Fréttablaðið - 26.06.2014, Síða 56
26. júní 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 44
BAKÞANKAR
Atla Fannars
Bjarkasonar
„Ég hlakka mikið til að koma til
Íslands, ég hef heyrt góða hluti
um landið,“ segir tónlistarmaður-
inn Tom Odell, en hann er kominn
til landsins og kemur fram á tón-
leikum í Hörpu í kvöld.
Hann komst í sviðsljósið á síð-
asta ári þegar hann gaf út plötuna
Long Way Down og hefur platan
fengið prýðisdóma og hlaut til að
mynda gagnrýnendaverðlaunin á
Brit Awards á síðasta ári. Þá var
hann tilnefndur til tvennra verð-
launa í ár; sem besti nýliðinn og
besti sólólistamaðurinn.
„Ég finn auðvitað einhvern mun
á öllu eftir að platan kom út en ég
hef verið á tónleikaferðalagi síðan
hún kom út og í raun frá því áður
en hún kom út. Ég er orðinn vanur
því að vera á tónleikaferðalagi og
finnst frábært að spila á tónleik-
um, helsti munurinn er kannski
sá að áhorfendum á tónleikunum
hefur fjölgað mikið,“ segir Odell
spurður út í frægðina sem hann
hefur öðlast að undanförnu.
Hann vinnur þó einnig hörðum
höndum að nýrri plötu og nýtur
þess að spila nýtt efni á tónleik-
um sínum. „Ég spila yfirleitt um
fjögur til fimm ný lög á tónleik-
um, mér finnst gaman að sjá við-
brögð fólksins við nýju efni. Það
er gott að geta prófað lögin á tón-
leikum áður en maður hljóðritar
þau,“ útskýrir Odell. Hann gerir
ráð fyrir að nýja platan komi út á
næsta ári.
Breski tónlistarmaðurinn er
alæta á tónlist og hlustar á allt
mögulegt. „Ég hlusta á mis-
munandi tónlist, er til dæmis að
hlusta á nýju Beck-plötuna um
þessar mundir. Ég er alltaf að
kaupa plötur því ég nærist á tón-
list og elska að heyra nýja tónlist,
þá lærir maður og uppgötvar svo
margt.“
Tom Odell verður þó ekki einn á
sviðinu í Eldborg því hann er með
hljómsveit með sér. „Ég er með
trommuleikara, bassaleikara og
gítarleikara með mér, við höfum
spilað saman í þrjú til fjögur ár og
þeir eru stór hluti af því sem ég
geri. Ég er heppinn að hafa þá, við
tókum upp síðustu plötu saman og
þeir hafa mikil áhrif.“
Odell er nægjusamur og er ekki
að flækja hlutina þegar kemur að
tónleikahaldi. „Ég er ekki með
mikið af ljósum og ekki marga
dansara, ég vil bara að píanóið
virki og að gítarinn sé stilltur,“
segir Odell léttur í lundu.
Tónleikar Toms Odell hefjast
klukkan 20.00 í kvöld og fara fram
í Eldborgarsalnum í Hörpu.
gunnarleo@frettabladid.is
Vill að píanóið virki
og gítarinn sé stilltur
Breski tónlistarmaðurinn Tom Odell kemur fram á tónleikum í Hörpu í kvöld.
Hann hlakkar til að koma til landsins og ætlar að spilar nýtt efni á tónleikunum.
ÁSTRÍÐUFULLUR ODELL Tónlistarmaðurinn Tom Odell kemur fram í Eldborgarsalnum
í Hörpu í kvöld. Hann ætlar að flytja nýtt efni í bland við eldra. NORDICPHOTOS/GETTY
• Hann er fæddur 24. nóvember árið 1990 í Chichester á Suðaustur-Englandi.
• Tónlistarkonan Lily Allen uppgötvaði hæfileika kappans og líkti honum við
David Bowie.
• Hann gaf út plötuna Long Way Down og hefur hún fengið prýðisdóma og
hlaut til að mynda gagnrýnendaverðlaunin á Brit Awards á síðasta ári. Þá
var hann tilnefndur til tvennra verðlauna í ár; sem besti nýliðinn og besti
sólólistamaðurinn.
• Hann hefur hitað upp fyrir Elton John á tónleikum og þá hitar hann upp
fyrir Neil Young í Hyde Park í næsta mánuði.
• Vinsælasta lag Odells er Another Love og hefur það verið spilað tæplega
32 milljón sinnum á YouTube.
Hver er Tom Odell?
Gunnars majónes fór á hausinn. Samt er majónes hollt samkvæmt lágkolvetna-
lífsstílnum sem selur fleiri bækur en Arn-
aldur Indriðason. Það þýðir samt ekki að
dvelja í fortíðinni. Fyrirtækið þarf að kom-
ast aftur á flug og það hratt. Þúsundir sam-
loka með rækjusalati eru í húfi.
UPPGANG Íslands síðustu ár má rekja til
makríls og ferðamanna. Makríllinn er flutt-
ur út en stöðugur straumur Þjóðverja með
fulla vasa af brakandi evrum virðist hafa
farið fram hjá Gunnars majónesi. Leiðin til
að koma íslensku majónesi á kortið hjá þeim
er augljós: Að rúlla kokteilsósu í trójuhesti
á diskinn hjá hverjum einasta af þessum
milljón ferðamönnum sem eru væntan-
legir til landsins á næsta ári.
VERKEFNIÐ er strembið. Það fyrsta
sem Gunnars majónes þarf að gera er
að opna vefsíðuna cocktailsauce.com. Lénið
er laust (ég athugaði). Þar myndi texti á
borð við „Welcome to Iceland — home of
the cocktail sauce“ blasa við netverjum
ásamt ágripi um sósuna, hvað skilur hana
frá svipuðum sósum sem önnur ríki þykj-
ast framleiða og tillögum um hvernig skal
neyta hennar. Framsetningin þarf að vera
nútímaleg, skemmtileg og ögrandi.
VIÐ þurfum tvist sem fær ferðamanninn til
að brosa og Íslendinga með í lið. Ef rétt er
haldið á spilunum getur hver einasti sjoppu-
starfsmaður, leiðsögumaður og hvala-
skoðunarskipstjóri tekið þátt í verkefninu.
Hugmyndin er að fá þekktan grínista til
að framleiða fimm útgáfur af uppruna kok-
teilsósunnar og leyfa fólki að kjósa um hver
er líklegust til að vera sönn. Steindi myndi
negla það.
TENGING við samfélagsmiðla er líka
nauðsynleg. Við viljum að ferðamennirn-
ir birti mynd af kokteilsósu á Insta gram.
Og merki með viðeigandi kassamerki:
#CocktailSauce Nation. Loks þarf að hressa
upp á umbúðirnar. Horfa til hvernig Banda-
ríkjamenn pakka inn sósum. Nýju umbúð-
unum þarf svo að koma fyrir við hliðina á
harðfisknum á vinsælum ferðamannastöð-
um, frá 10-11 í Leifsstöð til Staðarskála í
Hrútafirði. Enginn ferðamaður yfirgefur
landið án þess að dýfa franskri kartöflu í
kokteilsósu og Gunnars majónes verður
skráð í Kauphöll Íslands árið 2016.
Gunnars majónes í Kauphöll Íslands
„ÉG GAPTI AF UNDRUN!“
- GUARDIAN
TRANSFORMERS 2D
TRANSFORMERS 3D
TRANSFORMERS 3DLÚXUS
AÐ TEMJA DREKANN 2 2D ÍSL. TAL
AÐ TEMJA DREKANN 2 3DÍSL. TAL
22 JUMP STREET
FAULT IN OUR STARS
TÖFRALANDIÐ OZ 2D ÍSL. TAL
X-MEN 3D
VONARSTRÆTI
KL. 4
KL. 8 - 10.30
KL. 5 - 9
KL. 3.30 - 5.45
KL. 3.30 - 5.45
KL. 5.30 - 8 - 10.40
KL. 8
KL. 3.30
KL. 10.40
KL. 8
WELCOME TO NEW YORK
AÐ TEMJA DREKANN 2 2D ÍSL. TAL
TRAIN. . . DRAGON 3DENS. TAL ÓTEXT.
22 JUMP STREET
GRACE OF MONACO
FAULT IN OUR STARS
VONARSTRÆTI
Miðasala á: Kauptu miða á X-Men með
KL. 8* - 10.40
KL. 5.45
KL. 8 - 10.15
KL. 8 - 10.30
KL. 5.40
KL. 5.20
KL. 5.20 - 8 - 10.40
*GÆÐASTUND
-T.V., BIOVEFURINN.IS
-FRÉTTABLAÐIÐ-DV S.R.S
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
SPARBÍÓ
HOLLYWOOD REPORTER NEW YORK DAILY NEWS
SHORT TERM 12
HM Í FÓTBOLTA
Í BEINNI
FRÍTT INN
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
TRANSFORMERS 3D 4, 7, 8, 10:10(P)
TEMJA DREKANN SINN 2D 4:30
BRICK MANSIONS 11:10
22 JUMP STREET 8
MILLIOM WAYS, DIE WEST 10:20
VONARSTRÆTI 5
ÍSL TAL
www.laugarasbio.isSími: 553-20755%