa gamalt drasl og nota það í uppfinningar sínar. Einn daginn kemst hann yfir gamlan og gatslitinn trukk en þegar hann byrjar að vinna við hann kemur í ljós að þetta er ekki venju- legur bíll. Aðstandendur kvikmyndarinn- ar íhuguðu að fá Shia aftur í aðal- hlutverkið en vildu nýja karlhetju. Happafengur þykir að hafa nælt í Mark því hann leikur í níutíu pró- sentum af áhættuatriðum sínum í myndinni. Leikstjórinn Michael Bay ætl- aði ekki að leikstýra þessari fjórðu Transformers-mynd en hann leik- stýrði hinum þremur sem komu á undan. Roland Emmerich, Joe Johnston, Jon Turteltaub, Stephen Sommers, Louis Leterrier og David Yates þóttu líklegir til að hreppa leikstjórastólinn en Michael skipti um skoðun þegar hann sá Trans- formers-tækið í skemmtigarði Uni- versal Studios. Þar voru hundruð aðdáenda sem biðu í röðum til að prófa tækið og þá gerði hann sér grein fyrir að hann var ekki tilbú- inn til að slíta sig frá Transformers- seríunni. Myndin var tekin upp í Hong Kong að hluta og mætti fjöldinn allur af aðdáendum til að horfa á tökurnar. Eftir að tökum lauk á viðamiklu sprengingaratriði notaði Michael gjallarhorn til að ávarpa fjöldann og sagði: „Haldið þið að þið getið beðið þarna og verið í myndinni minni? Ég ætla að stroka ykkur út á staf- rænan hátt!“ Auk Marks eru það Nicola Peltz, Jack Reynor, Ken Watanabe, John Goodman, Kelsey Grammer og Stanley Tucci sem leika í myndinni. liljakatrin@frettabladid.is „Þið verðið strokuð út!“ Fjórða Transformers-myndin, Transformers: Age of Extinction, var frumsýnd á Íslandi í gær. Mark Wahlberg kemur í stað Shia LaBeouf í aðalkarlhlutverkinu en leikstjórinn Michael Bay snýr aft ur í leikstjórastólinn. EINSTÆÐUR FAÐIR Mark Wahlberg er nýja karlhetjan í Transformers-myndunum. MIKILL HASAR Transformers-myndirnar eru gríðarlega vinsælar. ■ Fyrsta myndin í seríunni, sem hét einfaldlega Transformers, var frum- sýnd árið 2007, halaði inn um 710 milljónir Bandaríkjadala, 81 milljarð króna, í kvikmyndahúsum á heimsvísu og var tilnefnd til þrennra Óskarsverðlauna fyrir brellur og hljóð. Kostnaður við gerð hennar var 150 milljónir dala, rúmir 17 milljarðar króna. ■ Önnur myndin, Transformers: Revenge of the Fallen, var frumsýnd árið 2009. Hún halaði inn 837 milljónir dala, rúma 95 milljarða króna, á heimsvísu en kostaði tvö hundruð milljónir í framleiðslu, tæpa 23 milljarða króna. ■ Sú þriðja, Transformers: Dark of the Moon, var frumsýnd sumarið 2001. Hún aflaði 1.124 milljarða dala, rúmra 128 milljarða króna, á heimsvísu og kostaði 195 milljónir dollara í framleiðslu, rúma 22 milljarða króna. Hún var tilnefnd til þrennra Óskarsverðlauna, eins og sú fyrsta– fyrir hljóð og brellur. Sigurganga Transformers-myndanna Haldið þið að þið getið beðið þarna og verið í myndinni minn? Michael Bay 7,8/10 50/100 Spekúlantar vefsíðunnar Variety velja bestu myndir fyrri helm- ings ársins. PETER DEBRUGE: The Grand Budapest Hotel Leikstjóri: Wes Anderson How to Train Your Dragon 2 Leikstjóri: Dean DeBlois Locke Leikstjóri: Steven Knight Stranger by the Lake Leikstjóri: Alain Guiraudie Le Week-end Leikstjóri: Roger Michell SCOTT FOUNDAS: The Grand Budapest Hotel Ida Leikstjóri: Pawel Pawlikowski The Immigrant Leikstjóri: James Gray Norte, the End of History Leikstjóri: Lav Diaz Nymphomaniac Leikstjóri: Lars von Trier JUSTIN CHANG The Grand Budapest Hotel Ida Noah Leikstjóri: Darren Aronofsky Only Lovers Left Alive Leikstjóri: Jim Jarmusch Under the Skin Leikstjóri: Jonathan Glazer BESTU MYNDIRNAR það sem af er árinu THE GRAND BUDAPEST HOTEL

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.